Doksi hefir komið í kring
kynja ýmsum sögnum.
Hefir uppgötvað nýjan hring
með huggulegum vögnum.
Brunnar, Holt & Biskupsgata
Borgar líka spítalinn.
Hjá Reynisvatni mun hann rata
rennilegur vagninn minn.
Hinn reffilegi & raunagóði dr. Gylforce var fráleitt á refilstigu á dögunum, hvar hann tók hús & dekk & drif á leið 18. Maður lifandi.
Á annatíma eru átta vagnar til taks á þessari löngu leið sem leggur úr vör frá Hlemmi, heldur um Bústaðaveg & Grensásveg að Ártúni, ekur austur að Húsasmiðju við Þúsöld, tekur þar hverfin hjá Ingunnar- & Sæmundarskóla, ekur fram hjá Reynisvatni áleiðis í Úlfarársdal, þaðan er svo stefnan tekin á Grafarvog, alla leið að Spönginni. Takk fyrir túkall!
Dr. Gylforce kom sér vel fyrir í hinum frakkneska 134 Citelisvagni & sá á leiðinni Crossway vagnana, 156, 172, 189; Karosavagninn 161 & Citelis númer 120 & 131.
Byggðasamlagið hefir róterað vögnum mikið á leiðum undanfarnar vikur sem eru vonbrigði því doksi kallinn var að vonast eptir því að leiðamerking yrði sett í vagnana. Þá þarf hver vagn að vera nokkur fastur á leið. Nema hvað.
Vonandi tekur Strætó bs. þetta föstum tökum og merkir vagnana að innan svo vér vagnverjar séum alveg klárir á því á hvaða leið vagninn er - en ekki hvað???
Bloggar | 7.3.2017 | 15:43 (breytt kl. 21:33) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 7. mars 2017
Færsluflokkar
Bloggvinir
Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar