Doksi vappaði um Vöðin
vesæl líkt& Kórea.
Meðan var rosaleg röðin
rétt hjá Ikea.
Hinn fráleitt gljálausi & gufulegi dr. Gylforce gerði sér góðan dag, hvar hann rannsakaði dekk & drif leiðar 5 í gær. Maður lifandi. Langt var um liðið síðan doksi kallinn fór síðast á fjörurnar við leið þessa. Nema hvað.
Dr. Gylforce kastaði tólfunum frá Mjódd okkar Breiðhyltinga. Hann endaði unaðsrúnt með leið 12 við Hlemmtorgið & einhenti sér inn í leið 5 áleiðis að Norðlingaholti.
Norðlingaholt er hluti af Árbænum; hringlaga hverfi sem í fljótu bragði virðist vel heppnað. Leið 5 er eina leiðin sem gengur um hverfið & býður byggðasamlagið Strætó þar upp á 6 vagna með korterstíðni á annatíma. Ekki slæmt.
Leið 16 ekur aukinheldur um Árbæinn en fer að Moggahöllinni við Hádegismóa en ekki lengra í eysturátt. Hvað um það.
Doksi kallinn sté út úr leið 5 við Olís Norðlingaholti, spásseraði um hverfið & hapði hug á að kynnast norðlingzkum vagnverjum. Ekki var feitan gölt að flá í þeim efnum & hverfið raunar allt heldur doðrað & dofið. Var þá lítið annað að gjöra en að hóa á nýjan leik í fimmuna & halda brott úr hverfi þessu.
Mesta ánægjuefnið við kynni doksa af Norðlingaholti, var þegar sænskættaður Scania vagn kom á leið 5. Hipp-hipp-húrrey!
Doksi kallinn gekk hnarreistur til inngöngu í 107 Omnilink vagninn, hlammaði sér í rauðklæddu sætin & hlakkaði til að hverfa úr hverfi þessu.
Aaaaaa - minn sænskættaði vagn - hér er sko gott að vera!
Bloggar | 25.5.2017 | 14:58 (breytt kl. 16:11) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 25. maí 2017
Færsluflokkar
Bloggvinir
Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar