Þannig tefst tíminn ... ekki!

44047480_175364156722848_6209537010726600704_nTafatími umferðar
traffík öngvri lík.
Tafirnar talsverðar
títt ég skallann strýk.

Dr. Gylforce var í vikunni meðal vagnverja í þristi sínum, hvar hann átti að leggja upp frá Hlemmtorgi kl. 16:17. Venjulega fer leið 3 af stað 22 eða jafnvel 24 mínútur yfir heila tímann en búið er að flýta för vegna umferðarteppunnar óumflýjanlegu í höfuðborginni. Nema hvað.

Vagnstjórinn virtist pollrólegur með kaffið sitt & var lítið að pæla í því að vera á annatíma, jafnvel háannatíma, & ræsti hvorki dekk né drif leiðar 3 fyrr en um kl. 16:20.

Dr.-num var vart úr sel enda vildi hann komast í hin breiðhylsku sel á réttum tíma. Allar slíkar hugleiðingar voru óþarfar því vagnstjórinn sýndi fádæma leikni & lipurð í umferðinni & skilaði oss vagnverjum upp í Mjódd kl. 16:45.

Jú, rétt. Það tók leið 3 aðeins 25 mínútur að komast frá Hlemmi að Þönglabakkanum þrátt fyrir umferð & urmul vagnverja.

Vel gert minn hávelborni vagnstjóri!


Næturvagnanotkun ...

40485008_1679469992179823_8819653138324652032_nNotkun ei nægjanleg
er næturvagn ekur.
Auðvitað játa ég
að ég sé sekur.

Næturvagnsnotkun

Hinn nálægi & nálegi dr. Gylforce varð náfölur & jafnvel negatífur eptir að hafa heyrt nýjustu fregnir af næturvagninum. Maður lifandi!

Straetoskilti_IMG_0064-e1500306137900Fjöldi verja hefir ekki verið eins & búist var við en vonandi hefir þó stjórn byggðasamlagsins bein í nefinu & heldur áfram næturakstri um helgar.

large_Straeto_250x256Eins & fram kemur í fréttinni virðist vera reytingur af rallhálfum vagnverjum í leiðum 101 & 106 sem aka í Fjörð & Spöng & til Mosfellinga. Vonandi halda þær áfram.

Illu heilli hefir dr.-inn ekki tekið hús á næturvögnunum & ætti máske að drífa sig hvar leið 103 gæti dottið uppfyrir strax eptir áramótin???


Að halda áætlun ...

Of fljót í för
fjarska leitt.
Ökumaður of ör
er þetta þreytt.

Dr. Gylforce stóð í síðustu viku úti lon & don á vachtinni við mennta- & menningarsetrið vestur í Kársnesi. Tímalengdin var dágóð eða frá um kl. 8:00 til rúmlega 13:00 í tvo daga. Maður lifandi.

Á vacht sinni gerði Gylforce-inn sér að leik að skoða ávallt klukku sína er leið 36 ók fram hjá honum. Taldist honum það til að í 9 ferðum af 10 var leið 36 á undan áætlun. Optast var um að ræða 1-2 mínútur gat þó farið upp í 3-4 mín.

ahamraborgÞað er ákaflega hvimleitt ef vagnstjórar geta ekki sýnt okkur vagnverjum þann sóma að vera ekki á undan uppgefinni áætlun leiða. Leið 36 skal koma við Kársnesskóla 12 & 42 mínútur yfir heila tímann, ekki 08 & 38 svá verstu dæmin séu tekin.

Vitaskuld býður doksa í grun að fáir verjar séu á ferli frá kl. 9-13 & því freistandi að bruna bara hringinn & skella sér í kaffi upp í Hamraborg.

Öngvu að síður hélt dr.-inn að byggðasamlagið fylgdist með þessu & gerði athugasemdir. Það er ekki að sjá, illu heilli.


Gerbreytt hjá Göflurum ...???

44-aGaflarar nú gerbreyta
Gylforce fagnar því.
Allra leiða munu leita
svo leiðir verði fönkí.

44Það verður stefnt að töluverðum breytingum á innanbæjarleiðum í Firðinum frá & með næstu áramótum. Að mati doksa er það löngu tímabært enda öngvu líkara en hin yndislega óreiðukenning hafi algerlega tekið völdin þar í bæ.

44-cTil stendur á koma á fót nýrri leið, leið 41, aukinheldur sem leið 21 mun ekki enda akstur í Firði, heldur halda um holtin & eiga endastöð í iðnaðarhverfum Vallanna.

dr costco2Nú um stundir er kerfið skrýtið; leið 22 ekur eins & hrein mey í limgerði að morgni til virka daga & breytist svá í furðulega pöntunarþjónustu seinni part dags; leið 33 & 34 ráfa um eins & í reiðileysi, einnig á morgnana & svo taka leiðir 43 & 44 við eptir hádegið með aukinni tíðni sem er reyndar vel. 

44-bOfan á þessi furðulegheit ekur leið 21 frá Firði að Mjódd & leið 55 hefir afdrep í Firði á leið út á flugvöllinn suður með sjó.

55Að lúkningu fer um Fjörðinn leið leiðanna, leið 1, sem gagnast vitaskuld afar vel þeim vagnverjum sem eru í námunda við hana.

Vonandi ná Gaflarar - ásamt sérfræðingum Strætó - að koma leiðakerfinu í gott horf þarna suðurfrá svo unaður verði að fara um lendur þeirra á nýju ári.

Amen.


Guð blessi Gylforce ...

Nú þegar tíu ár eru liðin frá gjaldþrota hugmyndafræði sem m.a. hvatti til 3-5 ökutækja á hvert heimili, gæti farið á næstu árum að hilla undir nýtt & mun betra samgöngukerfi á höfuðborgarsvæðinu, Borgarlínuna. Ef & þegar línan sú kemst á legg eru menn í dauðafæri að láta draum þennan aka á sjálfkeyrandi rafvögnum & hefja þar með það ferli. En ekki hvað???

Í tilefni af þessum merku tímamótum einhenti dr. Gylforce sér í vagnana & einskorðaði ferðir sínar við rafvagnana níu sem komið hafa úr Austurvegi á undanförnum vikum og mánuðum. Nema hvað.

Vitaskuld voru þetta unaðsferðir; þrásetur & langdvalir. Doksi kallinn gerði hosur sínar gular fyrir rafvögnunum sem óku á leiðum 2 & 4.

austurvegsvagninnIllu heilli var hvörgi neina virka upplýsingatöflu að sjá inn í vögnunum. Hvurnig stendur á því? Dr.-inn hélt nú bara að um byrjendaörðugleika væri að ræða.

Hér þarf byggðasamlagið að gyrða sig í brók. Núna. Strax.

Upplýsingagjöfin gleymst
Gylforce ekki sáttur.
Ekkert hefir endurheimst
endalaus fyrirsláttur!


Vetnisviðbót ...

MBL0099136Styrk að öðlast stórgott er
stefnt á vetnisvagna.
Rafvagnar eru einnig hér
ástæða til að fagna!

Vetnið í vagnaflotann

Hinn síspennti & sjálfumglaði dr. Gylforce er sem sigri hrósandi hvar daglega berast dágóð tíðindi úr ranni byggðasamlagsins Strætó bs.

Copy_of_Straeto_mid (1)Nú hefir Strætó fengið styrk frá Evrópusambandinu til þess að kaupa fimm vetnisvagna sem eiga að vera komnir á vígvelli veganna fyrir lok næsta árs.

Þá verða 14 rafvagnar úr Austurvegi á ferli, 5 vetnisvagnar & jafnvel gömlu metanvagnarnir tveir frá Scania. Aukinheldur verða þrír af fjórum vögnum nyrðra líka metan í lok árs 2019. 

Dr.inn hyggst einmitt heimsækja Norðlendingafjórðung fljótlega. Maður lifandi!


Dr.-inn man eptir gömlu vetnisvögnunum sem komu frá Mercedes Benz & fengu númerin 86-88. Doksi kallinn kunni alltaf vel við þá en nokkrir byrjunarörðugleikar voru en að lúkningu náðu þeir ágætis siglingu.


Aukin tíðni ...

802179Vagnarnir nú skína skært
skjólshús vagnverja.
Að auka tíðni er tímabært
okkur til að ferja.

Aukin tíðni

Það heyrast fagnaðarfréttir úr ranni borgarstjórnar hvar hún leggur til að auka tíðni á þremur leiðum & hafa hana 7 & 1/2 mínútu á annatíma virka daga.

Um er að ræða leiðir 1, 3 & 6 sem eru efalítið fjölförnustu leiðirnar. Stefnt er að því að breytingin taki gildi í upphafi ársins 2020.

Ástæða þess að þetta kemur ekki til með að gerast fyrir en eptir rúmt ár, er að ferli breytinga er heldur þungt í vöfum hjá byggðasamlaginu.

Öngvu að síður eru þetta gleðifregnir sem vonandi verða að veruleika!


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband