Bloggblaður Breiðhyltings ...

karsnesiðLangar að blaðra, hleð í blogg
bísperrtur, allsgáður.
Alveg til í að ybba gogg
eins & svo opt áður.

Fyrir nokkrum árum bjó dr. Gylforce meðal hinna kópvægsku Kársnesbúa, hvar það var svo sem allt saman gott & blessað. Eða hvað???

Í þá daga gekk aðeins ein leið um hið fagra nes; leið 35 & kom hún á hálftíma fresti. Nokkru síðar var bætt um betur & tíðnin aukin í 15 mínútur á annatíma virka daga. Nema hvað.

fossvogsbtúLeið 35 er hringleið en nokkrar slíkar eru í leiðakerfi Strætós. Sérfræðingar Mannvits & byggðsamlagsins virðast þó ekki par hrifnir af slíkum leiðum ef marka má skýrsluna góðu sem áður hefir verið minnst hér á. Telja þeir að vagnar, tími, peningar & jú tími verja sé ekki vel varið í hringjum þessum. Hvað um það.

Fyrir nokkrum misserum var þó bætt annarri hringleið um Kársnesið, leið 36 sem ekur rangsælis að Hamraborg meðan leið 35 gjörir slíkt réttsælis. Með tilkomu hennar gjörbreyttust strætósamgöngur til hins betra á Kársnesinu & vér verjar öngva stund upp í Hamraborg. Það er vel.

Og nú skal enn bætt í með afar spennandi Fossvogsbrú. Hún verður eingöngu fyrir gangandi vegfarendur, hjólandi & vitaskuld vagnana.

Efalítið verður hún mikil lyftistöng fyrir almenningssamgöngur, enda býr hún til nýja tengingu á einum þéttsetnasta samgönguás höfuðborgarsvæðisins, milli byggða í suðri og miðhluta Reykjavíkur.

Þegar hún verður tilbúin er vert að athuga aptur flutning vestur til Kársnesinga. Maður lifandi!


Vits er þörf, þeim er víða ratar ...

44836578_314859342447960_4666552129689747456_nFerðaðist um, fór vítt
í fjölmörgum leiðum.
Ferðin opt var fullnýtt
- fjörug á vegum greiðum.

Hinn indæli & ungdómslegi dr. Gylforce fór með ungviðið í unaðsferð í yndislegu veðri gærdagsins, hvar vér tókum fjölmarga vagna & leiðir & vildum fara á fjörur við Grafvæginga. Nema hvað.

Í leið 36 frá mennta- & menningarsetri þeirra Kársnesinga fyllti ungviðið vagninn & hélt með honum stuttlega að Hamraborginni.

220px-StrætóDr.-inn ákvað að taka leið leiðanna, leið 1, frá Hamraborg að Hlíðum, hvar vér ætluðum svá að kynnast tíu mínútna tíðni leiðar 6 upp í Spöng þeirra Grafvæginga. Hvað um það - doksi kvað:

Í Svía að Spöng
sælleg er leið.
Á þingi þröng
þó öngvin neyð.

Það gladdi hið gamla hró dr. Gylforce að fá sænskættaðan 114 Scania Omnilink til að ferja okkur frá Hlíðahverfi upp í Spöng. Jálkurinn sá stóð sína plikt; vagninn reyndist kjaftfullur & kom oss á leiðarenda á rúmum hálftíma. Vel gert.

31mars aFrá Spönginni að Kársnesinu einhenti dr.-inn sér með ungdóminn í þrjár leiðir; 6, 4 & 35. Doksi kallinn skipti um vagn við Kringluna & tók leið 4 hvar hún áði við Hamraborg. 

ahamraborgHin kópvægsku stef voru kunnugleg & hélt ungviðið ásamt mentor sínum í leið 35 & tók rúntur þessi í þremur leiður nákvæmlega 40 mínútur. 

Leið 6 lagði af stað stundvíslega kl. 15:00 & leið 35 skilaði oss í mennta- & menningarsetrið á slaginu 15:40. Það er vel ásættanlegt - maður lifandi!


Úr selum í sali ...

Capture2Úr selum í sali
sameinar menn.
Grænn þar grasbali
grátt leikinn senn?

Í skýrslunni skýru & skorinortu, sem minnst hefir verið á í öðru bloggi, eru nokkrar athygliverðar hugmyndir viðraðar um svokallaða strætóvegi hvar einvörðungu hinu gulleitu vagnar mega aka. Nema hvað.

16491599_10154452593338348_1245920365_oEin tillagan er sú að fá góða tengingu milli seljahverfis okkar Breiðhyltinga yfir í hina kópvægsku sali. Þarna er lagt til að leggja vegspotta úr Lambaseli yfir í Rjúpnasali.

Eitthvað segir nú doksa kallinum að íbúar í Lambaselinu verði nú ekki par hrifnir af þessari hugmynd.

En sjáum til. Ef af verður mun þetta gjörbylta almenningssamgöngum í þessum hverfum. Ekki spurning.

Yfir&út!


Sjö ferða sátt ...???

44376099_648937908841770_6131085833882566656_nRíkir um sætaferðir sjö
sátt norðan heiða?
Eða er þetta bölv & bö
sem brátt ætt´að eyða?

Hinn nyrski en þó notalegi dr. Gylforce naut þess vel að vera norðan heiða um síðustu helgi. Hinsvegar hnaut doksi kallinn enn & aptur um skipulag vagnaferða í höfuðstað Norðlendinga um helgar.

Ætli nyrskir vagnverjar séu sáttir við aðeins eina leið í gangi af sex um helgar? Leið 6 ekur á klukkutímafresti & fer fyrstu ferð kl. 12:!8 & þá síðustu kl. 18:18. 

44471480_275907522911112_1049838101909733376_nM.ö.o. aðeins sjö ferðir eru í boði í leiðakerfi Norðlendinga á laugardeginum & annað eins & sunnudeginum. Reyndar voru ferðirnar vel nýttar hvar doksi kallinn var á vappi í vögnunum um síðustu helgi. En þetta er vart boðlegt!

Getur verið að ástæðan fyrir svona fáum ferðum sé til að mynda sú að ókeypis er í vagnana nyrðra???

Ókeypis þjónusta - lakari þjónusta??? Spyr sá er ei veit - veit sá er ei spyr.

Úgg!


Sköruglega skýrsla ..

CaptureSér vegir fyrir vagna
vitaskuld þeim fagna.
Ávallt leitum umsagna
& öflum góðra gagna.

Eflum vagnana

Í þjóðfélagi voru er öngvinn maður með mönnum í stjórnmálum, í opinberum stofnunum, já eða byggðasamlögum nema hann skipi nefnd/ráð/starfshóp sem skili síðar af sér skýrslu um eitthvað tiltekið mál eða málaflokk. Nema hvað.

Strætó bs. er þar öngvin undantekning. Nú hefir litið dagsins ljós vel skrifuð og skynsamleg skýrsla sem unnin er af sérfræðingum Strætó & samgönguverkfræðingum hjá Mannviti.

Í henni kennir ansi margra grasa & mun dr. Gylforce nýta gjörhygli sína hér á þessum vettvangi næstu daga til þess að rýna í skýrsla þessa. En ekki hvað???

Eins & ugglaust við var að búast leggja skýrsluhöfundar m.a. til að fjölga sérakreinum fyrir strætó, ljósastýringu á umferðarljósum & fleiri svokallaða strætóvegi. Á þeim ekur aðeins strætó & fyrirfinnast þeir núþegar á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu eins og t.d. meðal Grafvæginga.

589-237d3730abAð mati dr.´s er hvað framsæknast & framandi í skýrslu þessari tillaga að gera strætóveg frá Hörgslandi í Fossvogi að Fagralundi þeirra Kópvæginga. Ef af honum yrði myndi hann fara í gegnum Fossvogsdalinn sem er nú efalítið eitt af eðal útivistarsvæðum borgarinnar & mikið nýttur sem slíkur.

cbkHér þarf að stíga afar varlega til jarðar enda nefna skýrsluhöfundar það & leggja áherslu á að ákvörðun sem þessi verður aldrei tekin nema að vel athuguðu máli & í miklu & góðu samráði við marga aðila.

Fleiri tillögur eru nefndir fyrir hugsanlega strætóvegi. Meir um þá síðar.



Leiðinlegt á leið ...???

Ferðir okkar Frónbúa
förin hröð & skjót.
Þarf að vera án agnúa
auðfarin & fljót.

Hinn kýrskýri & kúlduleiti dr. Gylforce ber opt kennsl á að margt sé skrýtið í kýrhausnum í veröld vorri & jafnvel hefir aldrei slíkt höfuð þurft til að svo sé - eða hvað??? 

Nú berast oss tíðindi frá gagnavél einni er Maskína heitir hvar hún hefir komist að þeirri niðurstöðu með aðstoð félagsvísindanna að flestum Frónbúum finnist leiðinlegt á leið. & jafnvel líka leiðinlegt á leið á leið. Nema hvað. Það var &.

Leiðinlegt á leið

FDBE79E294C4C3782EE7BA1038D21662B2D53E84C7C8C820399EE699720D9D7A_713x0Vitaskuld er dr.-inn leiður yfir niðurstöðum þessum. En vart koma þær á óvart. Frónbúar hafa ekki verið ginkeyptir fyrir glæstum ferðum gulvagnanna. Þó má merkja örlitla breytingu til batnaðar í þessum efnum.

Vér skulum aukinheldur ekki gleyma einkunnarorðum íbúa á eldri heimilum þessa lands: Góðir hlutir gerast hægt - dropinn holar steininn.

Það var &. Maður lifandi!


Lostafullt á landsbyggðinni ...

44474698_249924592536365_6628654316200656896_nÓ, minn landsbyggðarlosti
ljúft er mitt frí.
Mínu breiðasta brosti
blágula í.

Hinn heiðblái & huggulegi dr. Gylforce er himinlifandi með himneska för sína í höfuðstað Norðlendinga um helgina. En ekki hvað???

Leið 57 frá Mjódd okkar Breiðhyltinga að hinu nyrska Hofi er að mörgu leyti vel heppnuð ferð. Í vagninum sjálfum, 422 Iveco sem er 57-A, er gott bil á milli sæta, innstungur fyrir oss vagnverja að ógleymdu salerninu sem kom sér sérstaklega vel fyrir unga vagnverjann. Nema hvað. Vagnstjórinn, sem ók frá Borgarnesi, var aukinheldur einstaklega alúðlegur & indæll & ferðalagið allt saman fyrirtak.

412 akranesEina sem doksi kallinn hnýtur um varðandi leið þessa eru öll þessi stopp & óþarfa hringur um Akranes. Að mati dr.´s er alveg nóg að nema staðar upp í Skaga á tveimur stöðum & láta svo innanbæjarvagninn ferja verjana áfram um Skipaskaga.

Hvað um það. Vonandi tekst dr. Gylforce að komast norður með leið 57 sem fyrst & njóta þessarar nautnafullu leiðar á næstu misserum.

Amen.



Í návist þeirra nyrðra ...

44510891_696806990677193_6858080783274344448_nLoksins erum lagðir af stað
langar vögnum að sinna.
Að nema vagna - nema hvað
návist þeirra finna.

Hinn ungi & aldni vagnverji hafa komist sér vel fyrir á Eyrinni hvar þeir héldu svá á vit vagna. Illu heilli misstu þeir af leiðum 1-5 því þær hætta akstri um kl. 18-18:30 virka daga.

44402517_1942368902734542_4947520373273919488_nVitaskuld er hálf hjákátlegt að halda á vit norðlenskra vagna frá föstudagskveldi til sunnudags. Þá er aðeins ein leið að störfum af sex. En hvað um það.

Á frjádagskveldinu fengum vér feðgar 10 ára gamlan MB-vagn á leið 6. Greinilegt er á öllu að Norðlendingar eru að skipta um lit á vögnum sínum sem er vel. Nýju metanvagnarnir eru appelsínugulir en þeir gömlu eru meira út í hlandgult.

Leið 6 ekur heljarinnar hring um höfuðstað Norðurlands sem er ekkert skrýtið því hér er um eina vagninn sem er á vaktinni. 

Öngvu að síður skemmtum við okkur konunglega en hringur þessi tekur um 37 mínútur & er fyrirtaks "sightseeing" túr.


Í nöturleikann nyrðra ...

Norður heldur doksi nú
í notalega vagna.
Tíðnin þar er út úr kú
opt mun bölva & ragna.

Hinn illfygli ólundarfugl & illindaskjóða dr. Gylforce ætlar í sína árlegu ferð norður yfir heiðar um helgina, hvar hann hyggst komast aptur í kynni við hina sænskættuðu metanvagna. Nema hvað.

Nyrðra er að finna tvo metanvagna frá Svíaveldi & von á þeim þriðja innan tíðar. Aukinheldur bjóða Norðlendingar upp á einn eðal Iveco Crossway vagn & greinilegt á öllu að þeir hafa heldur betur endurnýjað flotann sinn. Er það vel - en ekki hvað??? 

AlbumImageDr. Gylforce mun hefja leik í leið 57 ásamt unga vagnverjanum & halda frá Mjódd að hinu norðlenska Hofi. Vonandi verður það eðalferð & vagninn með salerni. Hvað um það.

9Innanbæjarvagnarnir nyrðra eru ansi slappir um helgar eins & dr.-inn hefir nú optsinnis ritað hér um á þessum vettvangi. Aðeins ein leið af sex er í boði & hefir hún ekki akstur fyrr en kl. 12:18. Síðasti ferð er síðan kl. 18:18. 

Þetta er varla boðlegt, því miður. Sjá Tímatöflur nyrðra

Öngvu að síður verður unaður að komast í eðal Scania vagna en þeir eru orðnir heldur lúnir þeir sem eru hér á höfuðborgarsvæðinu. 

Yfir&út!


Rölt í költ ...

Í rafvagninn ég hefi rölt
rann hann þýðlega.
Efalítið þeir orðnir költ
án nokkurs trega.

austurvegsvagninnHinn reikuli & ráfandi dr. Gylforce tókst að rápa inn í rafvagn á leið 4 á sunnudagssíðdegi. Flotafulltrúi byggðasamlagsins bauð upp á rafvagn númer 113 úr Austurvegi hvar hann leið ljúflega á leið um lendur gettósins. En ekki hvað???

Hinsvegar er það sama uppi á teningnum góða með þennan vagn sem & aðra rafvagna; öngvin tafla fyrir oss vagnverja innandyra. 44043244_173018373578079_4469658532349739008_nAukinheldur heyrðist ekkert í hinni íðilfögru rödd Herdísar grýlu & því öngvar upplýsingar að hafa í ferð þessari.

Að mati doktors er það bagalegt eins & optsinnis áður hefir verið nefnt hér. Það er erfitt að átta sig á því hví ekki er búið að kippa þessu í liðinn.

Hva e a sge??? Svar óskast.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband