Yfir kaldlynt Kaldasel ...

IMG_0446Hinn brosandi & breiðhylti dr. Gylforce er brátt að komast upp á lag með að gjöra leiðir 3 & 4 að tesu dagsins. Maður lifandi.

Dr.-inn var hvorki haldinn þurrafúa né þröngsýni, hvar hann þjösnaðist inn í 177 Iveco Crossway vagninn á leið 4 síðdegis. Nema hvað.

Strætó bs. er vinveitt & gjöfult við okkur vagnverja seljanna & bjóða upp á 174-180 Iveco vagnana á leiðum 3 & 4. Þetta eru um það bil tveggja ára vagnar með mjúk sæti & munúðarfulla fjöðrun. En ekki hvað???

IMG_0449Dr. Gylforce skipti úr 4 í 3 við Mjódd okkar Breiðhyltinga & hélt rakleitt með 122 Citelisvagninum að Sæbrautinni. Vagnar númer 120-126 eru ennfremur aufúsugestir á leiðum 3 & 4 á annatíma (nema 125 vagninn sem er útbrunninn!) aukinheldur sem 160-162 Karosa vagnarnir eru aldrei langt undan. Hvað um það.

IMG_0450Dr.-inn sté einmitt inn í 160 Karosavagninn á leið 3 við Hlemminn klukkan rúmlega 17. Doksi kallinn var einmana & yfirgefinn í vagninum í fyrstu en það átti svo - góðu heilli - snarlega eptir að breytast eins & myndirnar sýna. Maður lifandi! Meira svona!

Yfir kaldlynt Kaldasel
kúldrandi ég sveima.
Tölti í mitt Teigasel
tek vagninn hér heima.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband