Hinn dagfarsprúði & drýgindalegi dr. Gylforce dreif sig á dögunum á vit vagna eptir mikilfenglegar mínútur í mennta- & menningarsetrinu við Fannborg, hvar hann dvaldi aðallega í leiðum 2 & 3. Nema hvað.
Dr.-inn var heppinn & fékk hinn 16 ára gamla sænskættaða Scania Omnilink á leið 2 frá Hamraborginni. Doksa kallinum telst svo til að vagn þessi sé einn sá elsti í flotanum, ef ekki sá elsti. Hvað um það.
Þegar skyggja tók var röðin aptur komin að hinni annarri leið. Leiðin sú er heldur í styttri kantinum; fer frá Hlemmi eystur um Suðurlandsbraut, um Grensás, Borgarspítala & Kringlu, Hamraborg, Smáralind & tímajafnar sig svo við Versali.
Við hina sílöngu Suðurlandsbraut gengu góðglaðir vagnverjar um borð í tvistinn. Hér voru efalítið ferðamenn á ferð en nokkur hótel & gistiheimili er að finna í kringum Laugardalinn. Höfðu þeir ölföng meðferðis en voru vitaskuld stoppaðir af með það áður en þeir komu inn í vagninn.
Þeir fengu að svolgra miðinum niður í snarhasti & hoppa svo um borð. Vel gert vagnstjóri!
Dr.-inn kvaddi tvist við Grensás & gekk í hægðum sínum að Skeifunni, hvar hann henti sér inn í leið 3 áleiðis upp í Breiðholtið.
"Blessaðir" sagði bílstjórinn
& bauð þeim sæti.
Ekki fara inn með bjórinn
annars verða læti.
Bloggar | 14.10.2017 | 10:29 (breytt kl. 10:30) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 14. október 2017
Færsluflokkar
Bloggvinir
Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.4.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 118892
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar