Ráfaði ég í rútu hvíta
rétt við Borgarbyggð.
Áður náði ég að skíta
aum ferð & viðurstyggð!
Hinn vagntrúaði & vel virti dr. Gylforce var í dag líkt & ungur vagnverji á Strætóminjasafni; ærslafullur en þó einbeittur, hvar hann gat vart beðið eptir því að komast í blágulan vagn á leið 57. Maður lifandi.
Hinn virðulegi vagnverji ól manninn meðal Dalamanna i vikunni en náði ekki að taka leið 59 að þessu sinni - er ekur frá Hólmavík, í gegnum Búðardal & að Borgarnesi - enda um stopular ferðir að ræða á þeirri leið. Hvað um það.
Við Borgarbyggð var spennan nánast orðin óbærileg hvar birtist þá allt í einu hvítur rútuskratti á leið 57!!! Dr.-inn hapði ekki tök á því að bíða eptir næsta vagni & varð að gera sér þann hvíta að góðu frá Borgarnesi að Mjódd, í gegnum Akranes.
Í þeim hvíta var öngvin upplýsingatafla & vart heyrðist í hinni íðilfögru rödd Herdísar Grýlu, hvar hún á að segja oss hvaða stoppistöð er næst. Hneisa!
Sumsé, ferðin varð algjört flopp & dr. Gylforce algjörlega sturlaður líkt & ein myndin ber glögglega með sér.
Það var sorglegt að komast ekki í blágula vagninn loksins þegar tækifæri gafst til. Góðu heilli rakst doksi kallinn á bláan innanbæjarvagn upp á Skipaskaga & hyggst gera honum betur skil í sumar.
Yfir&út!
Efsta mynd: hopbilar.is
Neðsta mynd: akranes.is
Bloggar | 3.5.2017 | 22:52 (breytt kl. 23:09) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 3. maí 2017
Færsluflokkar
Bloggvinir
Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.3.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar