Hinn drottnandi & dugmikli dr. Gylforce dreif sig í kvöldferð meðal vina vorra, vagnanna. En ekki hvað???
Dr. Gylforce valhoppaði niður Selhrygginn, hvar hann hugði á góða göngu í Voginum fagra, kennda við kópa. Eptir góðan spöl kom doksi kallinn að sínu gamla mennta- & menningarsetri við Digranesveg, Kópavogsskóla, & fannst upplagt að taka leið 4 þaðan & upp í Mjódd okkar Breiðhyltinga. Nema hvað.
Fjarkinn svokallaði átti samkvæmt áætlun að vera við setrið kl. 21:36. Ekkert bólaði hins vegar á vagninum fyrr en kl. 21:41; fimm mínútna seinkun á ágústkvöldi úr Hamraborg að næstu stoppistöð - það er afar óvenjulegt.
Dr.-inn sat framarlega í fjarkanum sem var hinn þokkalegasti Irisbus Crossway vagn. Vagnstjórinn virtist hafa vin sinn með sér & ræddu þeir af miklum móð um trúmál alla leiðina.
Sá er sat við stýrið taldi mjög mikilvægt að Guð hepði uppsprettur í öllum þorpum landsins eins og hann orðaði það. Fólk gæti þá komið saman daglega & hitt sinn Guð án þess að starfsmenn safnaða hepðu milligöngu.
Það rann upp ljós fyrir doksa. Ef það er einhver sem tefur för vagnanna á fallegu ágústkvöldi, þá er það sjálfur Kristur - en ekki hver???
Dr.-inn skipti um vagn í Mjóddinni, valhoppaði kotroskinn í Stútulautarselið sitt til þess að vera ekki of seinn að fara með kvöldbænirnar.
Vagnstjórinn ók með vin
var efst í huga bænin.
Þau ákölluðu Krist
hafa án efa misst
allt sitt tímaskyn.
Amen.
Flokkur: Bloggar | 17.8.2017 | 23:32 (breytt kl. 23:40) | Facebook
Færsluflokkar
Bloggvinir
Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.3.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.