Held nú í Flórídaferð
fokking olræt!
Bus-ar þar af bestu gerð
& but light.
Hinn útitekni & affæragóði dr. Gylforce ku alsæll vera þessa dagana hvar hann hyggur á vagnarannsóknir í henni Ameríku næstu daga. Maður lifandi!
Dr. Gylforce ber niður í Orlando í Flórída að þessu sinni & verður fróðlegt mjög að sjá í landi einkabílsins hvurnig almenningssamgöngum reiðir þar af.
Spenna!
Bloggar | 20.2.2019 | 08:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Með raunir mínar rogast
rata inn í vin.
Að spánnýjum ég sogast
sit þar auðfundinn.
Hinn gæfi en guðhræddi dr. Gylforce gekk til vina sinna - vagnanna - hvar hann hapði eigi hug á því að horfa á júrakeppnina á Rúv líkt & þorri vagnverja. Nema hvað.
Eptir góðan en stuttan rúnt með leið 4 sá doksi kallinn einn spánnýjan vagn á leið 11 í Mjóddinni sem ættaður er sunnan úr Firði. Málið var steindautt.
Inn vildi dr.-inn.
Dr. Gylforce sté stoltur inn í glænýjan & glæstan 221 Iveco Crossway á leið 11 við Mjóddina. Það eimir enn af nýju lyktinni inn í honum sem einkennir nýjar sjálfrennireiðar. Maður lifandi!
Dr.-inn hélt mjúkur & meyr með vagninum alla leið að Þjóðleikhúsinu hvar hann ákvað þar að skella sér í leið 13 en á leið þeirri eru líka nýir vagnar. Unaður.
Aukinheldur sást einn rafvagn á vaktinni á leið 4, 168 Yutong úr Austurvegi, en illu heilli náði dr.-inn ekki eiga unaðsþrásetu með honum að þessu sinni.
Yfir&út!
Samgöngur | 17.2.2019 | 08:20 (breytt kl. 08:30) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Almenningssamgöngur fyrir landið allt
Það er óhætt að segja að ánægjuleg tíðindi berist úr ranni stjórnsýslunnar þessa dagana hvað almenningssamgöngur varðar.
Ráðherra málaflokksins, Sigurður Ingi, kynnti á dögunum að í bígerð sé að samræma allar almenningssamgöngur í landinu og setja á stofn einn samræmdan upplýsingavef. Það yrði afskaplega kærkomið fyrir vagnverja, flugverja & sæfarendur, maður lifandi.
Þá er aukinheldur stefnt að því að hafa fimm stærri skiptistöðvar á landinu þar sem huga þarf að skipulagningu á samgöngumiðstöðvum. Þær yrðu á höfuðborgarsvæðinu, Borgarnesi, Akureyri, Egilsstöðum og Selfossi. Sjö minni skiptistöðvar kæmu einnig til að vera í kerfinu fyrir afmarkaðri svæði.
Dr. Gylforce á eptir að skoða til hlítar stefnu þessa í samráðsgátt stjórnvalda en það sem komið er, líst honum afar vel á.
Vitaskuld er skrýtið að árið 2019 sé enn verið að vinna að stefnu eins & þessari en eigi að síður vel gert hjá samgönguráðherranum og ráðuneyti hans.
Samgönguráðherra sýnir dug
sá mun verja kæta.
Allir vagnar, ferjur & flug
ferðalög munu bæta.
Samgöngur | 16.2.2019 | 10:55 (breytt kl. 22:16) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hingað ég leita & hér ég dvel
í hlýjum sætum þínum.
Glaður ég þér mína forsjá fel
með fallegum ljóðlínum.
Bloggar | 15.2.2019 | 08:17 (breytt 16.2.2019 kl. 10:57) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kerfið út úr korti
kemur ei mín leið.
Paufast í þessu porti
pungsveittur ég beið.
Hinn glaði en guðhræddi dr. Gylforce fór ekki varhluta af seinkunum í hinu lostfagra leiðakerfi Strætós í gær, hvar hann þurfti að bíða lon & don í Mjóddinni. Nema hvað.
Dr. Gylforce var aldrei þess vant vopnaður snúru úr síma sínum, hvar hann langaði að nýta sér plöggin í rafvögnunum. Doksi kallinn sá aukinheldur að rafvagnarnir voru venju samkvæmt á leiðum 3 & 4 & vildi þar inn. Því beið hann & beið. & beið & beið. Öngvir komu vagnarnir enda háannatími & færð á vígvöllum veganna með heldur lakara móti. Hvað um það.
Dr.-inn þraut svá öreindið & tók einn af gömlu Citelisvögnunum á leið 2 & Karosa á leið 4 tilbaka frá Hamraborg. Ekki það sem til stóð en það gengur bara betur næst.
Bloggar | 14.2.2019 | 15:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Í þristinum æstur er
orðbragð viðhafði.
Þjösnaðist við þjónustuver
þrasaði & tafði.
Hún var heldur skrýtinn ferð dr. Gylforce með leið 3 á laugardaginn. Doksi kallinn settist inn í vagninn við Hlemminn um kl. 15:50 enda hapði hann hug á að endurnýja kynni sín Sæbrautina & Hörpu. Nema hvað.
Við Háskóla Íslands gerðist leiðinlegt atvik. Vagnverjar af erlendu bergi brotnir, líklega ferðamenn, ætluðu út en virðast hafa gleymt að ýta á stanz-rofann. Vagninn stoppaði þó því inn vildu nokkrir vagnverjar.
Þegar vagninn lagði af stað ýttu þau lox á bjölluna en það reyndist of seint. Brást þá íslenskur verji ókvæða við, rauk fram til vagnstjórans & las honum pistilinn. Illu heilli virðist sá er sat við stýrið hafa verið með heyrnartól og því ekki heyrt þegar kallað var á hann. Það var að mati dr.´s það eina sem hann hepði betur getað gert.
Sá íslenski hapði ekki lokið máli sínu. Ó-nei. Hann settist aptur, tók upp tólið & hringdi látlaust í þjónustuver Strætós.
Þar virðist hann hafa verið settur á bið sem var vart að hans skapi. Hann settist við að skrifa í símann kvörtun líklega & tók myndir í vagninum í gríð & erg. Aukinheldur hapði verji þessi á orði við fólk í kringum sig að vagnstjórinn æki eins & óður maður en ekki tók dr.-inn nú eptir því.
Þvert á móti var vel gert hjá vagnstjóranum að ná að koma tímanlega í Mjóddina en urmull vagnverja var um borð & ugglaust erfitt að halda áætlun á þessu laugardagssíðdegi. Hvað um það.
Vonandi er vagnverji þessi búinn að ná sér & heldur áfram að taka vini vora, vagnana.
Yfir&út!
Bloggar | 11.2.2019 | 11:34 (breytt 12.2.2019 kl. 12:50) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Safnanáttin um að ske
safna milli ekur.
Eðalleiðir A til D
unað minn upp vekur.
Um helgi þessa er hin sívinsæla Safnanátt sem ku vera hluti af Vetrarhátíðinni. Strætó bs. hleypir þá af stokkunum fjórum nýjum fríkeypis leiðum sem bera bókstafina A-D.
Leiðirnar munu aka milli safna á höfuðborgarsvæðinu & er gráupplagt fyrir vagnverja að nýta sér þá. Strætó kemur aukinheldur meira við sögu á safnanátt þessari & er hægt að lesa meira um það hérna.
Yfir&út!
Mynd: strætó.is
Samgöngur | 8.2.2019 | 16:10 (breytt kl. 16:13) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vagnstjórinn á vappi
Brunandi á brautinni
bílstjórinn atarna.
Vagnstjórinn á vaktinni
verndarengill barna.
Vagnstjóri á leið 4 í gærkvöldi sýndi snarræði & snilld sína hvar það blasti við honum ófögur sjón í Voginum fagra.
Börn biðu eptir vagninum við Engihjallann & kom þar einhver aðvífandi & réðst á blessuð börnin. Góðu heilli vippaði hann sér út úr vagninum & elti ódæðismanninn uppi. Skömmu síðar komu laganna verðir & tóku við.
Vel gert en hvað varð um vagn hans & vagnverja á meðan??? Bara chill & bið???
Samgöngur | 7.2.2019 | 15:59 (breytt kl. 16:06) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ekki er kúl kyrrsetan
kvölin töluverð.
Gulgrænum mætti metan
á mikilli ferð.
Dr.-inn hrósaði happi hvar hann gat loxins stigið upp úr stól eptir uppfræðslu ungviðisins & haldið á vit vagna.
Illu heilli fór dr. Gylforce á mis við 118 metanvagninn í Mjóddinni sem var á leið 4. Það gladdi þó hið gamla hró doktors að sjá metanið á fjarkanum, ekki opt sem það gerist. Hvað um það.
Vonandi nær dr.-inn að njóta þjóns náttúrunnar sem allra fyrst, helst á morgun.
Amen.
Samgöngur | 6.2.2019 | 19:08 (breytt kl. 21:48) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vagnverjar eins & við
verum eigi hrædd.
Breytingar settar í bið
Borgarlína rædd.
Breytingar aðeins að hluta
Byggasamlagið Strætó sendi frá sér fréttatilkynningu í dag, hvar vakin er athygli á því að enn frestast sumar breytingar á ýmsum leiðum vegna framkvæmda á Landspítalareitnum.
Um næstu helgi koma til framkvæmda nokkrar breytingar sem finna má í slóðinni hér að ofan. Svá verður gefið meira í hinn 26. mars með veigameiri breytingum. Þar má benda á akstur leiða 5 & 15 sem fara munu m.a. um Barónsstíg & Egilsgötu í ferðum sínum til & frá Hlemmi. Spennandi.
Á meðan þessu líður skrafa kjörnir fulltrúar á hinu háa Alþingi um samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar en þar er m.a. að finna kafla um Borgarlínuna.
Vonandi horfa þingmenn eigi til austurs & halda til klausturs í kvöld, heldur einbeiti sér að samgönguáætluninni & ljúki annarri umræðu um hana sem allra fyrst.
Yfir&út!
Samgöngur | 5.2.2019 | 19:02 (breytt kl. 19:34) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.3.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar