Hinn eldheiti & unaðslegi dr. Gylforce hyggst kynna sér dekk & drif á Íberíuskaga næstu daga.
Maður lifandi. Nema hvað. Hvað um það - en ekki hvað???
Bloggar | 27.7.2017 | 15:32 (breytt kl. 15:34) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hinn nægjusami & notalegi dr. Gylforce hefir notið hennar Reykjavík undanfarið & reynt að hitta fyrir bláa metanvagninn & hinn spánnýja vagn feminsta, KÞBAVD.
Dr. Gylforce þarf ekki að leita langt til þess að komast í kynni við feministavagninn, hvar hann ekur leið 3 sem er jú í grennd við Stútulautarselið hans góða. Nema hvað.
Hinsvegar hefir doksi kallinn alveg misst af bláa metanvagninum & er það miður. Hvað um það. En að öðru.
Hinn 13. ágúst næstkomandi boðar byggðasamlagið að vetraráætlun þess hefjist. Dr. Gylforce bíður í nokkru ofvæni eptir henni, hvar hann á von á að sérfræðingastöllurnar, sem starfa á skipulagssviði samlagsins, séu með réttu lausnirnar á mörgum leiðum í kerfinu.
Þar nægir að nefna leiðir 2, 6, 18, 21, 23 (aukinn akstur), 28 & 31. Þá þarf að skoða leið 14 sem á mjög erfitt með að halda áætlun, eins & reyndar fleiri leiðir.
Þetta verður fróðlegt - maður lifandi!
Breyttar ferðir, betri leið
bætast við í vetur.
Samlag byggða magnar seið
sjáum við hvað setur.
Bloggar | 24.7.2017 | 16:47 (breytt kl. 16:53) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Komust femínistar á flug
með forljótum strætó.
Unnu hjörtu bæði & hug
hjá verjunum - & þó!
Karltetrið dr. Gylforce hefir kappkostað & reynt eptir bestu getu að taka jákvætt í vagninn sem bar sigurorð í hinni þrælskemmtilegu keppni sem bar heitið Meistaraverk hjá byggðasamlaginu Strætó.
Áður en lengra er haldið vill doksi kallinn þakka markaðsdeild byggðasamlagsins fyrir þetta frábæra framtak. Meira svona!
Það er greinilegt á öllu að þeir sem stýra markaðs- & ímyndarmálum Strætós kunna sitt fag. Vonandi verður þessi keppni til frambúðar & vill dr.-inn hvetja markaðsmennina til þess að taka "Eurovisionfyrirkomulag" á þetta á næsta ári, þ.e. að hafa kosningu en líka dómnefnd svo smölunin sé ekki aðalmálið eins & raunin varð að þessu sinni. Hvað um það.
Þegar dr. Gylforce sá vinningsvagninn í fyrsta sinn meðan á keppninni stóð, las hann skammstöfunina KÞBAVD sem KÞBRAUÐ; fannst skrýtið að ekki skyldi vera bil á milli Þ og B & hélt hreinlega að þetta væri eitthvert bakarí, KÞ BRAUÐ. Til að sannfæra doksa ennfrekar um þetta sá hann myndirnar fyrir sér sem kleinuhringi! Dr.-num fannst vagninn hinsvegar ljótur - & það hefir ekkert breyst, því miður.
En feminístar, til lukku með sigurinn, það verður allra athyglivert að taka 180 Iveco vagninn með alla þessa frasa á sér.
Yfir&út!
Meistaraverkurinn
Bloggar | 22.7.2017 | 23:00 (breytt 24.7.2017 kl. 13:24) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Snemmindis í gær, er sólin ei rýður, varð dr. Gylforce var við vagninn bláa í borginni; dreissugur með dekk sin & drif, bláa toppinn tindrandi, stóra glugga geislandi; tignarlegur & gljáandi. Maður lifandi!
Vagninn var á leið 3 sem var einkar hagstætt fyrir dr.-inn. Hér er á ferð bláleitur Iveco metanvagn sem byggðasamlagið hefir til reynslu & er afar spennandi að sjá.
Það væri gaman að hafa gömlu stofnleiðirnar leiðir 1-6, með öðrum lit en hinar & hví þá ekki þessum??? Hvað um það.
Illu heilli komst dr.-inn ekki um borð í þennan vagn að þessu sinni en mun vitaskuld einhenda sér í metanið um leið & hann sér hann á leið - en ekki hvað???
Bloggar | 21.7.2017 | 17:52 (breytt kl. 22:50) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Í blíðunni var blíðlátt
blikar sól í gili.
Ljóðagáttin lokast brátt
lýkur hér í bili.
Hinn löðurmannlegi en þó ávallt ljúfi dr. Gylforce lét ekki segja sér það tvisvar að halda á vit vagna í glaðasólskininu. Ó, nei. Að þessu sinni komst doksi kallinn í kynni við tvær eðalleiðir sem hann fer alltof sjaldan í, alltof sjaldan. Nema hvað.
Dr.-inn sýndi sín kunnuglegu spil í vagnavali frá selarlauti sínu, hvar hann fór í Mjódd okkar Breiðhyltinga.
Doksi kallinn vildi til Hlíða í mikilvægum erindagjörðum. Vitaskuld er borðleggjandi að taka leið 3 - sem & doksi gerði - & halda með henni beina leið að Stakkahlíðinni. En ekki hvað???
Á leiðinni hittum við fyrir hinn sænskættaða - en síþreytta - sextán ára gamla 102 Omnilink vagn á leið 6. Hann hapði staðnæmst á forgangsrein vagnanna & tók vagnstjórinn vagnverjana úr sexunni upp í enda báðar leiðir á sömu leið.
Frá Hlíðunum hóaði dr. Gylforce í leið 55. Já, vagnverjar, dr.-inn einhenti sér í blágula vagninn í miðri borginni. Þvílíkur eðall!
Dr. Gylforce hélt með dásemdinni að Ásgarði þeirra Garðbæinga. Langt er síðan hann hefir spígsporað um þær koppagrundir. Maður lifandi!
Dr. Gylforce sá glitta í leið 24 við Ásgarð & þá var þetta ekki spurning. Málið dautt!
Tímaáætlun leiðar 24 er tæp frá Ásgarði að Mjódd okkar Breiðhyltinga. Vonandi er hún í endurskoðun en ætla má að töluverðar breytingar verði á leiðakerfinu í lok ágúst, auk fjögurra nýrra rafmagnsvagna sem líklega verða allir settir á leið 4 til að byrja með :)
Meira síðar.
Bloggar | 10.7.2017 | 19:43 (breytt 11.7.2017 kl. 11:08) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gersemin sjálf, gullvagninn, var á dögunum á leið 4.
& Gylforce-inn kvað - nema hvað!
Ég sá gulldreginn ólman renna
upp með einum Breiðholtsbing,
fjör sást á mínu brjósti brenna
brunaði með vagni hring,
eldfrár geystist eilíft fagn,
unaðslegur gullinvagn.
Bloggar | 9.7.2017 | 22:25 (breytt kl. 22:32) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Settist í hina seytjándu leið
voru þar Söguaðdáendur.
Leið þessi ávallt góð & greið
& Gylforce-inn kenndur.
Hinn vífni & vígalegi Gylforce var ekki lengi að halda á vit vagna, hvar hann hitti fyrir að þessu sinni leið 17 í Mjódd okkar Breiðhyltinga. Nema hvað.
Hin seytjánda leið ekur sex daga vikunnar með 30 mínútna tíðni. Færi hún hvíld á sjálfum hvíldardeginum - illu heilli.
Það væri gaman ef leiðin yrði með 15 mínútna tíðni líkt & flestar leiðir til að ríma betur við aðra vagna í Mjóddinni. Hvað um það.
Stoltur laut stútum frá
í strætó eigi fúna.
Er vagni einum hjá
- illa edrú núna.
Það gladdi hið gamla hró Gylforce-ins hvar tveir fullorðnir vagnverjar töluðu um útvarp Sögu & dagskrá hennar alla leið frá Breiðholtinu að Hlemmtorginu; greinilega vel með á nótunum - kannski fastir innhringjendur???
Dr. Gylforce hellti í sig nokkrum hanastélum við Square-ið á Hlemminum, hvar tími var til kominn að halda áleiðis í Stútulautarselið. Að þessu sinni naut doksi kallinn liðsinnis leiðar 4 alla leið í fegurstu laut jarðarkringlunnar.
Amen.
Bloggar | 8.7.2017 | 22:00 (breytt kl. 22:12) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Hinn vagnblessaði & vagnaði dr. Gylforce hefir verið líkt & eilífur augnakarl meðal vina vorra - vagnanna - hvar doksi kallinn er kominn í langþráð leyfi. Maður lifandi.
Það var unaður að ferðast með leið 4 frá Mjódd um miðjan dag, hvar vagnstjórinn ruglaðist í ríminu & hélt að hann væri að aka leið 3.
Það varð upp fótur & fit i vagninum; vagnverjar tveir í eldri kantinum öskruðu upp: "Þetta er leið 4 - hvert ertu að fara maður!?!"
Dr.-inn hefir alltaf lúmskt gaman af því þegar vagnstjórar keyra einhverja vitleysu, sérstaklega þegar doksi kallinn er ekki á neinni hraðferð.
Vagnstjórinn leysti farsællega úr fokki sínu, beygði inn hjá Indjánatjaldinu í Mjóddinni, snéri þar snarlega við & hélt í rétta átt, heldri vagnverjum til mikillar gleði. Nema hvað.
Fullkomin fullnæging
fyrir vagnverja.
Fyrirmyndar friðþæging
fyrir samherja.
Bloggar | 6.7.2017 | 20:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hinn skjótráði & skörungslegi dr. Gylforce skáskaut sér milli vagna um helgina enda segir hið fornkveðna að gagnslaus sé dagur sá sem vagnslaus er. Nema hvað.
Dr.-inn lék kunnugleg stef úr lautarseli sínu, hvar leiðir 3 & 4 koma upp í kollinn aukinheldur sem auðvelt er að arka í leið 28 hjá Kópvægingum í Salahverfi. En ekki hvað???
Sumarylur er kominn í kropp doksa & frí framundan hjá kallinum. Maður lifandi. Vitaskuld hyggst hann verða ansi gjarn á leiðir næstu daga enda leiðigjarn með afbrigðum. Hvað um það.
Ég í sól & sumaryl
sefa mína strengi.
Ávallt svo með verjum vil
viðdvöl hafa lengi.
Bloggar | 3.7.2017 | 10:56 (breytt kl. 11:26) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.3.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar