Jólavagninn á vachtinni ...

26108118 10155342327728348 937849005 oÁ tveggja tíma fresti
tímanlega fer.
Hann er einn sá besti
fyrir okkur hér.

Hinir virðulegu vagnverjar i Stútulautarselinu héldu vitaskuld á vit vagna í gær, hvar þeir höpðu aðeins hug á vagni einum sem nefndur hefir verið jólavagninn. En ekki hvað??

Byggðasamlagið hefir skreytt einn úr flota sínum & breytt honum í sannkallaðan jólavagn. Góðu heilli var vagninn á vachtinni á leið 4 annan dag jóla, hvar við vorum ekki lengi að grípa gæsina!

Dr.-inn spottaði vagninn út en það tekur hvern vagn um 2 klukkustundir að aka alla leið 4. Jólavagninn sást um kl. 11:40 við Selin sífögru & biðu feðgarnir því öngvra boða; valhoppuðu út í skýlið rétt fyrir kl. 13:40. & viti menn - jólavagninn kom askvaðandi.

& ekki urðu vagnverjarnir fyrir vonbrigðum. Maður lifandi. 

Eptir unaðshring kallaði sá eldri hátt & snjallt: Vagnar, vinir mínir, keyriði okkur feðga heim!

Sjón er ávallt ríkari sögunni - kíkið á hann á linknum - JÓLAVAGNINN




Gleðileg jól vagnverjar!

Bráðum kemur Benzinn okkar
eða bljúgur Ivecó.
Inn í þeim er alltaf fallegt;
afslöppun & hugarró.

Bráðum kemur Benzinn okkar
eða brosleg Scania.
Inn í þeim er alltaf fallegt:
öngvin fokking manía!


Hvurnig vagn jú veit nú öngvinn
sem vísa mun leiðina heim.
En eitt er víst að alltaf verður
ákaflega ljúft í þeim.

1503904_10151877599433348_1558727499_n


Á dánardegi dýrlings ...

28Hinn dásamaði & drottnaði dr. Gylforce hélt vitaskuld upp á dánardag hins heilaga Þorláks, sem ku vera okkar eini dýrlingur & hélt á vit vagna. En ekki hvað???

Dr.-inn gekk að þessu sinni að sínu nýja Mekka, Mjóddinni, en fann þar hvörgi þá kæstu, hvar hann hélt áfram í miðborg okkar Reykvíkinga með vinum vorum - vögnunum. Nema hvað.

Dr.-inn sporðrenndi Tindabikkjunni & lagði svo leið sína með leið 3 að Mekka, hvar hann langaði að taka leið 28.

Töluverðar breytingar verða á leið 28 þann 7. janúar þegar vagninn hættir að aka niður í Mjódd. Leið 2 mun taka við kefli hans & verður fróðlegt að sjá útfærslu byggðasamlagins á breytingum á leiðum 2 & 28 í efri byggðum Kópavox. Hvað um það.

Enda þótt langt sé í þann sjöunda er nokk ljóst að þetta var síðasta ferð doksa kallsins með leið 28 frá Mjóddinni. Eins & vera ber kom Hollendingurinn fljúgandi - VDL-vagn frá Kynnisferðum - & sýndi doksa efri byggðir, hvar dr.-inn þrýsti þéttingsfast - en þó fimlega - & umfram allt - tímanlega - á stanzrofann & hélt glaður í bragði í Stútulautarselið sitt.

Amen.

Ég hélt í mína hinstu för
með Hollendingi vænum.
Eptir kæsta með hnoðmör
- helvíti grænum!


Unaður á aðventu ...

22 12aHinn hátíðlegi & háfleygi dr. Gylforce var hugsi & hissa er hann hélt á vit vagna í jólastúss þennan annars ágæta frjádag, hvar hann sá hinn gamla & sænskættaða 188 Volvo-vagn á leið 3.

Dr.-inn beið öngvra boða & sté inn í vagninn. Greinilegt var á öllu að vagninn hefir ekki verið á vígvöllum veganna um nokkurt skeið. Sætin voru köld & rök en öngvu að síður var unaður að sitja í sænska stálinu. 

22 12Dr.-inn tók marga aukahringi með þessum gamla jálki & raulaði vitaskuld jólalög í tilefni aðventunnar.

Nema hvað.

22 12cVagninn beygir, vagninn beygir
vagnverjar þá halda sér.
Doksi segir, doksi segir:
Dýrlegt er að vera hér.

Hæ hæ, ég hlakka til
hossast um bí og borg.
Björt ljós á Bus-inn vil
brunandi um Lækjartorg.


Tæpur eptir tjútt & trall ...

volvo-rafvagnÞúsari tæpur eptir þrusustuð
þýt ég með næturvagni.
Í þeim gula ég er sem Guð
ganga þeir fyrir rafmagni?

Hinn gæfuríki & glaðhlakkalegi dr. Gylforce hefir gengið nokk hægt & lítt inn um vagnanna dyr undanfarið, hvar hann hefir hapt í önnur dekk að dunda. Nema hvað.  

Þjónustuaukning 2018

Það er hinsvegar tilhlökkun & tjútt í loptinu hjá doksa kallinum, hvar nokkuð veigamiklar breytingar verða á þjónustu Strætó um áramótin. 

Þar ber hæst að nefna gjaldskrána en það hefir vakið gjörhygli Gylforce-ins að það mun kosta 920 kr. í næturvagnana úr miðbænum um helgar, en þó aðeins fyrir þá sem staðgreiða ellegar eiga miða. Aðrir fá annað verð & lægra.

Hví ætli það sé??? Og hvar eru rafmagnsvagnarnir níu?!?!?!?! Spyr sá sem eigi veit.

Amen.


Krankleika kennir ...

24989571 10155298904248348 111978073 nKominn er úr hverri spjör
krankleiki hann hissir.
Ljúfi doksi lagstur í kör
af leiðum sínum missir.

Hinn vagnmáttugi & veraldarvani dr. Gylforce er með böggum hildar, hvar hann hefur lagst í kör helgi þessa & kemst eigi út á meðal vina sinna, vagnanna. 

Í vikunni, þegar heilsunnar naut við, hélt doksi kallinn á vit vagna. Það gladdi hans gamla hró að sjá grænleit jólaljós í einum góðum Irisbus Karosa á leið 3.

Dr.-inn sté inn í þristinn við Stútulautarselið sitt & ætlaði einungis með honum að Mjódd okkar Breiðhyltinga. 

Það breyttist snarlega þegar jólafílingurinn umlék doksa kallinn & hélt hann sönglandi jólalög alla leið að endastöð við Hlemmtorg með vagninum, sér til ánægju - öðrum til ama.

Nema hvað.



Norðlenskir í neyð ...

Í pásu verður brátt í brók
í bobba er nú drullan.
Öngvinn þrífur, algjört djók
með endaþarminn fullan.

Öngvinn þrífur nyrðra



Vagnar & verjar ...

24819173_10155291102818348_1576417497_oAf æðstu stjórn hef illan keim
illir siðir grassera.
Vinstri-græn nú gjörast leim
gott að vera EKKI í þeim.
Hvað er hún eiginlega að gera
í umgengni með þeim tveim???

Hinn samhæfi dr. Gylforce stillti saman strengi sína í gær, hvar hann hélt loks á vit vagna úr Hamraborg þeirra Kópvæginga.

Dr. Gylforce hélt með hinum fagra en sérstaka jólaálfavagni á leið 4, sem ku vera númer 177, frá Voginum fagra að Hlemmi. Langt var síðan doksi kallinn spísporaði & valhoppaði um víðar lendur Hlemmtorgsins. Maður lifandi!

20140831123320 47435cd4Að mati Stútulautardoksa bar ekki alveg jafn vel í veiði, hvað heimferðina snerti. Dr.-inn einhenti sér í leið leiðanna - enda yfirleitt urmull af eðalvögnum þar á ferðinni.

Að þessu sinni fékk dr.-inn 137 Irisbus vagninn en þessi rúmlega 5 ára jálkur heillar doksa ekki mikið. Það er aukinheldur merkilegt hve mikill munur er í gæðum fyrir okkur vagnverjanna á Iveco Crossway & Irisbus Crossway. Hvað um það.

Dr.-inn var á leið snemmindis & gladdi það hans gamla hró hvar vagninn varð sneisafullur af menntskælingum við Lækjargötu enda prófatörn á þeim vígstöðvunum. En ekki hvað???






Neðsta mynd: Fenginn af The Citybus Collection,  http://citybus.piwigo.com/uploads/s/w/v/swv6019f87//2014/08/31/20140831123320-47435cd4.jpg



Árla morguns í laut stúta ...

16491599_10154452593338348_1245920365_oEg gekk einn morgun árla
út í skýlið hér.
Dagur gaf doksa varla
dýra birtu af sér.
Í för með fögrum verjum
ferðast gerði ég þá,
furðu fagur var einn sá.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband