Hverfisgatan opnar á ný ...

Þrásinnis ég vonandi verð
í vögnunum glaður.
Nú Hverfisgata er nýuppgerð
- nautnalegur staður!

hverfi skatan 2Oflátungurinn & ofvitinn dr. Gylforce er yfir sig hrifinn, hvar loksins hillir undir að vinir vorir - vagnarnir - aki um Hverfisgötuna á nýjan leik. 

916-65201c10c7Samkvæmt yfirlýsingu frá Strætó hefja sex leiðir akstur um eina að höfuðgötum borgarinnar 8. desember nk. Það er vel.

Hverfi skatan á ný

Leiðir 1, 6, 11, 12, 13 & 14 koma til með að keyra upp & niður Hverfisgötu. Sums staðar er gatan þröng & því mikilvægt að fara varlega þegar vagnarnir mætast. Nema hvað.

Leið 3 - leið doktorsins - heldur áfram að aka Sæbrautina enda nauðsynlegt að einhver strætisvagnaleið stoppi sem næst hinni fögru Hörpu.

Amen.


10 nýir 2020 ...

137FA52A 25E9 41D4 8D28 B6A5415ED977
Tíu nýir rafvagnar

74911455_10156206660650938_4157561177552977920_oStjórn byggðasamlagsins hefir greinilega gert upp hug sinn varðandi hvurnig vagna eigi að fjárfesta í á næsta ári. Það munu rafvagnar vera. Gleðilegt. Maður
lifandi.

Til landsins koma þeir tíu
tilhlökkun er mér hjá.
Nautn að þeir séu ei níu
njóta mun þeirra - ójá!
66602530 2226690280733889 3647696397139968000 n
Stjórnin hefir rúmlega 500 milljónir úr að moða & með skattívilnunum & niðurfellingu á ýmsum gjöldum stefnir í að þeir fjármunir dugi til þess að kaupa tíu rafvagna. Jibbíkóla!

IMG 20191123 114624Dr. Gylforce vonar að reynslu rafvagninn, hinn glæsti Mercedes Benz vagn, sem er hér um þessar mundir, komi vel út & sé líklegur á vígvelli veganna á hinu herrans ári 2020. Hvur veit???

Líklegra er þó að haldið verði áfram að fjárfesta í vögnunum úr Austri enda væntanlega hagkvæmara að vera með færri tegundir en fleiri í notkun í einu hvað viðhald & varahluti varðar.

Jæja - yfir&út!


Eymd Oddeyringa ...

57415238_428905894539102_8021642506716315648_nStórgott er strætó að brúka
í stuttu ferðirnar.
Oddeyringar eru að kúka
alveg í buxurnar.

Eymd Oddeyringa

AlbumImageÞeir láta ekki að sér hæða nyrðra hvar nú berast oss þær fréttir að um 700 bifreiðar séu á hverja 1000 íbúa í höfuðstað Norðlendinga. Takk fyrir túkall!

Það sætir nokkurrar undran að hafa urmul sjálfrennireiða þarna hvar gjaldfrjálst er í vini vora - vagnana - aukinheldur sem nokkuð stutt er í allar áttir. Nema hvað.

58381731 383179105614733 8545424501586788352 nVissulega er ekki fýsilegt að taka fram reiðfákinn yfir veturinn nyrðra en það ætti nú ekki að vera tiltökumál að ganga á milli staða eða skella sér í ókeypis unaðinn, vagnana.

Ætli það þurfi ekki einn SAS-ara (sérfræðing að sunnan) til þess að kíkja í heimsókn & reka ruglið burt & vanafestu Norðlendinga???

Þarf dr.-inn ekki bara að fara í enn einn leiðangurinn til Oddeyringa & sýna þeim hvílíkur unaður vagnarnir eru??? Hann hepði nær haldið það.

Yfir&út!


Grátlegt í gær ...

2AFA4C2A09507BEF01B662FE5671226B5F943B4E4977C87A7B420599224F9850_713x0Á vagninum varð tjón
verjarnir fundu til.
Sorgleg & ófögur sjón
sjá aptur ei ég vil.

Strætó á staur

1173985Það bárust óvenju margar fréttir af vögnum & vagnamálum í gær, hvar sú sorglegasta var efalítið þessi sem átti sér stað við Gullinbrú.

Einn af vögnunum á leið 24 lenti í árekstri við gámaflutningabíl. Á annan tug vagnverja var í vagninum & þurftu tveir þeirra á aðhlynningu að halda.

22C399F116C2B8B7DA672DB6E49C63AFE6DE5A7FEA3D7EBD4A4E9F91B6461E7F_300x160Vagninn virðist talsvert skemmdur en hann er í eigu Kynnisferða sem annast akstur á leið 24. Aukinheldur sést hann optsinnis í Voginum fagra á leiðum 35 & 36 en verður nú í fríi frá vígvöllum veganna um hríð.




Myndir: visir.is


Skelfing í Skerjafirði ...???

12Skrýtið í Skerjafirði
skerpa þarf verklag.
Vagnstjórinn allt vanvirðir
verður að kunna sitt fag.

Skelfing og hrollvekja

1045477_GK0ZsXe9Z4YC43F077ffvCx1oFa4zwtAhX_WSZtdSMgEnda þótt það sé afskaplega notalegt & indælt að koma inn í heitan strætisvagn á köldum vetrardegi, er það nú full mikið i lagt að vagnstjórar hafi vagnana í lausagangi meðan þeir (vagnstjórarnir) fá pásu sína.

bus-500x333Slíkt virðist vera raunin út í Skeljanesi við Skerjafjörð í myndbrotinu sem fylgir hér með. Hér er um endastöð að ræða hjá leið 12 & hlýtur það að vera í verklagi frá Strætó bs. að drepa skuli á vélinni meðan á tímajöfnunni stendur.

Koma svo kæru vagnstjórar - rífum okkur upp & hugum að umhverfinu.



(myndband http://eirikurjonsson.is/mannlaus-straeto-i-gangi-hrollvekja/, slóð sótt 26. nóvember)


Grár dagur ...

780-9f853a2cafÁ degi gráum dröttumst ekki
drossíunum gefum frí.
Vagninn góði & geðþekki
gleður okkur æ & sí.

Dr. Gylforce hefir tekið eptir því að loptgæði í höfuðborginni teljast aðeins miðlungs samkvæmt mælingum Umhverfisstofnunar. Sjá t.d. Loptgæði

grár dagurÁ kyrrum & köldum dögum sem þessum er gráupplagt fyrir höfuðborgarbúa að hvíla einkabílinn & kynnast hinum kynngimögnuðu strætisvögnum borgarinnar.

Á loftmengun eru líkur

að leiðum skulum gá.
Unaðurinn öngvan svíkur
endalaust notum þá.

Lítill hluti þeirra er aukinheldur umhverfisvænn hvar 15 rafvagnar (einn til reynslu) & 2 metanvagnar eru vonandi á vígvöllum veganna þegar þetta er ritað. Nema hvað.

Sjálfur fór dr. Gylforce hvergi dag þennan, hvar krankleiki hefir verið að stríða honum. Vonandi rís doksi kallinn úr rekkju á morgun. Hvað um það.

Yfir&út!



Eptir fjórtán ár á ferðinni ...

1Eptir fjórtán ár á ferðinni
mér finnst ég verðskulda
að stinga af úr (mennta)setrinu
sjá ei höfuðborgina ...

Dr. Gylforce virti allar viðveruskyldur sínar að vettugi vikudag þennan & kvaddi mennta- & menningarsetrið við Kársnesið með virktum, buktaði sig & beygði & hélt þegar í stað á vit vagna. Nema hvað.


2Tilefnið reyndist ærið hvar dr. Gylforce fagnar í dag fjórtán ára afmæli strætóbloggsins. Maður lifandi!!!

Dr.-inn hefir sönglað Halla & Ladda í allan dag enda á hann árin fjórtán sammerkt með systrunum úr Tungunum. En ekki hvað???

3Á þessum tímamótum bauð dr.-inn sjálfum sér upp á blágulan vagn úr Mjódd okkar Breiðhyltinga á leið út úr höfuðborginni, nánar tiltekið um Suðurlandið.

Dr. Gylforce sat sigri hrósandi í leið 51 & hugðist nú hafa upp á Tungunum; hvar er bærinn þeirra & hvað eru þær að sýsla þessi dægrin??? 

Doksi kallinn á aukinheldur ýmislegt sameiginlegt með þeim; klofinn upp að herðablöðum, kafloðinn & kiðfættur, vagngjarn & veðurbarinn - & ætíð vagnverji í spreng.

Hvað um það. Öngvar voru systurnar í ferð þessari en hún þó alger unaður frá A til Ö.  

Yfir&út!

Tvær úr Tungunum


Falleinkunn Fjarðarmanna ...

76695232_432733353991736_1166547769389744128_nFjarðarmenn með falleinkunn
fáránlegt þetta var.
Gremja & grátleg seinkun
- gerðu í buxurnar. 

Dr. Gylforce hapði pata af því að fjórir nýir Iveco vagnar væru komnir í gagnið hjá verktakanum suður í Firði. Nema hvað.

Verktakinn sá sér um akstur á innanbæjarleiðum í Hafnarfirði, 22, 33, 43 & 44 aukinheldur að hafa leiðir 11, 13, 23 & 31 á sínum snærum. Hvað um það.

Dr. Gylforce lagði leið sína í Fjörðinn & hlakkaði til að klófesta einn af þessum fjóru vögnum sem hafa fengið vinnunúmerin 224-227. 

Dr.-inn ætlaði í leið 44 kl. 13:52 & beið eptir honum í Firðinum. Klukkan datt í 13:52 & allir aðrir vagnar lögðu af stað en ekkert bólaði á leið 44 - eða hvað???

IMG_20191124_135216Í stæði leiðar 44 stóð vagn merktur leið 43??? Humm, humm????

Leiðir 43 & 44 víxla í Firðinum en þá verða vagnstjórar að vera á tánum & breyta númerinu áður en vagninn kemur inn í Fjörðinn. 

78172057_549875885803859_128058852271718400_nKlukkan var orðin 13.55 þegar 226 Iveco vagninn kom. Doksi varð ánægður enda tilgangnum náð; spekúlera í spánnýjum vagni. 

En hvað? Nei, nei, vagnstjórinn sagði "skipta bíl" þegar dr. Gylforce ætlaði inn í vagninn. Allt í lagi - en hvar í andsk. er þá hinn vagninn??? Vagninn átti að fara af stað fyrir þremur mínútum!!!

Loksins kom varavagninn, vagn 213, & lagði þá leiðin af stað klukkan 13:57 eða fimm mínútum á eptir áætlun. Það er slök frammistaða, einkum ef tekið er tillit til þess að dr.-inn ætlaði að ná í leið 1 annars staðar í Firðinum & nú var það nánast úr sögunni.

76651686_2717031178532659_3949783458775040000_nEnn leiðinlegra við þetta var að dr.-inn reyndi að sýna vagnstjóranum að vagninn ætti löngu að vera farinn. Honum virtist alveg sama, var reyndar að erlendu bergi brotinn en það ætti nú ekki að skipta máli. 

Fuss & svei! Fjarðarmenn fá því falleinkunn á þessum annars svala & fallega hvíldardegi.

Yfir&út!


 

 


Gegnheil þýsk gæði ...

IMG_20191123_121642Þýsk & gegnheil gæði
Gylforce líst vel á.
Indælt er & æði
ef fleiri munum sjá.

Sem fyrr ráfaði dr. Gylforce í reiðileysi um Mjódd okkar Breiðhyltinga, hvar hann sá hin þýskættuðu gráu gæði á vígvelli veganna; Mercedes-Benz rafvagninn. Jíbbíkóla!

Góðu heilli var rafvagninn þýski á leið 3 & inn sté dr.-inn - en ekki hvað???

IMG 20191123 114624IMG 20191123 121124Svo virðist sem innanrýmið í Þjóðverjanum sé minna en í t.d. í rafvögnunum úr Austri. Það er t.d. aðeins ein apturdyr.

Öngvu að síður eru þýsku gæðin hvarvetna & vagninn allur hinn vandaðasti. Aukinheldur fannst dr. Gylforce hann aflmeiri en hinir rafvagnarnir en það var auðvitað bara tilfinning því ekki var doksi kallinn undir stýri.

Kínversku rafvagnarnir eru fínir en að mati dr.´s örlítið hastir. Slíkt finnur maður ekki hjá hinum þýðlynda Þjóðverja. Nema hvað.

75220811_10220151288270480_2026927772881911808_oDr. Gylforce var heppinn & fékk síðustu ferðir vagnsins niður á Hlemm & aptur í Mjóddina hvar hann var síðan tekinn úr akstri. 

IMG_20191123_114934Ætli það þurfi ekki að hlaða vagninn? Dr.-inn þekkir ekki drægni MB-vagnsins en hún er u.þ.b. 320 kílómetrar hjá rafvögnunum úr Austri.

Sá þýski verður til reynslu næstu vikurnar & vonandi nær dr. Gylforce rafvagninum mjög opt þvi honum leist afar vel á hann. 

Ó, vagn minn vinur mesti
víst þú ert sá besti.
Æ, breið þú Benza þína
á breiðgötuna mína.


& hvað fæst fyrir 7000 milljónir kr. ...???

Jú, það sem fæst fyrir það er t.d. eitt stykki leiðakerfi Strætós. Takk fyrir túkall!

Framlag sveitarfélaga eru tæpir 4 milljarðar á ári í rekstur Strætós, ríflega 2 milljarðar koma í gegnum fargjöld vagnverja & að lokum styrkir ríkið almenningssamgöngur um ca. 900 milljónir með samningi frá árinu 2012. Gildir hann til 10 ára. Nema hvað.

Í framhaldi af þessu má vitaskuld spyrja spurningarinnar: Erum vér vagnverjar að fá besta mögulega leiðakerfið fyrir þessar 7000 milljónir???

Vonandi nær nýja leiðanetið að hámarka þessa háu fjárhæðir þótt dr.-inn hafi nú nokkrar efasemdir um að aptur eigi að láta oss vagnverja almennt ganga lengra að næstu stoppistöð með það að markmiði að vagninn sé fljótari í förum. 

Doksi kallinn hefir heyrt það áður - maður lifandi!



Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband