Landsbyggðarvagn í vanda ...

sba 56Í bobba nú blágulir
bölvanlegt máske.
í dreifbýlinu dulir
djöfullinn er að ske???

Vagnar í vanda

Í upphafi ársins 2020 mun Vegagerðin sjá um allan akstur landsbyggðarvagna sem hafa hapt blágulan lit sem einkenni sitt. Nema hvað.

44474698_249924592536365_6628654316200656896_n55Verktakinn Hópbílar hafa að megninu til séð um akstur þennan en nú virðist öreindið þrjóta hjá sveitarfélögunum á landsbyggðinni & senda þau boltann yfir til Vegagerðarinnar. Líklegt má telja að stofnunin sú muni bjóða út akstur þennan á næsta ári.

Í sjálfu sér skiptir litlu máli hver sér um aksturinn. Vagnverjar þurfa vitaskuld á góðri þjónustu að halda & hafa hana samræmda við Strætó bs. hvað tímatöflur & helst skiptimöguleika varðar.

Vonandi þýðir þessi breyting ekki að sérleyfin koma aptur & alls kyns verktakar hefja akstur á ýmsum leiðum með lítilli sem öngvri samræmingu. 

Þá verður illa komið fyrir blágulu vinum vorum. Maður lifandi!

27164499_10155409483748348_8984493212304877399_oEn hví notar fólk ekki þann blágula meir en raun ber vitni? Ætli það sé ekki verðið, það er of dýrt í vagnana. Sem dæmi er hægt að fá flug til Akureyrar á sambærilegu verði og vagninn; 45 mínútna flug ellegar 6,5 klst ferð með vagninum (unaðsferð reyndar)???

Valið er auðvelt hjá flestum.

Vonandi koma framsýnir verktakar sem þora að lækka verðið, halda uppi öflugri þjónustu & fjölga með því vagnverjum umtalsvert & ná að snúa blaðinu við.


Á að taka Viljann fyrir verkið ...???

viljinnVefmiðillinn Viljinn sendi á dögunum Strætó bs. fyrirspurn um nýtingu á vögnum byggðasamlagsins. Að mörgu leyti er það góð & þörf spurning enda er svarið allra athyglivert.

Kíkjum á það:

"Fjöldi innstiga í Strætó á höfuðborgarsvæðinu árið 2018 var 11.405.700. Fjöldi ferða sem farnar voru árið 2018: 642.865

Við erum með „fjölda farþega árið 2018“ og deildum honum með „fjölda ferða sem farnar voru árið 2018“. Þannig fengum við út tölu fyrir „Fjölda farþega í ferð“.

68474591_10157064374660860_8187674118334709760_o51034543_384992932274059_6182374434955853824_nSumsé, 17,7 vagnverjar eru í hverri ferð og alls komast um 85 í troðfullan vagn. Það gerir um 20,8% nýtingu í hverri ferð sem er ekki hátt hlutfall.

1E06FD7C CE81 4F98 B835 AD33ED7A268CHinsvegar er ekkert getið um það að yfirleitt eru um 34 sæti í einum venjulegum strætisvagni og því sætanýtingin vel yfir 50% í hverri ferð. Það er að mati Gylforce-ins athyglisvert & hærra en hann hélt. Hvað um það.

Hver eru þá næstu skref Viljans? Hlýtur það ekki að vera að hafa samband við Félag íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, eða Samgöngustofu og fá upplýsingar um hlutfallið í einkabílum? Það hepði dr.-inn haldið.

Augljóslega verða þær tölur hærri en 20% enda hlýtur að vera fleiri en 1 í hverjum 5 manna bíl (vonum það!!!)

68517609 923878384637050 8458117905337286656 nEða er ætlunin með grein þessari að kasta rýrð á almenningssamgöngur? Getur það verið? Það er aukinheldur skrýtið að segja í greininni "við höfum séð sambærilegar tölur fyrir Norðurlöndin" Hvar er þær tölur? Af hverju eru þær ekki settar fram í greininni? Eru þær hærri/lægri? Líklega hærri en hvað veit maður??? 

Má dr. Gylforce biðja um betri & nákvæmari vinnubrögð í næstu grein. Maður lifandi!

Ég Viljansrök aptur rek
unaðinn hann letur.
Viljann fyrir verkið þó tek
vanda skal sig betur.

Vaðall í Vilja


Mórall í molum ...???

CaptureMórall í molum??? 

Styr er meðal stjóra
stemmningu áfátt.
Þeir ættu nú að þjóra
þá er von um sátt.

18452331_10154733362473348_1405239922_oDr. Gylforce hepði nær haldið að best væri fyrir framkvæmdastjóra byggðasamlagsins & mannauðsstjórann að finna þessar óánægjuraddir sem fram koma í ofanverðri frétt & hefja samtalið í snarhasti. Maður lifandi!

23 6 bHjá Strætó & verktökum þess starfa á sjötta hundrað starfsmanna & ljóst að eitt & annað gengur á í dagsins önn. Nema hvað. Það gerist örugglega á öllum vinnustöðum með þennan starfsmannafjölda - & þarf hann líklega ekki til.

Hinsvegar er dapurlegt til þess að vita að ef kergja kemur upp rjúki starfsmenn með gögn í blaðamenn í stað þess að leysa málið innanhúss. Slík vinnubrögð eru fáum til framdráttar.

Aukinheldur er það heldur ódýr útskýring hjá framkvæmdastjóranum að málið sé persónubundið eins & kemur fram í fréttinni. Hann á vitaskuld að einhenda sér í að leysa málið eins fljótt & auðið er.

Koma svooooooo - verum öll gul & glöð á nýju ári & tilbúin að rata hinn gula meðalveg!


Gjaldskrárhækkun ...

21277729 10155053540873348 1968963717 oGjaldskrárhækkun

Tombóluverð, það tel ég víst
trauðla er að djóka.
Unaður sem alltaf þú kýst
útkoman er sem jóga.

18426229_10154731390778348_30638254_oÍ vagninum ég friðinn finn
fer með honum víða.
Andleg næring dælist inn
- eins& að detta í´ða.

Strætó bs. hefir tilkynnt hækkun á gjaldskrá um liðlega 2% um áramótin eins & líklega flest fyrirtæki & stofnanir munu gera. 

Stakt fargjald með unaðinum verður því 480 kr. & mun hækka um 10 kr.

Fyrir nokkrum misserum ákvað stjórn byggðasamlagsins að fylgja verðlagsþróun í landinu & hækka gjaldið reglulega í stað þess að halda því niðri lon & don, springa svo á limminu & hækka duglega með tilheyrandi harmakveini.

Yfir&út!

 


Gleðilega hátíð vagnverjar ...

Bráðum kemur Benzinn okkar
eða bljúgur Ivecó.
Inn í þeim er alltaf fallegt;
afslöppun & hugarró.

Bráðum kemur Benzinn okkar
eða brosleg Scania.
Inn í þeim er alltaf fallegt:
öngvin fokking manía!

Hvurnig vagn jú veit nú öngvin
sem vísa mun okkur heim.
En eitt er víst að alltaf verður
ákaflega ljúft í þeim.


Brjálaður barítónspabbi ...

14Frétta- & blaðamennska nú á dögum virðist ganga mikið út á að fjölmiðlamenn sitja yfir samfélagsmiðlum, finna þar jafnvel forvitnilegar - en furðulegar - færslur frá alls kyns fólki, kanna heldur lítið fleiri en eina hlið á málefninu & slengja þessu síðan út í kosmósinn.

Viðurstyggilegur vagnstjóri???

Með barn undir belti
brjálaður er pabbi.
Vagnstjóri hana hrelldi
hann er nú kúkalabbi.

Þetta er bara beisikk - allir vagnverjar fara út að aptan!!!




Mynd: mbl.is/hari


Keyra um Hverfisgötu í nátt ...

469280Næturvagn er vinarþel
viljir þú lengi djamma.
Hverfisgötu keyra vel 
þú kneyfar ölið ramma. 

Næturvagnar um Hverfisgötu á ný

hverfi skatan 2Í nátt hefja næturleiðir Strætó akstur um Hverfisgötuna á nýjan leik. Góðu heilli & verður fróðlegt að vita hvort það komi ekki til með að mælast vel fyrir hjá nátthrafna- & djammaravagnverjum. Nema hvað.

74589855_381459556072442_1669302257214029824_nIllu heilli hefir dr. Gylforce ekki enn skellt sér í næturvagninn. Það er slök frammistaða sem hann verður að gera bragarbót á. Doksi kallinn á sér engar málsbætur; verður bara að hysja upp um sig & kanna stuðið & stemmninguna í næturakstrinum.

Koma svoooo - rífðu þig í gang dr.!!!


Fárviðri framundan ...

707700Framundan er fárviðri
fara vagnar lítið.
Liggur þeirra net niðri
næstu ferðir í bítið.

Ofsaveður

798077 (4)Það stefnir í verulegar truflanir hjá vinum vorum - vögnunum - í dag, hvar Veðurstofa Íslands gerir ráð fyrir ofsaveðri síðdegis.

fr_20150310_010116 (4)Landsbyggðavagnarnir blágulu verða ekkert á ferðinni eptir hádegið & hinn fagurguli höfuðborgarvagn mun efalítið lenda í miklum vandræðum eptir kl. 15 ganga spárnar eptir.

799015Það er því um að gera að koma sér til síns heima fyrir þann tíma; fá sér heitt kakó, kveikja á kertum & hafa það kósý fyrir framan gott strætóblogg :) meðan veðrahamurinn lýkur sér af.


Hverfisgötu nú keyra ...

916-65201c10c7Um Hverfisgötu keyra
kætir doktorinn. 
Mun ég nú fara meira
niðrí miðbæinn.

hverfi skatan 2Hinn bísperrti & fráleitt brjálsami dr. Gylforce beið öngvra boða hvíldardag þennan, hvar hann brá sér rakleitt í vagn niður Hverfisgötuna. En ekki hvað???

hverfi skatanUpp og niður Hverfisgötu á ný

Gylforce-inn tók tólfuna að þessu sinni en frá & með deginum í dag munu leiðir 1, 6, 11, 12, 13 & 14 aka um Hverfisgötu í stað Sæbrautar.
78923327_2607548009311139_6024044988189376512_n
Þessu ber að fagna. Nú verður mun skemmtilegra að fara í miðbæinn, sérstaklega í desember & upplifa stemmninguna.

Vögnunum virtist ganga vel að aka um nýuppgerða götuna sem er vel því opt & tíðum reyndist hún þröng hér áður fyrr.

Dr. Gylforce hlakkar til næstu ferða um þessa einu af höfuðgötum miðbæjarins & vonandi velur doksi kallinn aðrar leiðir en þá tólftu.

Yfir&út!


Fjarki, þristur - Jesús ...

799508Held ég senn á vagnavit
verjanna á meðal.
Þægilega í þristi sit
þetta verður eðal!

strætóMeð fjarkanum glaður fer
um Fell í Breiðholti.
Farþeginn þar fjölmargt sér
er fyllir hann stolti.

Hinn bænheyrði & blessaði dr. Gylforce brá sér lox af bæ, hvar hann hitti fyrir leiðir 3 & 4. Nema hvað.

Eptir að hafa setið vel að sumbli, aftaninn verarlanga, var komið að því að halda á vit vagna - en ekki hvað???

40428424_997353330447376_5205293207889379328_nÞað gladdi hið gamla hró dr. Gylforce hvar raðnúmerin 176, 177 & 178 voru á vachtinni á leið 3 þetta svala en þó fagra laugardagskvöld. 

Rafvagnar sáust aðeins á leið 4 hvar dr. Gylforce náði þeim ekki - illu heilli. Aðeins náði hann í skottið á 174 Iveco Crossway vagni. Hvað um það.

Á morgun, sunnudaginn 8. desmeber, hefja vinir vorir - vagnarnir - aptur ferðir niður Hverfisgötuna sem er mikið fagnaðarefni. Dr.-inn verður efalítið með í för á einhverjum leiðum. En ekki hvað???

Hipp-hipp-húrrey!!!


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband