Gagnslaus er vagnslaus dagur ...

16491599_10154452593338348_1245920365_oHinn skjótráði & skörungslegi dr. Gylforce skáskaut sér milli vagna um helgina enda segir hið fornkveðna að gagnslaus sé dagur sá sem vagnslaus er. Nema hvað.

Dr.-inn lék kunnugleg stef úr lautarseli sínu, hvar leiðir 3 & 4 koma upp í kollinn aukinheldur sem auðvelt er að arka í leið 28 hjá Kópvægingum í Salahverfi. En ekki hvað???

Sumarylur er kominn í kropp doksa & frí framundan hjá kallinum. Maður lifandi. Vitaskuld hyggst hann verða ansi gjarn á leiðir næstu daga enda leiðigjarn með afbrigðum. Hvað um það.

Ég í sól & sumaryl
sefa mína strengi.
Ávallt svo með verjum vil
viðdvöl hafa lengi.


Bloggfærslur 3. júlí 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband