Langhlaupið ...

Það berast ekki mikil gleðitíðindi í hálfsárs uppgjöri Strætó bs. Í upphafi árs var þjónustan bætt til muna sem ekki hefir skilað sér auknum fargjaldatekjum byggðasamlagsins. Má þar t.d. nefna næturakstur um helgar & sama tíðni yfir sumartímann.

Hafa verður þó í huga að sala á árskortum er áberandi betri seinni hluta árs, einkum vegna árskorta nema, þannig að skoða verður árið í heild.

Gleymum heldur ekki því að auka hlut almenningssamgangna í ferðavenjum höfuðborgarbúa er langhlaup.

Vonandi hefir stjórn Strætó bein í nefinu til þess að halda áfram að efla leiðakerfið þótt vissulega sé ljóst að breytingar, eins & gerðar voru í janúar, kosti talsverða fjármuni.

Vagnarnir eru jú vinir okkar!

Aksturstíminn var aukinn
öngvu breytir það.
Forkólfar fá á baukinn
hvur fjandinn er að???

Hálfsársuppgjör Strætó


Teppa við Túnin ...

Eptir strit held á vagnavit
vel gullituðu glæstu.
Sáttur sit með lærdómsrit
sjálfsálitið í hæstu.

Dr. Gylforce gat vart beðið eptir að losna úr hinum kópvægska vesturbæ & halda á vit vagna. Doksi kallinn sá rafvagn á vappi á leið 4 við Hamraborg þeirra Kópvæginga & beið öngvra boða. En ekki hvað???

1067086Vagninn reyndist vera úr fyrra hollinu sem voru nokkur vonbrigði því dr.-inn á eptir að einhenda sér í rafvagnana fimm sem komu á dögunum. Nema hvað.

Leið  4 ók með Gylforce-inn um Háaleitisbraut, Miðbæinn sem þar er & niður að Borgartúni. Kárnaði þar gamanið - maður lifandi!

Malbikunarframkvæmdir stóðu yfir í Borgartúninu sem töfðu umferðina umtalsvert. Vagnstjórann á fjarkanum þraut öreindið eptir um 30 mínútna stopp & ók Sóltúnið upp á Laugarveginn & þaðan niður á Hlemmtorgið. Það var vel til fundið hjá stjóranum & gaman að fá ferð með vagninum um þetta tún í fyrsta sinn.

Dr. Gylforce spígsporaði um Hlemminn dágóða stund & passaði sig að taka ekki leiðir sem fara um hið íslenska Wall Street á heimleiðinni.

Amen.


Miðflokksmuldrið ...

download

Hinn skilningsríki & skapgóði dr. Gylforce skilur lítt í borgarfulltrúa Miðflokksins, hvar hún kvartar & kveinar yfir auglýsingum á vögnum Strætó þessa dagana. Nema hvað.

Vigga í vagnarugli

Aukinheldur hefur hún fundið því allt til foráttu að ríkið leggi til tæplega 900 milljónir króna til almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu ár hvert. Samt er þetta sama manneskjan & vildi gefa frítt í vagnana í síðustu borgarstjórnarkosningum. Humm, humm???

Auglýsing Miðflokksins - frítt í strætó

Ef slíkt yrði gert kæmi það í hlut sveitarfélaganna sex, sem reka Strætó bs., að bæta við tæplega 2000 milljónum, sem eru fargjaldatekjur, við þær rúmlega 3000 milljónir sem þegar eru settar með sérstöku framlagi frá sveitarfélögunum í hið lostfagra leiðakerfi.

Vitaskuld er ríki ekki sama & sveitarfélag en öngvu að síður er málflutningur borgarfulltrúans ruglingslegur; má ríkið ekki styrkja samgöngur í höfuðborginni en eys svo miklum fjármunum í þær á landsbyggðinni???

Hér er eitthvað sem stemmir ekki. En hvað um það - yfir&út!

Miðflokksmuldrið ekkert nýtt
mig langar til að æla.
Vildu í vagna hafa frítt
en nú er Vigga að skæla.


Hinn kópvægski Hvammsvegur ...

Stóran hring eða stutta ferð
strætisvagninn gefur.
Kætir meir en kvæðagerð
komur sjaldan tefur.

Hinn bolalegi & brokkgengi dr. Gylforce brá sér á leið í blíðunni. Doksi kallinn fékk sér til fulltingis einungis flæmska vagna að þessu sinni & stoppaði í þeim stund stutta - maður lifandi!

28Dr. Gylforce gekk ásamt litla vagnverjanum úr gettóinu yfir í kópvægskar koppagrundir. Þeir höpðu í hyggju að skella sér í leið 28 við Hvammsveginn & halda að þessu sinni í stutta ferðir með hollensku VDL-vögnum þeirra Kynnisferða. Nema hvað.

Ferðir feðga gengu afar vel & ber að hrósa vagnstjórunum fyrir að vera tímanlega & tímajafna vagnana þegar þeir voru komnir á undan áætlun.

Hinsvegar voru fáir vagnverjar á ferli eins & jafnan er á hvíldardegi þessum.

Á morgun, mánudag, má svá aptur búast við handagangi í öskjunni á vinum vorum, vögnunum.

Yfir&út!



Langt um liðið ...

1067086Hinn mikli mógúll & menningarþyrsti dr. Gylforce var aldrei þess vant nokk vant við látinn á menningarnátt. Dr.-inn gat þvi ekki fylgst með tæmingu Strætó í miðbænum eptir flugeldaskýninguna góðu á laugardagskveldinu. Nema hvað.

1067093Samkvæmt fréttum brúkaði byggðasamlagið yfir 70 vagna sem óku eptir ákveðnum leiðum úr miðbænum í úthverfin. Hepðbundið 16491599_10154452593338348_1245920365_oleiðakerfi var þá rofið & hafist handa við að koma vagnverjum heim til sín.

Hvað um það.

 Vagnarnir tæma miðborgina


Hinn virðulegi verji, Dr. Gylforce, tók sér far með leið leiðanna, leið 1, leið 4 & 21 í kvöld. Öngvir rafvagnar sáust enda aðallega notaðir á annatíma virka daga. 

Á morgun hefjast svá ný ævintýri í nýjum vögnum á öðrum leiðum. Eða jafnvel sömu - en ekki hvað???


Langt er síðast er lét ég vaða
leiðir hafa fengið frí.
Doktorinn gerir verja glaða
gjörir flest með kurt & pí.




Efri myndir: mbl/Eyþór Árnason.


Gáleysi & glannaskapur ...

IMG 2712Það var heldur aumt að lesa í netmiðlum um vagnstjórann á leið 51 sem eitthvað hefir þrotið dómgreindina í Þrengslunum. Að öllu jöfnu ekur leið 51 ekki þar en Hellisheiðin var lokuð þennan dag.

Góðu heilli var sá sem stýrði færður til í starfi hjá Hópbílum, sem annast akstur á þessari leið, enda erfitt að réttlæta svona háttalag.

Glanni glæpur undir stýri


Komst í hann krappan
hvað kom fyrir tappann?
Að glanna er glæpur
gaurinn virkar tæpur
það þarf að tukta til kappann.


Til átta allra ...

450-010e83ecb6Vagnar liggja til allra átta
þú einn ræður för.
Doktorinn daga & nátta
dreymir þeirra púströr.


Forðumst fábreytileikann ...

12220px-StrætódLzspZGxEGmYKkh-800x450-noPadJá, mínir viðurlegu vagnverjar. Munum að forðast fábreytileikann i vögnunum & fagna fjölbreytileika leiðanna.


Fábreytileikann forðumst
í vagnaferðum.
Vináttuböndum bindumst
af býsna mörgum gerðum.


Amen.








































Til Mekka - fimm stoðir vagnverjans ...

Í tilefni þess að hinn munúðarfulli dr. Gylforce heldur senn til Mekka, er ekki úr vegi að rifja upp fimm stoðir vagnverjans:

1) Trúarjátningin – yfirlýsing um að það sé enginn guð annar en vagnarnir og vagnverjar séu sendiboðar þeirra.

2) Bænin – biðja a.m.k. fimm sinnum á dag og krjúpa í átt að Hlemmi (Hestháls og Mjódd sleppur).

26815513 10155656980379807 2807951708028902266 n3) Fastan – Að sleppa því að borða, drekka og stunda kynlíf í langdvölum og þrásetum í vögnunum, sérstaklega í tunglmánuðinum (Ramadan).

4) Ölmusa – hjálpa ávallt öðrum vagnverjum sem ekki eiga fyrir farinu.

5) Pílagrímsferð – fara a.m.k. einu sinni á ævinni til Mekka (London).


Ankannanlegur akstur ...

12Hinn dálaglegi & daglegi doktor Gylforce dreif sig í dægilega heimsókn til vina sina, vagnanna. Nema hvað. Doksi kallinn datt inn í leið 3 við Mjódd & vantaði svá vagn tilbaka frá Hlemmtorginu. En ekki hvað???

Dr. Gylforce ákvað að taka leið 12 sem fer frá Hlemmi kl. 17:15. Tveimur mínútum fyrr kom tólfan líðandi & var þar á ferð hinn laglegi 344 Iveco Crossway vagn. Hélt nú dr.-inn að vagninn myndi tímajafna sig í tvær mínútur við Hlemminn. Ó-nei!

12Vagninn rykkti af stað & var kominn að kínverska sendiráðinu við Bríetartún þegar klukkan sló 17:15. 

Svo virðist sem vagnstýran hafi áttað sig á því að vera á undan áætlun stuttu síðar því vagninn tók góða tímajöfnun við Hótel Cabin. Gallinn var hinsvegar sá að ekkert útskot eða vasi er fyrir vagninn þar & myndaðist því löng bílaröð fyrir aptan hann. 

Það sem eptir lifði ferðar upp í Mjódd stoppaði vagninn á öllum biðstöðvum, hvort sem einhver ætlaði inn eða út. Var það heppilegra því yfirleitt var vasi fyrir vagninn eða minni umferð en í Borgartúninu þar sem ávallt er ys & þys.

Akstur ankannanlegur
alls staðar stöðvað.
Doksi seiminn dregur 
& dró í pung augað.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband