Rauðka á reinum ...

18815870_10154782743738348_603848576_n (1)Í síðdeginu reynist sein
sú leið er ég vil fá.
Á reinunum er rauðka ein
- rusl frá Ess-bé-ká!

Hinn eldhúsdagsfarsprúði & indæli dr. Gylforce iðaði í skinni sínu síðdegis, hvar hann fór sinn hepðbundna rúnt frá Stútulautarseli sínu áleiðis að miðbæ okkar Reykvíkinga. 

Dr. Gylforce sat í þægilegum 12 ára gömlum Irisbus Karosa á leið 4 þegar hann rak í rogastans við Suðurver. Þá skeiðaði leið 55 fram úr fjarkanum & var hann rauður á lit!!!

Strætisvagnar á höfuðborgarsvæðinu bera tvo liti; gulir/appelsínugulir & blágulir. Öngvir vagnar eru rauðir. Punktur.

Þetta langlundargerð í garð verktaka er óþolandi af hálfu Strætó bs. Í samningum við þá, sem vilja taka þátt í almenningssamgöngum, skal kveða skýrt á um að hafa vagnana í réttum litum. Skárra væri það nú! 

Vonandi er verktakinn í suðri, SBK, beittur dagssektum fyrir þennan rauða vagn.


Sumar leiðir verða sumarleiðir ...

Hinn söggugi & sumarlegi dr. Gylforce veit að frá & með sunnudegi þessum hefst sumaráætlun byggðasamlagsins. Það þýðir þónokkrar breytingar á nokkrum leiðum.
 
Jákvæðu fréttirnar í áætlun þessari er að leið 1 heldur 10 mínútna tíðninni á annatíma; leiðir 3, 4, 6 & 12 verða aukinheldur á kortersfresti. 

Það sem hryggir hró dr.´s er að leiðir 2, 5, 11, 13, 14, 15, 18, 24, 28 & 35 verða á hálftíma fresti. Þetta er nokkuð mikil skerðing en svipuð því sem var í fyrra, illu heilli.

Vonandi verður framtíðin sú að ekki þurfi að hafa sérstaka vetrar- & sumaráætlunir hjá vinum vorum, vögnunum.

Með tilkomu aukinna ferðamanna & metnaðarfullu markmiði um að 12% allra ferða á höfuðborgarsvæðinu verði með strætó, má gera ráð fyrir því að slíkar breytingar verði óþarfar. 

Dr.-inn elur þá von í brjósti að þetta komi til með að breytast á næstu fimm árum & þá hætti sumar leiðir að vera sumarleiðir.


Leifsstöð-Laugavegur ...

reykjaneslestin_640Á Suðurnesin brunum brátt
eptir brautarteinum.
Tökum´enni með sæmd & sátt
með sínum línum beinum.
 
Hinn tekníski & teinrétti dr. Gylforce lagði ótt & títt við hlustir á Morgunvakt Rásar 1 í morgun, hvar rætt var um fyrirhugaða Fluglest frá Keflavík til Reykjavíkur.

Verkefnið er afar spennandi, ekki síst fyrir þær sakir að fjármögnun mun nánast alfarið vera í höndum einkaaðila en vitaskuld er verkefnið unnið náið með SSH, Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Nema hvað.

Það verður borgarlínanaukinheldur mikilvægt að láta Fluglestina ríma vel við fyrirhugaða Borgarlínu. Þess vegna er ekki alveg ljóst á þessari stundu hvar Fluglestin mun hafa endastöð sína í Reykjavík. Hinsvegar er skýrt að ferðatíminn milli Leifsstöðvar & Reykjavíkur verður um 18-20 mínútur og verðið fyrir stakan miða um 5000 kr. á núverandi verðlagi. Það er um tvöfalt dýrara en Flugrútan en hafa verður í huga að lestin verður miklu fljótari í förum. Hvað um það.

Ef áætlanir ganga upp verður Fluglestin komin á skrið eftir um 8-10 ár & mun marka mikilvæg spor fyrir okkur inn í framtíðina - en ekki hvað???

lest fyrir gest - og líka okkur!


M
yndir: vf.is og mbl.is


Á vappi um Vöð ...

Doksi vappaði um Vöðin
vesæl líkt& Kórea.
Meðan var rosaleg röðin
rétt hjá Ikea.

Hinn fráleitt gljálausi & gufulegi dr. Gylforce gerði sér góðan dag, hvar hann rannsakaði dekk & drif leiðar 5 í gær. Maður lifandi. Langt var um liðið síðan doksi kallinn fór síðast á fjörurnar við leið þessa. Nema hvað.

Dr. Gylforce kastaði tólfunum frá Mjódd okkar Breiðhyltinga. Hann endaði unaðsrúnt með leið 12 við Hlemmtorgið & einhenti sér inn í leið 5 áleiðis að Norðlingaholti. 

Norðlingaholt er hluti af Árbænum; hringlaga hverfi sem í fljótu bragði virðist vel heppnað. Leið 5 er eina leiðin sem gengur um hverfið & býður byggðasamlagið Strætó þar upp á 6 vagna með korterstíðni á annatíma. Ekki slæmt.

Leið 16 ekur aukinheldur um Árbæinn en fer að Moggahöllinni við Hádegismóa en ekki lengra í eysturátt. Hvað um það.

5aDoksi kallinn sté út úr leið 5 við Olís Norðlingaholti, spásseraði um hverfið & hapði hug á að kynnast norðlingzkum vagnverjum. Ekki var feitan gölt að flá í þeim efnum & hverfið raunar allt heldur doðrað & dofið. Var þá lítið annað að gjöra en að hóa á nýjan leik í fimmuna & halda brott úr hverfi þessu.

eiMesta ánægjuefnið við kynni doksa af Norðlingaholti, var þegar sænskættaður Scania vagn kom á leið 5. Hipp-hipp-húrrey!

5cDoksi kallinn gekk hnarreistur til inngöngu í 107 Omnilink vagninn, hlammaði sér í rauðklæddu sætin & hlakkaði til að hverfa úr hverfi þessu.

Aaaaaa - minn sænskættaði vagn - hér er sko gott að vera!


Blágula bjútíið ...

straetobill-12772Doksi bísperrtur í blágulum
í Borgarnesi áði.
Stoltur í ferðum ei stopulum
strax tilbaka hann þráði.

Hinn derringslegi & drambláti dr. Gylforce dró seiminn & var dragmáll mjög þrátt fyrir að komast í unaðsrúnt meðal vina vorra - vagnanna. & var sá rúntur ekki af verri endanum - maður lifandi!

Dr. Gylforce gerði sér far með einum blágulum frá Mjódd okkar Breiðhyltinga að Borgarbyggðinni.

20170520_175154Í sumar mun byggðasamlagið bjóða upp á sjö ferðir virka daga frá Borgarnesi að höfuðborginni; tvær á morgnana & fimm síðdegis- & kvöldferðir.

Það verður unaður að notast við vagna þessa þegar sól er hæst á lopti.

Yfir&út!


Höfuðborgarbúar að heltast úr lestinni...???

fr_20170516_062005Léttar lestir & vagninn snar
líða brátt um engi.
Virtir menn gjörast vagnverjar
vonandi tór´ég svo lengi!

Hinn ókomni & óorðni dr. Gylforce var agndofa, hvar loksins hefir einhver á vegum sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu kynnt Borgarlínuna með myndarlegum hætti.

Samgöngustjóri Reykjavíkurborgar reið á vaðið & hélt gott erindi hjá stjórnmálaflokki einum á dögunum & má segja eptir kynninguna að höfuðborgarsvæðið eigi sér nú viðreisnar von.

Í máli samgöngustjórans kom m.a. fram að ef ekki verður gripið til róttækra aðgerða á næstum árum eða áratugum, stefnir í mikið óefni í samgöngumálum. Fjárfesta þarf gríðarlega í t.d. nýjum vegum, mislægum gatnamótum, endurnýjum bifreiðaflotans, bílastæðum o.fl. Áætlaður kostnaður við öll herlegheitin virðist liggja nærri því að koma á fót léttlestar- & hraðvagnakerfi. Þá eru óátalin umhverfismálin. Maður lifandi.

Þessi óheyrilegi kostnaður kallar á að hugsa almenningssamgöngur upp á nýtt. Það virðast sveitarfélögin hafa gert & koma til með á næstu misserum að kynna fyrir okkur léttlestar- & hraðvagnakerfi á höfuðborgarsvæðinu, hvorki meira né minna. 

Áætlað er að íbúum komi til með að fjölga um 70 þúsund manns á næstu 25 árum. Það er meiri íbúafjöldi en í Kópavogi & Hafnarfirði samanlagt!! Nema hvað.

20160227_150057Borgarlínan er metnaðarfullt verkefni á vegum allra sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Það þarfnast mjög góðrar kynningar því hér er um almannafé að ræða & gríðarlega háar tölur í því sambandi. Gleymum þvi ekki.

Yfir&út!


Róttækar aðgerðir í almenningssamgöngum


Sérhver er hver ...

IMG 2712Volgar laugar, voldugur hver
vafrar doksi um pleisið.
Í þann blágula fjótt svo fer
finnst þetta ekki beysið.

Hinn mallandi & moðkenndi dr. Gylforce mjakaði sér í einn af blágulu vögnum landsbyggðarinnar, hvar hann loksins loksins fékk réttu litablönduna en ekki einhvern hvítan rútuskratta. Hipp-hipp-húrrey!!! Maður lifandi!

408Dr. Gylforce fór með ungviðið úr mennta- & menningarsetrinu við Kársnes & kynnti fyrir því bæ einn fyrir austan fjall. Doksi kallinn hringsólaði með ungana í leið 35 áleiðis upp í Hamraborg & bað þess heitt að leið 36 verði endurvakin. 

Frá Hamraborg þeirra Kópvæginga hélt hópurinn með leið 4 að Mjódd okkar Breiðhyltinga. Þegar í Þönglabakkann var komið blasti blágula djásnin við doktornum. Mmmmmm.

Dr. Gylforce brunaði með honum að Hveragerði & fékk svá sama vagn til baka.

Unaður.


Glæstir á götum ...

18471924_10154733361663348_1613213273_oGlæstir eru á götum
í gulum fínum fötum.
Sterk eru drif & dekk
& doksi með - tjékk!
Vagninn ávallt veit
um vagnverjadeit.

Hinn mikli velunnari vagnanna, dr. Gylforce, hefir farið mikinn á vígvöllum veganna með vinum vorum, vögnunum - en ekki hvað???

Dr. Gylforce kom eitthvert kveldið ofanaf með leið 4 niðurúr & ætlaði innúr en alls ekki að æða framfrá. Það vakti gjörhygli Gylforce-ins að báðar leiðirnar sem hann hugðist taka voru ómerktar á endastöð. Er það eðlilegt???

Dr.-inn beið eptir leið 11 í Mjóddinni & fékk nýjasta vagn þeirra Fjarðarmanna, eðal Iveco Crossway sem bar öngva merkingu fyrr en vagnstjóri kom, ræsti vagninn & ók af stað. Af hverju er ekki hægt að hafa vagninn með leiðanúmeri framan á svo vér vagnverjar sjáum betur hvar hann er? Stundum er það svo, stundum ekki. Hví þetta ósamræmi???

18452331_10154733362473348_1405239922_oÞað var sama upp á teningnum við Hlemminn. Þar var leið 4 ómerkt eins & myndin sýnir. Rúnturinn var hinsvegar unaðslegur, hvar doksi kallinn skipti svo snarlega um vagn í Þönglabakkanum & hélt með leið 3 að Stútulautarseli sínu.


Tvist með tvist ...

20747368116_c83549d199_bDoktor Gylforce tvistinn tók
tjúttaði á hans vit.
Úr Sölum yfir í Sel er djók
sömu nánast hnit.

Hinn dáðlausi & dæsni dr. Gylforce drattaðist á vit vagna í strekkingi gærdagsins, hvar hann komst í tæri við hina geðþekku & stuttu leið 2. Maður lifandi.

Dr. Gylforce sté inn í hina aðra leið við Hlemmtorg okkar Reykvíkinga. Doksi kallinn fýsti að vita hve lengi hann yrði frá efri byggðum Kópavogs yfir í Seljahverfið, þ.e.a.s. með því að ganga úr Salahverfinu yfir í Selin sælu.

18425598_10154731391663348_662187484_n (1)Í upphafi ferðarinnar vorum vér vagnverjar fáir; óðara fjölgaði í Irisbusvagninum hvar hann var orðinn smekkfullur á leið upp í Hamraborgina háu & fögru. Dr.-inn hélt för áfram enda á leið í 201 að þessu sinni.

Dr. Gylforce þrýsti þéttingsfast, en þó fimlega - & umfram allt tímanlega - á stanzrofann í leið 2 rétt áður vagninn áði við Ársali. 

18426229_10154731390778348_30638254_oVið tók 7-8 mínútna labb yfir í fegursta Stútulautarselið hér á landi á - & þótt víðar væri leitað. 

Yndislegt.

Yfir&út!



Baulið um Borgarlínuna ...

LLLestBorgarlínan á baukinn fær
bruðl verður hver metri.
"Stjórnvöld eru orðin ær"
er endurtekið af Pétri.

Hinn létti & lesni dr. Gylforce hefir fylgst vel með umræðunni um léttlesta- eða hraðvagnakerfi höfuðborgarsvæðisins er fengið hefir nafnið Borgarlína. 

Að öllum likindum er hraðvagnakerfi ódýrari kostur. Það þýðir að liðvagnar - jafnvel með tvo liði - aka um á sérmerktum akreinum & leysi strætisvagnaleiðir 1 & 6 af hólmi eða því sem næst. Hér er um mjög viðamikið verkefni að ræða & kostnað upp á fleiri tugi milljarða, hvorki meira né minna. Hvað um það.

fr_20170320_058512Ljósvakamiðill einn hér í borg hefir mjög athyglisverðan símatíma á morgnana; línan er laus er þátturinn nefndur en ætla mætti að skrúfan sé ansi opt laus þar líka, maður lifandi. Flestir sem hringja inn finna þessari Borgarlínu allt til foráttu en tala aukinheldur um hve illa hún hefir verið kynnt almenningi.

Er ekki nær að bíða eptir kynningu á Borgarlínunni áður en hlustendur gefa henni á baukinn? Doksi kallinn hepði nær haldið það.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband