Milljón ellegar munaðurinn???
Ein milljón á ári
í umferðarfári.
Eða undir hundrað
sem er vert undra
& magnaðar ferðir fjári.
Byggaðsamlagið Strætó heldur ótrautt áfram að hvetja alla til þess að nýta sér vistvæna samgöngumáta á borð við vagnana, vini vora. Nema hvað.
Nú hefir samlagið í samstarfi við tvö önnur firma á boðstólum 50% endurgreiðslu á tveimur fargjöldum í gegnum Strætó appið. Gildir þetta kostaboð í júní.
Þá kemur aukinheldur fram í fréttinni hér að ofan að árlegur rekstrarkostnaður bifreiðar er um ein milljón króna. Árskort í strætó er undir 70.000 kr. Yfirleitt duga nú vagnarnir ekki einvörðungu en ef verjar vorir eru snjallir & skynsamir geta þeir notfært sér deilibíla (zip car), fengið far, brúkað hjólfákinn & vitaskuld hina margrómuðu - tvo jafnfljóta.
Með því móti er hægt að spara sér umtalsverðar fjárhæðir sem flestir myndu taka fagnandi. Maður lifandi - en ekki hvað???
Efsta mynd: eyjan.is
Samgöngur | 4.6.2019 | 17:18 (breytt kl. 17:50) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Leið leiðanna, leið 1, ber ægishjálm yfir aðrar leiðir hvað fjölda vagnverja varðar. Nema hvað.
Langflestir verjarnir gera sér far með leið þessari sem hefir leik suður á hafnfirzkum völlum & ekur beina & fagra leið um lendur Garðbæinga, Kópvæginga; framhjá Kringlu, HÍ, Lækjartorgi hvar hún lýkur leik við Hlemmtorgið huggulega. & svá aptur tilbaka - en ekki hvað???
Í ljósi þessarar talna um vagnverjanna vekur það nokkra undrun hjá dr. Gylforce að 1. áfangi Borgarlínunnar skuli ekki ná allavega frá Firði um Hamraborg & þaðan í miðbæinn. Áætlanir línunnar gera ráð fyrir að hún hefjist við Hamraborg & fari niður í bæ um Kársnesið & svá fari úr bænum upp í Ártún. Hvað um það.
Þá er aukinheldur furðulegt að leið 6 hefir sömu tíðni, 10 mínútur á annatíma eins & leið leiðanna, leið 1. Aðrar ekki. Upp úr dúrnum kemur að sexan, leið 6 er aðeins fjórða vinsælasta leiðin í hinu lostfagra leiðakerfi.
Næstar á eptir ásnum eru leiðir 12, 3 & 4. Munar reyndar litlu á leiðum 3, 4 & 6 en samt eitthvað sem byggðasamlagið þarf að skoða vandlega enda hefir það í bígerð að auka tíðni á aðalleiðum sínum niður í 7,5 mínútur.
Það verður spennandi að sjá hvort eitthvað verði til í peningakassanum til þess að hrinda því í framkvæmd. Vonandi.
Amen.
Vagnverjinn situr í ásnum
voldugur & stór.
Í unaðinum innblásnum
umlar sitt faðir vór.
Hún er ein af okkar djásnum
eptir mikið þjór.
Fráleitt fer hjá Grensásnum
finnst þar öngvinn bjór.
Samgöngur | 2.6.2019 | 12:07 (breytt kl. 12:46) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hinn sérhlífni & síngjarni dr. Gylforce hefir nú opt ætlað sér hagldirnar en hinum töglin í lífi sínu. Hvað um það.
Það hefir vakið gjörhygli Gylforce-ins í ársskýrslu Strætó bs. hvað svipaður fjöldi vagnverja virðist nota hringleiðirnar 35 & 36 í Voginum fagra. Fyrir nokkrum árum var akstri á leið 36 hætt í hagræðingarskyni & líka vegna þess hve fáir nýttu sér ferðirnar.
Góðu heilli virðist nú annað uppi á teningnum. Fyrirfram hepði það ekki komið dr.-num á óvart ef leið 35 - réttsælis að Hamraborg - væri vinsælli en sú er fer rangsælis að borginni háu & fögru.
En getur verið, að tölfræði byggðasamlagsins sé einfaldlega betra nú en áður??? Á síðasta ári var í fyrsta sinn sama tíðni á öllum leiðum allt árið & því loxins hægt að skoða fjöldann á öllum leiðum. Í ár kemur örlítil skekkja í tölfræðina hvar þrjár leiðir 18, 24 & 28 hafa ekki sömu tíðni allt árið & dregið er úr ferðum á kvöldin.
Vonandi er þetta síðasta árið með þessu skerðingarrugli. Nema hvað.
Um Kópavog í kringum
keyra leiðir tvær.
Í unaðlegum hringum
eru báðar þær.
Samgöngur | 1.6.2019 | 14:17 (breytt kl. 14:36) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.3.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar