Nýsköpunarvagninn ...

4CBCBE523A8963A68F88A156B68E7D38A04E7363D98FA1DE272514911A93A02A_713x0Huga skal nú að nýsköpun
njóta jöfra andans.
Forðast alla eftiröpun
auka hróður landans.


Hin heiðbjarta Heiðmörk ...

downloadÍ Heiðmerkurskóginn skreppa vil
skána þá mín geðhvörf.
Öngvar leiðir eru þangað til
úrbóta nú er þörf.

Vagninn í Heiðmörk

download (1)Dr. Gylforce tekur undir með vagnverju þessari hvar gaman væri nú að fá vagnaleið upp í Heiðmörk að sumarlagi.

1097-3178ac0535Hinn nakti raunveruleiki byggðasamlagsins segir doksa kallinum hinsvegar að slík leið sé ekki á teikniborðinu - & líklega ekki í bráð.

Enda þótt hugmyndin sé nýstárleg & góð er varla grundvöllur fyrir henni. Vonandi einhvern tíma síðar enda þyrfti nú ekki nema eina smárútu í verkefnið. 

Yfir&út!


Fitbit - einmitt ...

vagnstjórarÍ fyrsta sætið er formið
fá nú úr til þess.
Hæfilegt hold er normið
við hámið segjum bless.

Heilsuúr til vagnstjóra

Á dögunum fengu allir vagnstjórar forláta Fitbit heilsuúr að gjöf frá byggðasamlaginu. Þetta er liður í forvarnarstefnu fyrirtækisins og gert í samvinnu við tryggingarfélagið VÍS.

Þessu ber að fagna & er það einlæg von Gylforce-ins að þessi huggulegi gripur komi að góðum notum.

Yfir&út!

 


Hver er þessi dr. Gylforce ...???

AlbumImageFegurð & afl vagninn er
innst í hjarta mínu.
Feykir burtu fjandans her
færir oss Borgarlínu.

Í árdaga urðu menn þess varir í kópvægskri laut einni, kennda við Stúta, að kona var með barni. Liðu svo tímar & lagðist hún á gólf & fæddi sveinbarn; feitt & fráleitt frítt. Sveinn þessi var vatni ausinn & nefndur Gylforce; eða öllu heldur doktor Gylforce.
61445724_427405004723258_5798605457652187136_n
Mamma gamla mér þar gaut
meðan pápi hraut & hraut.
Vanti þig einn fúlan faut
finnurðu hann í Stútulaut. 


Dr.-inn varð snemma vörpulegur á velli, hreyfingarléttur & kvikull; mikill vexti en þó aumur að afli; mikið þótti hann undarlegur & fábreytinn í lund; snemma sýndi Gylforce-inn græðgi & girnd mikla þegar gúmmídekk fjögur voru annars vegar, en talaði hann þó tepru- & tilgerðarlega & héldu flestir hann vitlítinn vera.

Doktorinn á vagnavakt
vellíðan þá streymir.
Á þá horfir með andakt
& amstri dagsins gleymir.



Blekaður í bólusetningu ...

182486389_2263432930465216_2902278302930154471_nÍ bólusetningu blekaður
á barinn jú kíkti.
Gylforce-inn þar geggjaður
í gellunum skríkti.

Eptir smáskemmtun, svall & lausung í Laugardalnum var vitaskuld komið að því að halda heim á leið; hætta skal hverjum leik þá hæst fer fram & allt það kjaftæði.

182617709_2920970878152604_6017830831846716561_nDr.-inn gekk rösklega að skýli einu við Suðurlandsbraut & einhenti sér með Hollendingnum bilandi á leið 17 að Hlemmtorgi okkar Reykavíkinga. Nema hvað.

Frá Hlemmi lék dr. Gylforce kunnugleg stef & hélt rafmagnaður að Stútulautarseli sínu með þristi einum. Vegna ölvunar sinnar var doksi kallinn með fætur upp í sæti & lét öllum illum látum. Illu heilli.

Í doktornum dólgslæti
drukkinn & vitlaus.
Með bífurnar upp í sæti
bjálfi & þorskhaus!


Gagnavagn númer 2 ...

179427772_3816752041727697_4672475738764921236_nGagnavagninn gerbreyttur
glæstan ég hann tel.
Daði sjaldan dauðþreyttur
dansar fantavel.

180174951_3816751878394380_8271312177167170476_nÞað er kominn nýr Gagnavagn sem er enn glæsilegri en sá gamli.

Dr. Gylforce hlakkar mjög til þess að sjá hann á vígvöllum veganna um helgina. Maður lifandi!


Horfin Herdís ...???

BIC4747_by_bicnickÁ feitum hval eg ei nú flaut
fannst voðinn alveg vís.
Keyrði veginn um Kársnesbraut
hvar er dýrleg Herdís?

Rödd Strætós, sem ku vera grýlan Herdís Hallvarðsdóttir, heyrist nú ekki alveg nógu vel í of mörgum vögnum er aka á vegum byggðasamlagsins. Illu heilli.

Dr. Gylforce arkaði um kræsilegar lendur þeirra Kópvæginga í blíðunni í kvöld með leiðum 28 & 35, hvar í öðrum vagninum heyrðist hvorki hósti né stuna frá grýlunni geðþekku.

Dr.-inn hyggst fara í viking á næstu vikum & kortleggja þessa vagna & vonast til þess að bæði upplýsingatöflur í vögnunum & röddin fagra virki sem skyldi.

Upp með sokkana!!!



Efri mynd: grapevine.is


Rafmagn & metan ...

Rafmagn & metan
í mínu kerfi.
Sæt verður setan
sælt er umhverfi.

Um helgar kemst dr. Gylforce í sjúklegar álnir líkt & segir í laginu fræga. Það er nefninlega svá að einungis raf- & metanvagnar annast akstur á hinni þriðju leið frá Hlemmtorgi þeirra Reykvíkinga & upp með breiðhylzkum brekkum. Maður lifandi!

leið 3Vitaskuld kallar þetta á urmul ferða hjá dr.-num en þegar líða tekur á daginn verða hvítu metanvíkingarnir að hverfa á braut & fá meira djús til þess að getað haldið áfram unaðslegum ferðum sínum. Hvað um það.

Vonandi er von á fleirum metanvögnum hér á höfuðborgarsvæðinu en þess má geta að norðan heiða hafa þeir í hyggju að taka í notkun sinn fjórða vagn sem gengur fyrir metani. 

Það er eðall. Nema hvað!


Leið leiðanna ...

787649f1ff-987x517_o-890x466Gylforce nefnist garpur sá
grimmur er í vögnum.
Kastar þar verja orðum á
með æsilegum sögnum.

download

Skömmu áður en tíu mínútna tíðni á leið leiðanna, leið 1, lauk í gær tók dr. Gylforce sér góða langdvöl með leið þessari. En ekki hvað???

Leið leiðanna ber höfuð & herðar yfir aðrar leiðir hvað fjölda vagnverjar varðar & því ekki úr vegi að taka almennilegan rúnt með henni.

Dr. Gylforce fór inn í Firði þeirra Fjarðarmanna & hélt með vagninum alla leið að Hlemmtorginu. Doksi kallinn fékk að vísu sér til fulltingis varavagn af Irisbus gerð en lét öngvan bilbug á sér finna & naut hvarvetna ferðarinnar í hvívetna.

Milli þess að spjalla við vagnverja & telja þá hapði dr. Gylforce gaman af að sjá átta aðra vagna á leið leiðanna enda þarf urmul af þeim gulu til þess að halda uppi þessari unaðslegu tíu mínútna tíðni.

Gylforce með ás í ermi
ekkert það toppar.
Vagninn með fullfermi
í Firðinum stoppar.

Dr.-inn er nú öldungiz smeykur um það.

Yfir&út!


Gleðilega páska!

168917665_10158221455563348_1429625327831858120_nDymbilvikan var dásamleg
dýrðleg & án gáska.
Með glaum´ & gleði segi ég:
Gleðilega páska!



« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband