Dr. Gylforce hélt rakleitt á vit vagna eptir veru sína í mennta- & menningarsetrinu við Fannborg, hvar ætlun Gylforce-ins var að komast aptur í rafvagnana - en ekki hvað???
Dr. Gylforce hélt í Hamraborg þeirra Kópvæginga, Mjódd okkar Breiðhyltinga, jafnvel Hlemm þeirra Miðbæinga, en öngvir voru rafvagnarnir :(
Jamm & já; unaðurinn úr austri var hvergi sjáanlegur & varð dr.-inn að gera sér að góðu leiðir 3 & 12 með ágætis Iveco Crossway vögnum.
Á morgun, verkalýðsdaginn, verður ekið samkvæmt sunnudagsáætlun & harla ólíklegt að rafvagnarnir verði þá á ferli.
En hvur veit???
Eptir dagsins ról & rokk
rölti ég með skeggmagn.
Svipaðist um en svo kom sjokk
- sá öngvan rafvagn!
Bloggar | 30.4.2018 | 19:37 (breytt kl. 20:02) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Að sumbli doksi sat
svaka gott geim.
Með vín og veislumat
vagninn tók heim.
Dr. Gylforce skellti sér óvænt í soll miðbæjarins í gærkvöldi, hvar hann gjörðist bæði vin- & vínhneigður & hélt vitaskuld á vit vagna. Nema hvað.
Dr.-inn sá öngva rafvagna á vígvellum veganna sem kemur ekki á óvart því enn vantar hleðslusöðvar fyrir þá svo þeir geti keyrt allan daginn. Hvað um það.
Gylforce-inn hapði hug á að prófa loksins næturvagnana en þraut öreindið vel slompaður eptir að hafa kneyfað ölið bæði af unun & áfergju.
Rétt fyrir miðnættið fékk dr.-inn sér til fulltingis leiðir 1, 4 & 3 & hélt heim á leið í lautarselið sitt.
Yfir&út!
Bloggar | 29.4.2018 | 13:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Unaður kominn í umferð
ógleymanleg stund.
Tímamótin eru talsverð
með tærri lofttegund.
Þegar dr. Gylforce frétti að von væri á rafvögnunum á vígvelli veganna í dag aflýsti hann öllu; kennslu, samstarfsfundum, skráningum, námsmati, prófaundirbúningi, yfirferð verkefna, foreldrafundi. Öllu.
Allt var sett á hold því inn í rafvagna vildi dr.-inn.
Einn af fjórum rafvögnunum sem komnir eru, var brúkaður í dag á leið 3 er hún breyttist úr 30 mínútna tíðni yfir í 15 mínúturnar sem gerist jú á annatíma milli kl. 14 & 18 á virkum dögum. Nema hvað.
Dr. Gylforce stóð teinréttur & titrandi (raf)spenntur við Hlemmtorgið þegar rafvagninn rann í hlað.
Doksi kallinn settist niður & skyndilega fór vagninn af stað; án nokkurs hljóðs eða rykks leið rafvagninn þýðlega af stað niður Hverfisgötuna. Þvílík nautn!
Þó hjó doktorinn eptir því að að sætin eru of hörð, a.m.k. fyrir hið gamla hró doksa. Þá var upplýsingataflan inn í vagninum ekki tilbúin aukinheldur sem hin íðilfagra strætórödd Herdísar grýlu skorti fráleitt diskantinn í þennan unað úr austri & skar vel í eyrun. Þetta þarf að laga. Hvað um það.
Dr.-inn endasentist með leið 3 að Mjódd okkar Breiðhyltinga & hlakkar mjög til næstu ferða sem verða án efa rafvagnaðar upplifanir - en ekki hvað???
Bloggar | 27.4.2018 | 16:30 (breytt kl. 16:43) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Strýk ég vagnsins drif & dekk
& dreymir þeirra plön.
Á leiðum sit ég með minn sekk
& segi; þökk á skjön!
Hinn dálaglegi & daglegi dr. Gylforce dreif sig á vit vagna í rigningarsudda dagsins, hvar hann hitti fyrir nokkrar leiðir, urmul vagnverja & fáeinar tegundir af ágætis vögnum. Nema hvað.
Í barnæsku þegar Gylforce-inn fór vagnaferðir sínar með föður sínum átti sá eldri það til að þakka fyrir sig með all sérstöku orðatiltæki: Þökk á skjön!
Illu heilli veit dr.-inn ekkert um þessi fleygu orð, þ.e. hvorki hvaðan þetta orðatiltæki sé komið né hvur sé sagan á bak við það. Því miður.
En eptir unaðsstundir í leiðum 1, 2, 3, 11 & 21 í dag kemur eitt - já aðeins eitt - upp í hugann:
Vagnar, vinir minir - þökk á skjön!
Bloggar | 25.4.2018 | 17:59 (breytt kl. 18:06) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gylforce-inn við gettóið
geysist um malbikið.
Stefnir á strætó tattúið
- stórt & mikið!
Hinn kvartsári & kveifarlegi dr. Gylforce hefir keyrt með vinum vorum - vögnunum - út & suður þessa dýrlegu helgi, hvar hann hefir reyndar haldið sig nánast við gettóið báða dagana. Nema hvað.
Dr. Gylforce hefir farið á fjörurnar við leiðir 3 & 4 hér við Stútulautarselið. Hið lostfagra leiðakerfi vagnanna er minnst spennandi á sunnudögum, hvar 30 mínútna tíðnin tröllríður öllu aukinheldur sem vagnakosturinn er yfirleitt Iveco & Irisbus. Hvað um það.
Hinir sænskættuðu vagnar sáust ekki, því síður þýska stálið & hinir rafmögnuðu kínversku kaggar eru ekki enn komnir á vígvelli veganna.
Dr.-inn bíður þó spenntur eptir rafvögnunum en von er á þeim um mánaðarmótin.
Bloggar | 22.4.2018 | 18:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sumir stelast á rauða rein
reyn´að ota sínum tota.
Er sú fyrir eðalgimstein
sem allir ættu að nota.
Tólf teknir á strætóakreinum
Bloggar | 18.4.2018 | 16:50 (breytt kl. 16:56) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hinn spraðabassa- & spjátrungslegi dr. Gylforce spólaði strax af stað í vini vora - vagnana - eptir að hafa ausið ótæpilega úr viskubrunni sínum við ungviðið í mennta- & menningarsetrinu við Fannborgina. Nema hvað.
Dr.-inn sat stoltur í vögnunum vopnaður nýja strætókortinu sínu & endasentist með ási, tvisti, þristi - & jafnvel Kristi! Maður lifandi. Amen.
Það vakti gjörhygli Gylforce-ins hvað leið 2 virðist eiga enn erfitt með að halda áætlun. Það er bras & basl á þeirri leið, sérstaklega að Mjódd & vitaskuld frá henni þegar hún vafrar um Vatnsendann. Betur tókst til að halda réttum tíma frá Hamraborg þeirra Kópvæginga að hinu huggulega Hlemmtorgi.
Öskurok & úfinn sær
er nú þennan daginn.
Með nýja kortið nær & fjær
ég nýti mér um bæinn.
Bloggar | 16.4.2018 | 20:20 (breytt kl. 20:36) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hugarró er í Ivecó
er ávallt gerir gagn.
Með nesti & nýja skó
ég næli mér í vagn.
Hinn sjálfumglaði dr. Gylforce var sem grár sætur kisi í vögnunum þennan annars varma hvíldardag. Nema hvað.
Dr.-inn flaug með leið 21 að Firði & ku þetta vera í fyrsta sinn sem doksi kallinn fer þessa leiðina, þ.e. frá Mjódd að Firði en ekki öfugt eptir leiðakerfisbreytingarnar sem gerðar voru í janúar.
Leið 21 kemur nú við hjá Kópvægingum á leið sinni í Fjörðinn sem meikar mikinn sens & er ánægjulegt að við bætist ein leiðin enn sem stoppar við Smáralindina. Nema hvað.
Dr. Gylforce sá hina ljótu hvítvagna í Firðinum sem sjá um leið 55 þessi dægrin.
Um áramótin hætti Suðurnesjaverktakinn, SBK, akstri á þeirri leið & Fjarðarmenn tóku við.
Flestir vagnanna virðast vera hvítir með smá gulu ívafi en leið þessi ekur milli Fjarðar & Flugstöðvarinnar í Keflavík & endrum & sinnum fer hún alla leið að BSÍ. Hvað um það.
Dr. Gylforce einhenti sér í leið leiðanna, leið 1, & fór svá alls kyns krókaleiðir hvar hann að lúkningu kom að fegurstu laut jarðarkringlunnar, sem er vitaskuld við selin.
Varð þá doksa eigi um sel.
Amen.
Bloggar | 15.4.2018 | 20:34 (breytt kl. 20:36) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Unaðurinn ærir
inn í vagna vil.
Fjarkinn mig færir
frá - & líka til.
Hinn hugljúfi dr. Gylforce hefir lagt leið sína í vagnana í dag, hvar hann að þessu sinni tók aðeins eina leið, fjarkann. Merkilegt nokk!
Dr. Gylforce man tímana tvenna, eins & sjá má á grönum hans gráu, hvar yfirleitt ekki voru margir vagnverjar um borð í vögnunum á laugardagseftirmiðdögum svona fyrir 15-20 árum síðan. Nema hvað.
Nú er öldin önnur, góðu heilli. Dr. Gylforce var á þvælingi í leið 4 milli Mjóddar, Hamraborgar & Hlemmtorgs & ávallt var urmull vagnverja með í för. Wú-hú!
Fjölmennasta ferðin var efalítið för doksa kallsins frá Mjódd upp í hverfi en þá var hvert sæti skipað. Sumsé, um 35 vagnverjar í vagninum & líf & fjör.
Að því tilefni tók dr.-inn vitaskuld lengri hringinn á leið sinni í Stútulautarselið & verður því leið 3 að bíða betri tíma.
Unaður, alveg hreint.
Bloggar | 14.4.2018 | 18:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Til veggja er vítt
við Hlemminn bíðum.
Allt pláss næstum nýtt
nálægt Hlíðum.
Hinn þrautseigi & nokk vel þenkjandi dr. Gylforce þaut af stað síðdegis & beið öngvra boða, hvar hann kom sér dægilega fyrir í leið 6 við Hlemmtorgið.
Leið 6 breytist í tíu mínútna tíðni klukkan tvö virka daga & var ferð doksa einmitt um það leytið. Doksi kallinn sat meðal fárra vagnverja í 180 Crossway vagninum er hann lagði úr vör við Hlemminn. Það átti þó eptir að breytast - maður lifandi!
Góðu heilli kom urmull verja inn í vagninn við Ráðhúsið, Háskóla Íslands, Landspítala & Hlíðarnar. Vagninn varð kjaftfullur þrátt fyrir þessa öru tíðni & silaðist áfram að Ártúninu, hvar loks heldur fækkaði.
Dr.-inn hélt ótrauður áfram með leið 6 & vildi taka hús á Grafvægingum. Sem & hann gerði.
Eptir góðan spöl & gæfuríkt spjall við Grafvæginga skáskaut dr. Gylforce sér inn í leið 24 við Spöngina & hélt að Mjódd okkar Breiðhyltinga. En ekki hvað???
Yfir&út!
Bloggar | 13.4.2018 | 17:25 (breytt kl. 17:31) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.3.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 118882
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar