Hinn ferðbúni & fjörugi dr. Gylforce hefir verið fyrirferðarmikill & líkt & eilífur augnakarl í fjarkanum - leið 4 - undanfarna daga, hvar hann hefir ferðast ótt & títt milli Mjóddar okkar Breiðhyltinga & Hamraborg þeirra Kópvæginga. Nema hvað.
Dr.-inn gerði sig lítið fyrir nú um kvöldmatarleytið & náði í eina 55 mínútna unaðsþrásetu & langdvöld í leið 4. En ekki hvað???
Doksi kallinn ætlaði sér að skipta um vagn í Mjóddinni & halda í þristinn en leið svo vel á leið 4 að hann hreyfði sig hvergi. Hann hélt út glaður í bragði við Stútulautarselið sitt eptir rúnt frá Hlemmi & bíður nú þess einvörðungu að eiga unaðsstundir með vögnunum - vinum vorum - á morgun. Hvað um það.
Maður lifandi.
Ég ferðast um í fjarkanum
fer hann um með stæl.
Með vinum mínum vögnunum
er veröldin indæl.
Bloggar | 21.1.2017 | 20:15 (breytt kl. 21:16) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 21. janúar 2017
Færsluflokkar
Bloggvinir
Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar