Hinn pendli & passasami dr. Gylforce lét pendúl sinn & innri orku leiða sig í vagnana í gær líkt & aðra daga hvar hann hitti fyrir vagna báða er óku hringleiðina númer 35 hér i Voginum. Nema hvað.
Það gladdi hið gamla hró hvar styttri vagnar tóku slaginn á leið 35. Það er affarasælla & heppilegra að hafa slíka vagna á hringleiðinni því á henni leynast mörg þröng gatnamót sem reynast þung í skauti fyrir stóru vagnana. Má í því sambandi nefna gatnamót Valahjalla/Engihjalla & Álfabrekku/Álfhólsveg.
Hinn funheiti & engilsaxneski MAN 305 vagn þeirra Kynnisferða reis upp úr öskustónni & ók líkt & öngvin væri morgundagurinn. Hann hefir fengið um 10 daga hlé frá vígvöllum veganna & virtist bara hress að sjá; öngvin píp eða óþarfa skrölt að heyra. Vagn þessi er aukinheldur einn sá hlýjasti sem dr.-inn hefir setið í sem kemur sér vel um hávetur. Hvað um það.
Hinn vagninn á leið 35 var hinn stutti 156 Heuliez frá Strætó bs. Vagnstýran á honum mátti hafa sig alla við að vera ekki á undan áætlun enda eru optast mun færri vagnverjar í aukaferðinni heldur en í aðal.
Kom þú funi fagnandi
í ferðir um Voginn.
Angló-saxó akandi
eins& leiðtoginn.
Myndir: citybus.piwigo.com
Flokkur: Bloggar | 4.3.2015 | 14:15 (breytt kl. 14:36) | Facebook
Færsluflokkar
Bloggvinir
Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.3.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.