Léttar lestir & vagninn snar
líða brátt um engi.
Virtir menn gjörast vagnverjar
vonandi tór´ég svo lengi!
Hinn ókomni & óorðni dr. Gylforce var agndofa, hvar loksins hefir einhver á vegum sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu kynnt Borgarlínuna með myndarlegum hætti.
Samgöngustjóri Reykjavíkurborgar reið á vaðið & hélt gott erindi hjá stjórnmálaflokki einum á dögunum & má segja eptir kynninguna að höfuðborgarsvæðið eigi sér nú viðreisnar von.
Í máli samgöngustjórans kom m.a. fram að ef ekki verður gripið til róttækra aðgerða á næstum árum eða áratugum, stefnir í mikið óefni í samgöngumálum. Fjárfesta þarf gríðarlega í t.d. nýjum vegum, mislægum gatnamótum, endurnýjum bifreiðaflotans, bílastæðum o.fl. Áætlaður kostnaður við öll herlegheitin virðist liggja nærri því að koma á fót léttlestar- & hraðvagnakerfi. Þá eru óátalin umhverfismálin. Maður lifandi.
Þessi óheyrilegi kostnaður kallar á að hugsa almenningssamgöngur upp á nýtt. Það virðast sveitarfélögin hafa gert & koma til með á næstu misserum að kynna fyrir okkur léttlestar- & hraðvagnakerfi á höfuðborgarsvæðinu, hvorki meira né minna.
Áætlað er að íbúum komi til með að fjölga um 70 þúsund manns á næstu 25 árum. Það er meiri íbúafjöldi en í Kópavogi & Hafnarfirði samanlagt!! Nema hvað.
Borgarlínan er metnaðarfullt verkefni á vegum allra sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Það þarfnast mjög góðrar kynningar því hér er um almannafé að ræða & gríðarlega háar tölur í því sambandi. Gleymum þvi ekki.
Yfir&út!
Róttækar aðgerðir í almenningssamgöngum
Bloggar | 18.5.2017 | 16:51 (breytt kl. 17:17) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 18. maí 2017
Færsluflokkar
Bloggvinir
Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.3.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 118882
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar