Unaður í auka ...

16144939 10154410714578348 1178930663 oHinn árrísuli & alhressi dr. Gylforce var með hýrri há við aftureldingu, hvar hann spígsporaði að skýli sínu & tók aukavagninn á leið 3 upp við Selin. Maður lifandi.

IMG_0462Að þessu sinni var öngvan 3ja hásinga Volvo gæðing að finna. Í staðinn kom frændi hans frá Svíaríki, Scania Omnilink, 113 vagninn, með konung kokteiltónlistarinnar við stýrið, sjálfan André Bachmann. Hann var að venju afar kurteis, bauð öllum góðan dag & greinilegt er á öllu að hann skilur að Strætó bs. er fyrst & fremst þjónustufyrirtæki. Vonandi taka fleiri vagnstjórar hann sér til fyrirmyndar.

16122217 10154410714193348 503526755 oÍ Mjódd okkar Breiðhyltinga skildu leiðir dr.´s & Svíans, hvar doksi kallinn hóaði í 177 Iveco Crossway vagninn á leið 4 & hélt með honum rakleitt að Hamraborginni háu & fögru. 

16144624 10154410714823348 2064597884 nHann var þétt setinn vagninn á fjarkanum & vagnstjórinn röskur & skilaði honum tímanlega í tenginguna við aðrar leiðir í Voginum fagra. Vel gert vagnstjóri!

Nú í aukavagninn arka
er á meðal ljúflinga.
Almenningur með annmarka
eltandi Grænlendinga.


Bloggfærslur 19. janúar 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband