Öngvin vegalengd í Voginn ...

download (1)Hinn órafjarlægi ólátabelgur dr. Gylforce óar óhugsandi við því hve stutt er yfir í Voginn fagra frá seli hans & laut; Stútulaut. Maður lifandi!

Dr.-inn valhoppaði um vinalega göngustíga við Selhrygginn & eptir aðeins fimm mínútur var doksi kallinn kominn að stoppistöð leiðar 28 við hinn kópvægska Hvammsveg. Þvílík nautn að vita af henni svo nærri. Þvílík gleði!

Á annatíma iða um Lindir, Kóra & Smára sex Hollendingar af splunkunýrri VDL-gerð á leið 28 sem bætast nú við leiðir 3 & 4 hér við Stútulautarselið.

Magnað - nema hvað!

Yfir í Voginn fagra fór
fimm mínútna spölur.
Vagninn kom úr Mjódd & kór
keyrði mig á útsölur.


Bloggfærslur 7. febrúar 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband