Hinn lágstemmdi & lúpulegi dr. Gylforce lét sitt ekki eptir liggja hvað vagna varðar í gær, hvar hann jók leti sína í urmul þeirra. Hvað um það.
Dr. Gylforce gekk í sínum huggulegu hægðum að Hamraborg þeirra Kópvæginga. Hinn alræmdi annatíma var runninn upp aukinheldur sem ofankoma hapði verið talsverð & því ljóst að erfitt yrði fyrir vagnana að halda áætlun. Nema hvað.
Dr.-inn hugði á unaðsferð með leið 4 frá Hamraborg að Mjódd kl. 16:21. Sá vagn kom 14 mínútum of seint, hvorki meira né minna. Á meðan gladdi það hró dr.´s að sjá hinn þýskættaða Mercedes Benz liðvagn á leið leiðanna, leið 1, & var hann auðvitað sneisafullur - en ekki hvað???
Dr.-inn átti unaðslega þrásetu & langdvöl í 168 Karosa vagninum á leið 4 frá Hamraborg að Stútulautarselinu. Þetta var u.þ.b. 35 mínútna rúntur. Vagnstjórinn var greinilega á hraðferð enda tókst honum að vinna upp 5 mínútur því fjarkinn kom níu mínútum of seint við stoppistöð dr.´s.
Í tíðafari sem þessu er mikilvægt að vagnarnir hafi sérakreinar svo þeir tefjist ekki ennfrekar vegna umferðarinnar. Vonandi verður hinu margfræga grettistaki lypt í þá veru nú vor - maður lifandi!
Seinkomur í snjóþekju
sárlega vér kveinum.
Vagninn ætti að ósekju
að aka á sérreinum.
Bloggar | 20.1.2017 | 13:39 (breytt kl. 14:05) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 20. janúar 2017
Færsluflokkar
Bloggvinir
Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.3.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar