Hinn drjúgi & drýldni dr. Gylforce dreif sig af stað á dögunum, hvar hann langaði til að kíkja á Hlemminn sem hefur heldur betur tekið stakkaskiptum. Maður lifandi.
Dr. Gylforce valhoppaði í nánd við vagnana & var á leið inn í hina nýju Mathöll sem Hlemmur er orðinn þegar hann sá hann. HANN! Liðvagninn - harmonikkuvagninn með númerið 170! & vitaskuld á leið leiðanna - leið 1.
Dr.-inn bar höfuðið hátt & hoppaði inn í þennan þýska gæðing & hélt með honum suður í Fjörð. Doksi kallinn var á vappi á annatíma & tók það vagninn um 43 mínútur að fara frá Hlemmi & suðureptir sem allajafna ætti að vera um 38 mínútna unaðsrúntur. Hvað um það.
Fimm mínútna töf er þó ekki mikið, sé tekið tillit til umferðarþungans sem er á vígvöllum veganna milli kl. 16-18. Maður lifandi - hvaðan koma alla þessar sjálfrennireiðar???
Það verður fróðlegt að bera saman tímann á leið leiðanna þegar framkvæmdum við forgangsrein strætó lýkur við Miklubraut. Áætluð verklok eru eptir um mánuð; hversu mikið kemur hún til með að flýta för vagnsins?
Til að toppa þennan unað fékk dr. Gylforce svo hinn liðvagninn tilbaka úr Firðinum & að Mathöllinni við Hlemmtorg. Þvílíkt & annað eins!
Þvílík ferð - þvílík gleði!
Í geðshræringu sinni mælti svá Gylforce að lúkningu:
"Vinir vorir - vagnar: Keyriði dr.-inn heim í fegurstu laut jarðarkringlunnar, Stútulautina, for kræing ád lád."
Sem þeir & gerðu.
Með harmonikku í Hafnarfjörð
húrrey - þvílíkt fagn!
Brunandi yfir móa & börð
Guð blessi þennan vagn!
Bloggar | 31.8.2017 | 09:21 (breytt kl. 12:57) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hinn heiðni & heiðarlegi dr. Gylforce hefir verið hressilegur mjög á þessum hugglegu haustdögum, hvar loksins hillir undir lengri & meiri akstur vagnanna. Loksins, loksins. En meir um það síðar, þó ekki nærbuxur.
Aukinn akstur og næturferðir
Innfluttir eru frá Asíu
efla þarf & laga.
Á vígvellina fáum níu
vonandi ei harmsaga.
Aukinheldur komu fram miður góðar fréttir af rafvögnunum níu sem framleiddir eru í Kína. Tafir verða á afhendingu þeirra, einkum vegna hraðahindrana á höfuðborgarsvæðinu.
Vonandi ná Kínverjarnir að leysa vandamálið & styrkja vagnana svo vér vagnverjum sjáum nú nýja vagna á vígvöllum veganna innan tíðar. Maður lifandi.
Tafir á rafvögnum
Bloggar | 28.8.2017 | 22:07 (breytt kl. 22:34) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hinn síðsumarssæli dr. Gylforce sat heima & undirbjó valáfangann sinn - Allir með strætó - fyrir mennta- & menningarsetrið, sem vegna myglu verður í Fannborg þeirra Kópvæginga þennan veturinn.
Dr.-inn mun halda áfram að kynna ungviðinu dásemd & dýrð vagnanna & verður með tvo 20 manna hópa í vetur, hvar hann kynnir fyrir þeim leiðir höfuðborgarsvæðisins & heppilegar skiptingar milli vagna og fleira. Nema hvað.
Eptir drykklanga stund hélt dr.-inn á vit vagna - en ekki hvað??? Að þessu sinni tók doksi kallinn einvörðungu leið 4 í veðri sem lék við höfuðborgarbúa þennan ágæta hvíldardag. Hvað um það.
Dr. Gylforce hlammaði sér í hinn þægilega Iveco Crossay á leið 4 & fékk raðnúmerin 152 & 153 sem var skemmtilegt. Vagnverjar voru fáir með í för að þessu sinni enda kannski flestir að slaka á eptir fríkeypis ferðir á menningarnátt - hvur veit???
Var að spá í valnámskeið
verjans gamla hró.
Í ljúfu veðri fór á leið
í lipra Ívecó.
Bloggar | 20.8.2017 | 20:02 (breytt kl. 20:52) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hinn drottnandi & dugmikli dr. Gylforce dreif sig í kvöldferð meðal vina vorra, vagnanna. En ekki hvað???
Dr. Gylforce valhoppaði niður Selhrygginn, hvar hann hugði á góða göngu í Voginum fagra, kennda við kópa. Eptir góðan spöl kom doksi kallinn að sínu gamla mennta- & menningarsetri við Digranesveg, Kópavogsskóla, & fannst upplagt að taka leið 4 þaðan & upp í Mjódd okkar Breiðhyltinga. Nema hvað.
Fjarkinn svokallaði átti samkvæmt áætlun að vera við setrið kl. 21:36. Ekkert bólaði hins vegar á vagninum fyrr en kl. 21:41; fimm mínútna seinkun á ágústkvöldi úr Hamraborg að næstu stoppistöð - það er afar óvenjulegt.
Dr.-inn sat framarlega í fjarkanum sem var hinn þokkalegasti Irisbus Crossway vagn. Vagnstjórinn virtist hafa vin sinn með sér & ræddu þeir af miklum móð um trúmál alla leiðina.
Sá er sat við stýrið taldi mjög mikilvægt að Guð hepði uppsprettur í öllum þorpum landsins eins og hann orðaði það. Fólk gæti þá komið saman daglega & hitt sinn Guð án þess að starfsmenn safnaða hepðu milligöngu.
Það rann upp ljós fyrir doksa. Ef það er einhver sem tefur för vagnanna á fallegu ágústkvöldi, þá er það sjálfur Kristur - en ekki hver???
Dr.-inn skipti um vagn í Mjóddinni, valhoppaði kotroskinn í Stútulautarselið sitt til þess að vera ekki of seinn að fara með kvöldbænirnar.
Vagnstjórinn ók með vin
var efst í huga bænin.
Þau ákölluðu Krist
hafa án efa misst
allt sitt tímaskyn.
Amen.
Bloggar | 17.8.2017 | 23:32 (breytt kl. 23:40) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hinn mildi & miskunnsami dr. Gylforce mjakaði sér á vit vagna í gær, hvar hann tók hús á einum sænskættuðum vini sínum á leið leiðanna, leið 1. Maður lifandi!
Leikar hófust hjá dr. Gylforce í miðstöð & meginaðsetri okkar Breiðhyltinga; Mjódd. Doksi kallinn gerði sér far með Costco-vagninum á leið 21 sem jú - líkt & fyrr - tefst aðeins við Kauptúnið.
Dr.-inn spáseraði aðeins suður í Firði, spjallaði við hafnfirzka vagnverja, hvar hann sá hinn sænskættaða Scania Omnilink á leið leiðanna, leið 1. Wú-hú!
Vagn þessi er orðin 14 vetra gamall, nokk lúinn en á þó talsvert inni. Vagnstjórinn var hinn kurteisasti - í fyrstu - & verjar margir eins gjarnan er á þessari fjölmennu leið.
Sá sænski ók greiðlega upp Hverfisgötuna & nálgaðist Hlemminn. Við bíó Paradís er stoppistöð & þar ýtti ungmenni - þéttingsfast en þó fimlega - á stanzrofann en þó heldur seint.
Sá guli lullaði fram hjá kvikmyndahúsinu. Pilturinn stóð upp og bað vagnstjórann að stöðva. "Nei, þú ýttir of seint," svaraði sá við stýrið en var í lófa lagið að stoppa enda ekki mikill hraði á Hverfisgötunni. Þetta var bara spurning um smá sveigjanleika & þjónustulund. En, ó - nei.
Já, vagnstjórinn var í skyndi orðinn þrályndur & þver í skapi; stirfinn við stýrið, grámyglulegur & geðstirður. Líklega er byggðasamlagið Strætó ekki þjónustufyrirtæki í hans huga, heldur vinnustaðurinn hans.
Uss & svei - svona gjöra menn ekki.
Einn stirfinn við stýrið
staðfastur en ókyrr.
Að ýta - unglingsdýrið
átti að gera fyrr!
Bloggar | 17.8.2017 | 11:01 (breytt kl. 11:23) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vetur góður með nýjum gelgjum
Gylforce-inn sá fyrir sér.
Búsið nýtt á gömlum belgjum
- grábölvað það nú er!
Hinn affarasæli & aumingjagóði dr. Gylforce hefir lengt mjög eptir degi þessum, hvar hin eiginlega vetraráætlun byggðasamlagsins hefst af krapti. Eða hvað???
Dr.-inn átti von á töluverðum breytingum á hinu lostfagra leiðakerfi Strætó þennan veturinn aukinheldur sem akstur vagna kynni að vera lengur á kvöldin & jafnvel næturferðir um helgar. Ekkert af þessu er raunin. Nema hvað.
Eina sjáanlega breytingin er á leið 23 sem hættir að vera pöntunarleið á helgidögum. Jú, svo er tímaáætlunum hnikað til á nokkrum leiðum. Það er alltof sumt. Þetta eru mikil vonbrigði.
Dr. Gylforce telur þó tímaspursmál hvenær leiðum 1, 3, 6 verði breytt þannig að aðeins ein þeirra aki frá Lækjartorgi að Hlemmi; leið 6 hætti að aka upp í Mosfellsbæ & tengist betur við leið 31; leið 21 fái aukið vægi & verði jafnvel með 15 mínútna tíðni sem myndi líka breyta innanbæjarleiðum suður í Firði. & fleira & fleira.
Þetta kemur.
Nú bíðum vér vagnverjar bara fram í janúar en þá er fyrirhuguð næsta leiðakerfisbreyting. Vonandi verður búið að fullmóta tillögurnar & finna fjármagn til þess að bæta þjónusta enn frekar - en ekki hvað???
Bloggar | 14.8.2017 | 14:10 (breytt kl. 16:28) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Benidorm er með þá bláa
brunandi um heita grund.
Sá þá aka, stóra & smáa
slompaður með létta lund.
Hinn sósaði & sótdrukkni dr. Gylforce sat í sælu sinni í hitanum suður á Íberíuskaga á dögunum, hvar hann hitti fyrir fagra vagna & unaðslegar strætisvagnaleiðir. Nema hvað.
Dr.-inn var heppinn mjög, hvar leiðir 10 & 11 stoppuðu beint fyrir framan hótelið hans. Hinn tíunda leið hefir 15 mínútna tíðni lengstum & yfirleitt sama vagnakost & byggðasamlagið: Irisbus & Iveco Crossway. Þetta var hin prýðilegasta leið & verðið i vagnana mjög viðunandi eða um 200 íslenskar krónur.
Leið 1 - ásinn - var steinsnar frá híbýlum doksa & leiddi hann rakleitt á ströndina sem var afar heppilegt í hitanum. Tíðni vagnsins var yfirleitt um 12 mínútur sem var hið besta mál.
Ef svo illa vildi til að maður missti af vagninum hér við Íberuskaga, gafst tóm til að komast í kynni við þann görótta á næsta ÞamBAR & fá sér einn áður en næsti vagn kæmi. En ekki hvað???
Vagnarnir syðra reyndust vel nýttir í þau skipti sem dr.-inn var innanborðs enda fátt betra en sitja í loptkældum vagni þegar hitinn nálgast fjörutíu stig útivið.
Maður lifandi!
Bloggar | 10.8.2017 | 14:53 (breytt kl. 20:46) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar