Prótestarar á pappakössum
með piparúð´ á kinn.
Á veginum var fullt af rössum
komst vagninn hringinn sinn?
Mótmæli eru eðlilegur hluti í lýðræðissamfélagi & ber að virða rétt fólks til þeirra.
En plís, nenniði að hætta að mótmæla við Hlemm & leyfa vögnunum að halda áætlun???
Mynd: Visir/Vilhelm
Bloggar | 12.3.2019 | 00:17 (breytt kl. 00:17) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Vagninn af veginum fauk
verjarnir geðþekku.
Draumarúnti þeirra lauk
í Draugahlíðabrekku.
Fok austur fyrir fjall
Leið 51 lenti í kröppum dansi í kvöld, hvar sá bláguli fauk af veginum í fárviðrinu sem nú geisar á Suðurlandi. Maður lifandi.
Góðu heilli virðist öngvin hafa slasast í ferð þessari & fengu vagnverjar far með einkabílum austur fyrir fjall & gátu komist leiðar sinnar.
Vagninn verður svá sóttur á morgun er veður lægir.
Yfir&út!
Myndir: visir.is
Bloggar | 11.3.2019 | 23:38 (breytt 12.3.2019 kl. 00:23) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þarf að fá þá framselda
er framkvæma slíkt.
Að gjöra unað alelda
- algerlega sýkt.
Svartur dagur í Svíaríki, hvar liðvagn einn fuðraði upp í höfuðborginni & brann til kaldra kola. Góðu heilli var aðeins vagnstjórinn í vagninum & er hann ekki illa slasaður. Maður lifandi!
Vonandi er hér ekki um hryðjuverk að ræða en allar líkur eru á að svo sé reyndar ekki.
En ef ... þá verður dr.-inn brjálaður. Algerlega.
...
Bloggar | 10.3.2019 | 17:32 (breytt kl. 17:34) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Byggðasamlag samtal vill
sem hlýða á vér verðum.
Leiðakerfi sem lykill
að liðlegum ferðum.
Fundur með Strætó
Byggðasamlagið Strætó efnir til opins fundar um málefni strætós við oss vagnverja & alla þá sem hafa áhuga á málefnum er snýr að vögnunum, vinum vorum.
Þessi fundur er fagnaðarefni en hann verður haldinn í höfuðstöðvum Strætós að Þönglabakka fimmtudaginn 28. mars kl. 17:30.
Skyldumæting - allavega fyrir dr.-inn, maður lifandi!
Bloggar | 7.3.2019 | 16:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sól, logn & mengunarlopt
leikur oss nú grátt.
Á næstunni atvikast opt
ef við gerum fátt.
Svifrykssvívirða
Svifrykið lætur nú á sér kræla á höfuðborgarsvæðinu & eru allir hvattir til þess að hvíla einkabílinn sinn & halda á vit unaðsferða meðal vagnanna. Nema hvað.
Illu heilli tókst dr.-num nú ekki að taka vagninn í morgun; karleplið svaf yfir sig & varð að notast við óvininn ógurlega, einkabílinn.
Doksi kallinn reyndi að lágmarka akstur & vonar að þetta komi ekki aptur fyrir í bráð. Maður lifandi.
Bloggar | 5.3.2019 | 21:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Í bössinum ég tók mér blund
bærilegan lúr.
Genginn næstum á feðra fund
í fínasta túr.
Líkt & endranær beið dr. Gylforce öngvra boða eptir að hafa fullmettað ungviðið af vizku & vísdóm í mennta- & menningarsetrinu við Kársnes & hélt á vit vagna. En ekki hvað???
Eitthvað hafa nú ungmennin sogað orkuna úr doksa kallinum, hvar hann var varla kominn inn í leið 3 við Mjódd okkar Breiðhyltinga er hann steinsofnaði!
Eptir góðan hring (eða hringi!) í unaðs Iveco Crossway vagni númer 157 rankaði dr.-inn úr rotinu rétt við Mjóddina, staulaðist út úr vagninum & líklega búinn að fara niður í bæ & aptur til baka!
Samgöngur | 4.3.2019 | 18:26 (breytt 5.3.2019 kl. 09:23) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hjá verktökum eru verkföll senn
verjarnir lenda í klípu.
Verkalýðurinn & valdsmenn
verð´að fá sér friðarpípu.
Verkföll og vesen fyrir vagnverja
Hinn vergjarni en þó varkári dr. Gylforce líst lítt á boðuð verkföll, hvar það mun koma niður á unaðsferðum með vinum vorum, vögnunum. Nema hvað.
Ekki munu þó allar leiðir lognast út af. Einungis verktakar hjá Strætó eru á leið í skæruverkföll en þeir sjá um ca. 50% af öllum akstri á höfuðborgarsvæðinu. Hvað um það.
Til að mynda verður ekki feitan gölt að flá meðal hverfaleiða hjá Strætó ef af verkfalli verður. Leiðanúmer 21-44 munu verða fyrir barðinu á vinnudeilunni aukinheldur sem leiðir 11-17 koma til með að lenda í kröppum dansi.
Vonandi ná samningsaðilar að fá sér vöfflur í Karphúsinu svo ekki komi til þessara aðgerða. Hinsvegar eru nú ekki miklar líkur á því - maður lifandi!
Samgöngur | 3.3.2019 | 23:27 (breytt kl. 23:48) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Í sælunni suðurfrá
sæmilegar leiðir.
Mislita minz þar sá
sem misskilning útbreiðir.
Hinn sólbrenndi & sótsvarti dr. Gylforce hefir nú séð betra strætókerfi en í Orlando borg. Maður lifandi!
Í borginni voru um 34 strætisvagnaleiðir en illu heilli náði doksi kallinn aðeins að komast í kynni við tvær þeirra, leiðir 8 & 42. Stakt fargjald var um 2 dollarar eða um 240 krónur. Vitaskuld var hægt að kaupa dagskort, 7 daga kort og 30 dagakort en dr.-inn hapði öngvin not fyrir þau þarna.
Tíðnin á leiðum 8 & 42 var svona ca. um 15-30 mínútur. Leið 8 var ágæt, brunaði um borgina þvera & endilanga & fór meðal annars að stórri verslunarmiðstöð sem kollegum doksa leiddist nú ekki.
Aukinheldur var sérstakt að alls konar litir geta verið á hverri leið. Þannig fór doksi kallinn í grænleita áttu, fjólubláa & eina gráa! Það er nokkuð svalt að gjöra þetta en heldur ruglingslegt fyrir nýjan & áttavilltan vagnverja eins & doktorinn! Hvað um það.
Dr.-inn sat í leið 8 töluvert en í hvert sinn sem hann ætlaði út, fara yfir götuna & taka leiðina tilbaka blasti við honum það sem sjá má á myndinni hér neðst.
Bílar. Akreinar. Fleiri bílar. Fleiri akreinar. Orlando stendur greinilega undir nafni sem bílaborg þótt hún sé nú ekki með þeim verstu þar vestra.
Yfir&út!
Bloggar | 1.3.2019 | 17:43 (breytt kl. 17:51) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar