Sífellt sumar ...

Skapa þeir sífellt sumar
er sólar nýtur ei við.
Með þeim mínir góðu gumar
gleðina finnið & frið.


Amen.


Fimm nýir ...

Hinn framsýni & fráleitt fallvalti dr. Gylforce fagnaði vel & innilega í sveitinni, hvar hann las um komu fimm nýrra rafvagna til landsins. Hipp-hipp-húrrrrrey!

Fimm nýir rafvagnar

Strætó bs. fjárfesti í 14 vögnum fyrir tæpan milljarð króna fyrir nokkru & eru þá komnir níu af þeim á klakann. Þessir hljóðlátu & huggulegu fákar hafa reynst vel & er frábær viðbót við flotann. 

Það sem skortir ennþá hvað rafvagnana varðar, er hleðslustöð á eina tengistöðina til þess að vagnarnir geti keyrt frá morgni til kvölds aukinheldur sem taflan inn í vagninum fyrir oss verjana virkar ekki.

Þegar þessu tvennu hefir verið kippt í liðinn verður þetta bara unaður - fyrir oss & umhverfið.

Fimm nýir eru á næsta leiti
nálgast þeir leiðir brátt.
Orkan tæra er þeirra eldsneyti
algjörlega um þá sátt.


Munaður í Mosó ...

37785753_10155835739878348_6231692917350596608_nVið Lágafell ljúft það var
í lauginni að busla.
Eitt í skýlum sem afbakar
auðvelt var að rusla.

Hinn stjarfi & stórmannlegi dr. Gylforce stefndi litla vagnverjanum í ferðir til Mosfellinga, hvar þá langaði í laugar & ljúflegheit við Lágafellið. Nema hvað.

eeb9e419118637.562d57d9a21f0Feðgar einhentu sér í leið 4 við selið, skiptu yfir í tuttugu&fjegur í Mjódd okkar gettóinga & smelltu sér síðan inn í leið 15 við Ártúnið áleiðis til Mosfellinga.

37824378_10155835739938348_3610463132377415680_nMosfellingar virðast léttleikandi & listhneigðir. Strætóskýlin eru afar litskrúðug hjá þeim & skemmtileg á að líta. Einn ljóður var þó á nokkrum; öngvar ruslafötur voru nálægt þeim & sá doksi kallinn rusl á víð & dreif í kringum þau. Þessu verða Mosfellingar að kippa í liðinn.

Ferðin sóttist hinsvegar vitaskuld vel hjá feðgunum enda fátt betra en að vera vagnverji í vagni - en ekki hvað???


Að veipa er sneypa ...

download (3)Vagnverjinn er að veipa
villt í skýlinu sínu.
Gufunni grimmt út hleypa
geðvondur verð ég pínu.

Dr. Gylforce vill biðla til byggðasamlagins Strætós um að gera nú gagnskör í betri merkingum í biðskýlum okkar vagnverja.

download (2)Alltof opt situr verji einn (eða fleiri) í skýlinu & veipar villt & galið þegar Gylforce-inn ber að garði. Reykingar eru ekki leyfðar í biðskýlum bæjarins & þá (vonandi) ekki heldur notkun á rafrettum. 

Það virðist þó vera eins & margir líti veipið öðrum augum heldur en vindlinginn. Öngvinn munur ætti að vera á þessu tvennu. Vonandi tekur Strætó bs. sig saman í andlitinu & kemur með merkingar strax nú á haustmánuðum.

Veip er reip - burt úr biðskýlunum með þetta!


Töluvert tölvugert ...

Vagnverjinn opt í vagnafans
vagninn hingað kemur.
Allt er á leið til andskotans
ávallt þó staðar nemur. 

Dr. Gylforce reis upp við dogg í morgun með tvö orð á heilanum; töluvert tölvugert. Ekki veit doksi hvers vegna enda beið hann öngvra boða & hélt á vit vagna. Nema hvað.

Frá Stútlautarseli dr.´s eru tvær leiðir i boði, hin þriðja & fjórða. Að þessu sinni hélt Gylforce-inn rakleitt í þristinn & kynntist yndislegum lendum okkar Breiðhyltinga; selum, fellum og hólum.

FDBE79E294C4C3782EE7BA1038D21662B2D53E84C7C8C820399EE699720D9D7A_713x0Á leið sinni varð doksa hugsað til tónleikagesta í gærkvöldi & vonaði svo innilega að vögnunum hafi tekist vel til að ferja mannskapinn úr Laugardalnum. Hvað um það.

Dr.-inn sýslaði í Mjóddinni dágóða stund en ákvað svo að fá sér annan langan & indælan rúnt. Dr. Gylforce fór því á fjörurnar við eðal Iveco Crossway vagn á leið 4.

Maður lifandi - hvar endar þessi unaður???


Vagninn á völlinn ...

37687302_1713411792061743_2735345884911894528_oVonandi sjá sem flestir rokkþyrstir sér fært að nota vagnana til að komast á stórtónleikana í Laugardalnum.

Strætó bs. býður upp á sérferðir til að ferja fólk á Laugardalsvöllinn. Farið verður frá Háskólanum í Reykjavík, Kringlunni og Mjóddinni og beint á völlinn. Fyrsta ferð er kl. 16:30 og lýkur svá þegar allir eru komnir í rokk & ról!

Epískur doksi ljóðar lýrik
líkt & sjálfur Móses.
Allir í Dalinn, ekkert hik
upplifa Guns N´ Roses.


Hin 14. leið ...

20171101130348-fae3b6a7Ekur austur Vesturbrún
& inn að Verzló.
Fer um teiga, dal & tún
tjúttar svo að sjó.

Hinn vægni & vægðarsami dr. Gylforce var eins & útspýtt hundskinn & út um allar trissur þennan annars ágæta dag tunglsins. Nema hvað.

Svá skemmtilega vildi til að opt & einatt var doksi kallinn eins & eilífur augnakarl í leið 14.

220px-StrætóLeiðin sú er um margt merkileg. Með sjö strætisvögnum á annatíma fer hún frá Granda að Verzló í gegnum Háskólann, Gömlu-Hringbraut, Hlemm, um Túnin, framhjá teigum, um Laugardal & laug, Langholtsveg, að Grensás & inn að skóla þeirra Verzlinga. & vitaskuld sömu leið til baka. Hvað um það.

Að þessu sinni ók hin fjórtánda leið austur Vesturbrún í stað Austurbrúnar vegna framkvæmda aukinheldur sem til stendur að breyta leiðinni lítillega í kringum Háskólann í haust. Nema hvað.

Dr. Gylforce gerði sér far með leiðinni í þrígang & fékk hina hollensku VDL-vagna í öll skiptin enda afar sjaldgæft að sjá Iveco Crossway vagna á leið þessari.


Dratthalast í dumbungnum ...

22 7 aTil að stytta tíðina
tölti ég af stað.
Horf´á laut & hlíðina
& hugsa, nema hvað.

Í grámóðu hvíldardagsins hélt dr. Gylforce á vit vagna & vildi létta lund & kæta geð. Dr.-inn hélt af stað & gekk úr laut sinni, framhjá Seljahlíð & að næsta skýli þar i námunda. 

Dr.-inn hapði hug á að komast að tengistöð vagnanna við Ártún. Doksi kallinn skellti sér því í leið 24 við Mjódd okkar Breiðhyltinga. 

download (1)Tengistöðin Ártún er um margt orðin barns síns tima. Þarna stoppa margir vagnar & aðstaðan ekki beysin eins & myndir sýna. Vagnarnir verða að vera í rennu aukinheldur sem þrjár aðrar leiðir stoppa þar sem myndasmiðurinn smellti af.

Strætó bs. hefir rennt hýru auga til svæðis neðar í Ártúnsbrekkunni. Vonandi kemst það á einhvern rekspöl í náinni framtíð því vér vagnverjar eigum betra skilið en þetta.

Amen.


Tölt í téðan ...

21 7Ég inn í téðan tölti
er tækin hleður strax.
Frá Hlemmi héðan brölti
í haustveðri þessa dags.

Hinn banga- & bögulegi dr. Gylforce brá sér af bæ í bleytunni & langaði að berja téða rafvagna augum. En ekki hvað???

32730218_10155681354513348_5015479782532448256_nDr.-inn fékk venju samkvæmt Iveco Crossway vagn á leið 4 við Stútulautarselið sitt. Þar virðast fastir á leið vagnar með vinnunúmerin 172-175 sem er bara vel. Doksa kallinum bauð í grun að ef einhverjir rafvagnar væru á vígvöllum veganna helgi þessa væri best að líta við á Hlemmtorgi. Nema hvað.

Dr. Gylforce sá aðeins einn téðan á Hlemminum, 194 vagninn á leið 2. Aukinheldur var ljóst að um langdvöl & þrásetu var í vændum í tvisti þessum.

Doksi birgði sig upp af löðrandi sveittu Maxi & fékk huggulegan rúnt í hljóðlátum vagni í 45 mínútur frá Hlemmi, um Grensás, suður í Voginn fagra, um efri byggðir hans & að lúkningu niður í sjálfa Mjóddina. 

Meira svona takk!


Ljósmæðralangloka & fullveldisfokk ...

bus06Hinn þýðlyndi & þægilegi dr. Gylforce hefir kvatt - illu heilli - hinn yndislega Íberuskaga & er sestur niður í suddanum; heldur reynast þau skref trauð & tregleg. Hvað um það.

5beniÞað færi betur á því að ferðast með þeim bláu á Benidorm & liggja flatmaga á hinni flennistóru sjávarsíðu þeirra Íberinga, heldur en að lenda í karpi & kýtingi um fullveldishátíðarfokk á Þingvöllum eða hinni löngu & leiðigjörnu ljósmæðrakjaradeilu. Nema hvað. 

Kynntist Íberíu ættflokk
öl & stanslaust partí.
Í fullveldishátíðarfokk
of fljótt kem heim í.

Annars var leið 3 tesa vagnverjanna tveggja. Hún stoppaði beint fyrir utan hótel þeirra & hapði 15 mínútna tíðni.

Aðrar leiðir gátu komið á klukkutímafresti sem er nú ekki til útflutnings. Maður lifandi.

Hvað um það. Nú er kominn tími til að halda á vit vagna á Fróni í vætunni. 

Yfir&út!


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband