Strætó bs. gefur í ...

15044743_10154171735573348_1121779471_o (2)Hinn ögrandi & örvandi dr. Gylforce er afar ánægður með byggðasamlagið þessa dagana, hvar það hefir augljóslega hafið ímyndar- & markaðssókn. Góðu heilli.

Á samskiptamiðlum hefir Strætó bs. greinilega gefið í & segir oss nú sögur af vagnverjum, starfsmönnum & fleira skemmtilegt. Meira svona! 

Það er mat dr.´s að alltof fáir þekkji til samgöngukortsins svokallaða. Það er árskort í vagnana á aðeins ríflega um 5000 kr. á mánuði. Fyrirtæki verða reyndar að sækja um hjá byggðasamlaginu en það ætti nú að vera auðsótt mál.

Strætó bs. er loksins komið á fleygiferð, reyndar beint í fimmta gír en er þó ekki enn farið að leyfa gæludýr. Það kemur vonandi innan tíðar.

Maður lifandi!

Samgöngukortið

Byggðasamlagið brýnir loks
að bæta við fleiri verjum.
Að ígrunda út fyrir box - 
undir komið einum og hverjum!



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband