Ferð til Mekka - alhajja Makkat ...

16880919 10154506565238348 1284083505 oHinn ljúfi & fráleitt lundýgi dr. Gylforce hefir lokið pílsgrímsför sinni til Lundúna, hvar hann komst enn & aptur í hinar sjúklegu álnir & algjöra alsælu. Enn & aptur; já, enn & aptur - maður lifandi!

Nú sem endranær var urmul vagna & vagnverja að finna í þessari makalausu & mergjuðu miðstöð samgangna og viðskipta; fjármála & þjónustu. En ekki hvað???

16910674 10154506564688348 1406965827 oUngi & aldni vagnverjinn ólu manninn einkum í leiðum 9, 10, 27 & 49 enda bjuggu þeir í Kensington hverfi í Vestur-Lundúnum.

250px-OystercardAukinheldur fóru þeir feðgar á fjörurnar við hverfaleiðina 70, sem fer um Suður-Kensington á um 9-11 mínútna fresti virka daga sem & leið 274 þegar þeir tóku hús á dýragarðinum, London Zoo.

Leiðir 9 & 10 aka á um 6-10 mínútna fresti frá morgni til miðnættis & er afar þægilegt að hoppa inn & út úr þeim.

Fyrsta verk vagnverjanna var vitaskuld að fylla á Oyster-strætókortið til þess að geta komist út um hvipp & hvapp í höfuðstað Bretaveldis.

Þessi ferð var unaður í alla staði & getur doksi kallinn vart beðið eptir að komast aptur til hinna bresku vina sina, vagnanna. 

Nema hvað.

Huggulegt ég mjög það hapði
hjá henni Betu beib.
Í Lundúnum með sir & lafði
látlaust í vagna greip.


Bloggfærslur 22. febrúar 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband