Stoppin mín ...

1Stokk´- & Stíflusel
stoppin eru mín.
Ég þar daga dvel
fæ dásemdarsýn.

Dr. Gylforce valhoppaði vitaskuld í vagnana þennan heldur kalda en þó fagra hvíldardag.

Eins & vera ber voru rafvagnarnir í aðalhlutverkinu á leiðum doktors, leiðir 3 & 4 - & jafnvel metanið líka. Maður lifandi!

Eitt var þó hvimleitt. Í sumum rafvögnunum er slökkt á upplýsingatöflunni. Doksi kallinn hefir minnst á þetta áður en fátt virðist gerast í þeim efnum. 

Að mati dr.´s verður byggðasamlagið að kippa þessu í liðinn því þónokkrir vagnverjar stóla á þær til að vita hvunær eigi að fara út úr vagninum.

Yfir&út!


Bloggfærslur 20. júní 2021

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband