Þjóðhátíðarrúnturinn ...

198364667_1411142655950926_7575689856952080630_nÁ þjóðhátíð af stað ég þaut
í þægilegan gulan.
Stjálkaðist úr Stútulaut
í stóra heiminn hverfulan.

Hinn reikuli & ráfandi dr. Gylforce rauk vitaskuld til vina sinna - vagnanna - til að halda þjóðhátíðardaginn hátíðlegan. En ekki hvað???

Unaðurinn náði hámarki á Hlemmtorgi hvar dr.-inn barði alla rafvagnana augum. Leiðir 2, 3, 4, & 18 stútfullar af umhverfisvænum vögnum meðan eymings verktakar á vegum Strætós spúuðu mengun út í andrúmsloftið. Hvað um það.

Í dag heldur dr. Gylforce á vagnavit von bráðar & gott ef ekki mun þá kasta tólfunum. Maður lifandi!


Bloggfærslur 18. júní 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband