Á öfugum akreinum ...???

E180E0EC-FF82-4DA9-BF15-9CA8A6F117F6Vagninn í aðra átt
á öfugum vegi?
Mun nást saman sátt?
Slíkt veit ég eigi.

Vill strætó á öfugar akreinar

Hún er allra athygliverð tillagan sem framkvæmdastjóri Strætós setti fram á Rás 2 í morgun. Reyndar hefir þetta heyrst áður en nú er ljóst að aðgerða er þörf & bið er eigi í boði lengur.

Framkvæmdastjórinn vill að vagnarnir fái að aka á akrein í hina áttina á annatíma, hvar fáir eru á ferli í gagnstæða átt við umferðarþungann. Eðli málsins samkvæmt eru allir á sömu leið & því vel hægt að nota eina akrein í hina áttina fyrir vagnana. Þetta er í senn vel gerlegt og spennandi verkefni.

1132412Hinsvegar þarf væntanlega töluverðar framkvæmdir til þess að unnt sé að koma þessu í kring & huga sérstaklega vel að öryggisþættinum. 

Þar sem þetta hefir verið gert erlendis er opt notast við steypuklumpa sem eru ofan í jörðu & settir eru upp á ákveðnum tímum, t.d. á morgnana virka daga & síðdegis.

Vonandi verður þetta skoðað strax af alvöru því ljóst er að umferðarmálin eru í ólestri í borginni & ekki nóg að bíða bara eptir Borgarlínunni.

Strætó er alveg jafn fastur í umferðinni á flestum stöðum eins & aðrir. Alltof fáar sérakreinar eru fyrir hendi en um það hefir dr. Gylforce rætt & ritað hér á þessum vettvangi í urmul ára.

Koma svo!

Yfir&út!


Leiðir & umferðarlykkjur ...

69359358_741350379640654_2178613089925070848_nLífið eru lyklar
er leita að skrá.
Leiðir eru miklar
sem langar mig að sjá.

Nú sem fyrr eru vagnarnir - vinir vorir - heldur betur í þjóðfélagsumræðunni. Nema hvað - maður lifandi!

Umferðarþunginn á höfuðborgarsvæðinu á morgnana virðist vera að ná nýjum hæðum eða lægðum öllu heldur, hvar halarófurnar lengjast bara og lengjast. Illu heilli.

Vefmiðillinn mbl.is fór á stúfana & hefir verið að velta umferðartöfunum fyrir sér. Eitt innslagið leit dagsins ljós í dag hvar skólameistari Borgarholtsskóla í Grafarvogi var tekinn tali vegna umferðarþungans. Af loptmynd af skólalóðinni hjá honum að dæma virðist hver einasti nemandi - 1350 stykki - vera á bíl með tilheyrandi plássi fyrir þann fararskjóta. Það eru MÖRG bílastæði!

Skólameistari vill frítt í strætó

downloadSkólameistarinn ræddi þar að margir nemendur hans séu um 1,5-2 klst. á leið til og frá skóla. Ef við gefum okkur það að nokkur hundruð nemendur séu einn & hálfan tíma til & frá vinnustað sínum virðast þeir vera um 45 mínútur hvora leið, ekki satt? Það finnst meistaranum alltof langur tími ef dr.-inn skilur viðtalið rétt.

Ósjálfrátt fór dr. Gylforce að líta í eigin barm. Kom þá upp úr dúrnum að dr.-inn er 32 mínútur frá Stútulautarseli sínu að mennta- & menningarsetrinu við Kársnes. Hafa ber í huga að Borgarholtsskóli er lengst upp í Grafarvogi & seint talinn í miðju höfuðborgarsvæðisins eða hvað??? 

sba 56M.o.ö. það er ekki skelfilegur ferðatími fyrir ungmenni að ferðast 45 mínútur í skólann sinn. Þá klykkti skólameistarinn út með því að langbest væri að gefa grunn- & framhaldsskólanemendum frítt í strætó. Það er fín hugmynd svo sem - tökum hana síðar.

44474698_249924592536365_6628654316200656896_nHvað um það. Á morgun hyggst dr. Gylforce taka sér far með einum blágulum vagni & halda í vesturátt. Hipp-hipp húrreyyy!




Í blágulan brátt held 
Borgarnes mér kynni.
Í kósístund & kveld
með kærustunni minni. 


Munaður í morgunsárið ...

69960060_2494275870829528_2869813446864535552_n69397509_618644388663542_4147266450182111232_nHinn lúrni & letilegi dr. Gylforce lagði af stað í unaðinn - vagnana - í morgunsárið, hvar hann loksins gat litið aðeins á stemmninguna snemmindis. Nema hvað.

Munaður í morgunferð
með mínum vinum.
Bíltúrinn af bestu gerð
bið ég fyrir hinum. 
(sem ekki nýta sér unað þennan)

Dr. Gylforce fékk vitaskuld rafvagn á leið 4 & var ekki lengi að nýta sér töskuhólfið í þessum kynngimagnaða & umhverfisvæna vagni frá kommúnistunum í Kína. En ekki hvað???

Ferðin var þéttskipuð - góðu heilli - & aksturslag vagnstýrunnar til fyrirmyndar. 

Dr.-inn gerði svá stuttan stans í leið 35 frá þeim Kynnisferðum til þess eins jú að komast í mennta- & menningarsetrið hér við Kársnes & kastala.  Hann var heldur kaldur & napur stutti Iveco Crossway vagn þeirra & greinilega ekki búið að hita hann nógu vel upp fyrir okkur vagnverjana.

Koma svoooo Kynnisferðir - koma svoooo!


Öngvin árskort ...???

downloadÖngvin árskort til?

Hún er heldur skrýtin fréttin þess efnis um að einhver handvömm hafi orðið þess valdandi að ekki eru til nein árskort til þess að gefa út hjá Strætó bs þessi dægrin. Maður lifandi!

Vonandi kippir starfsfólkið því í liðinn en það kemur aukinheldur farm í fréttinni að hægt er að notast við Strætóappið á meðan á þessu óþægindatímabili stendur.

App er happ!



Vörumerking í vitleysu
verjar með ekkert kort.
Verðum að vera án reisu
vont er að líða skort.


Farþegum fjölgar ...

E180E0EC-FF82-4DA9-BF15-9CA8A6F117F6Er lífið á tundr´& tjá
& tilgangslaus þula?
Finndu þína ferðaþrá
farðu með þeim gula.

Farþegum fjölgar

Það berast heldur betur ánægjuleg tíðindi úr ranni Strætós bs. hvar farþegum/vagnverjum hefir fjölgað um heil 400.000 á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við árið í fyrra. Hipp-hipp-húrrey!!!

Það hefir nú verið kveikt í vindlum við minna tilefni - maður lifandi!

AlbumImage (1)Eins & optsinnis hefir verið rætt & ritað um hjer þarf stjórn & starfsfólk byggðasamlagsins að hafa þolinmæði í störfum sínum & einnig sveitarstjórnarmenn á höfuðborgarsvæðinu.

Dropinn holar steininn.

Nú er bara að halda áfram á sömu braut & reyna með öllum tiltækum ráðum að hækka hlutfall Strætós í heildarferðum fólks á höfuðborgarsvæðinu. Illu heilli hefir sú tala - sem er í dag 4% - staðið í stað í of mörg ár.

Nú er lag.

Yfir&út!





Kársnesið rokkar ...

69530533_3177181862299508_4981906787683794944_nHinn dagfarsprúði & dreymandi dr. Gylforce dólaði sér í hringleiðirnar um Kársnes þeirra Kópvæginga í gærkvöldi. Nema hvað.

Leiðir 35 & 36 virðast hafa svipaðan fjölda af vagnverjum samkvæmt talningu byggðasamlagsins sem er gleðiefni. Doksi kallinn tók tvo rúnta með leið 35 & einn með leið 36 síðla kvölds hvar það örlaði á örlítilli rigningu. Maður lifandi!

36Vagnstjórar á leiðum 35 & 36 hepðu mátt hafa puttann aðeins betri á púlsinum hvar þeir lögðu í bæði skiptin tveim mínútum of seint af stað úr Hamraborginni. Hvað um það.

Dr. Gylforce lauk ferðum sínum með fjarkanum frá Hamraborginni háu & fögru yfir í fegursta lautarsel jarðarinnar. Ekki spillti fyrir að fá hinn umhverfisvæna vagn úr Austri. Nema hvað.

Um Kársnesið ég keyrði
kósí leið & greið.
Horfði ýmist & heyrði
er hann var á leið.


Leið 8 ...

69027828_362621304664231_1523822025452290048_nStrætó kynnir með stolti
stystu leiðina pent.
Nauthóll að Norðlingaholti
nú er komin í tvennt.

Í dag hófst ný leið hjá Strætó bs. sem þó er ekki ný af nálinni. Byggðasamlagið hefir nefnilega stytt leið 5 - er ekur jafnan frá Nauthól að Norðlingaholti - & gert að tveimur leiðum á annatíma & á kvöldin virka daga. Hefir nýja leiðin fengið númerið átta. Nema hvað.

68680988 2340794485976471 4496580615721713664 nDr. Gylforce beið öngvra boða & brunaði að BSÍ um leið & hægja tók á skylduverkum dagsins. En ekki hvað???

68858327 624071754786788 4884389009767268352 nEkki voru margir vagnverjar í þessari stuttu ferð sem er einungis frá BSÍ að Nauthól & Háskólanum í Reykjavík.

68517609 923878384637050 8458117905337286656 nMeð breytingu þessari er fyrst & fremst verið að reyna að bæta stundvísi leiðar 5 & vonum vér allir vagnverjar að sú verði nú raunin í framhaldinu.

Dr. Gylforce býður leið 8 velkomna á vígvelli veganna þótt honum finnist þessi eina breyting fyrir veturinn heldur snubbótt. 

Yfir&út!


Stafræn strætóskýli ...

1151558Í strætóskýlum stafrænu
standa þar verjar senn.
Í gegnum þau dökkgrænu
gustar þó vindur enn.

Strætóskýlin stafrænu

Nú hafa verið sett upp tvö svokölluð stafræn strætóskýli sem vér vagnverjar munum vonandi taka fagnandi. Aðallega er dr. Gylforce spenntur fyrir nýjum "fídus" í þeim hvar hægt verður að vita hvursu langt er í næsta vagn. Nema hvað.

imagesSett verða upp 210 stafræn skýli en í aðeins um 50 þeirra verður stafrænt rauntímakort & hægt að vita hvenær næsti vagn kemur. Af hverju það er aðeins í um fjórðung skýlanna áttar dr.-inn sig ekki á en vonandi verðum þeim svo fjölgað hægt & rólega.

Dropinn holar jú steininn.

Annað af skýlunum er að finna við Kringlumýrarbraut & í þessum töluðu orðum (eða því sem næst) er dr. Gylforce á leiðinni þangað.

Yfir&út!





(efri mynd: mbl.is)


Vetraráætlun í næstu viku ...

68248113_2281410488595201_5438310688529317888_nVetrarætlunin volduga 

Vetraráætlun Strætó bs. hefst sunnudaginn 18. ágúst eða í reynd mánudaginn þann 19. Nema hvað.

Ekki verða gerðar margar breytingar fyrir veturinn eins & fyrr hefir komið hér fram en þó ert vert að tæpa á því helsta. En ekki hvað???

1E06FD7C CE81 4F98 B835 AD33ED7A268CLeiðir sem fengu illu heilli 30 mínútna tíðni í sumar snúa aptur í kortersæluna. Það eru leiðir 18, 24 & 28.

Gott verður að tylla sér á ný í þær & má segja að leiðir þessar verði á vetur setjandi með þessari breytingu.

Dr. Gylforce hepði viljað sjá Strætó bs. aðeins framsæknara & breyta fleiru eins & margopt hefir verið minnst hér á. Vonandi nær byggðasamlagið að einfalda & betrumbæta leiðakerfið í Firðinum næst & einnig að huga að tengingum milli vesturbæjar í Reykjavík, Seltjarnarness & Granda svo fátt eitt sé nefnt.

downloadAukinheldur vonar dr. Gylforce að sem flestir festi nú fjár í samgöngukorti en slíkt er 12 mánaðakort á verði 9 mánaða & sparar vagnverjum heldur betur.

Bráðlega nú brestur á
með breytingum fáum.
Vetraráætlunin - vá
með verjunum knáum. 

Við stóru dekkin dáum
& drifkraftinn ó-já.
Í sparseminni spáum
& spjöllum saman smá.




Efstu 3 myndir: Facebook-síða Strætó


Sýra á Sheeran ...???

1150343Auka fyrir Edara 
svo allir sjái
þennan mikla meistara
músikina dái.

Eddi og aukavagnarnir

Hinn rauðbirkni tómatsósuunnandi hefir gert allt vitlaus á Fróni þessa helgina, hvar vinir vorir - vagnarnir - hafa ekki farið ekki varhluta af því. En ekki hvað???

Reikna má með um 50.000 manns á tvenna tónleika með hinum geðþekka Ed Sheeran & því ljóst að mikinn fjölda aukavagna þarf til að mæta öllu þessum vagnverjum. Strætó bs. hefir sent um 40 aukavagna á vígvelli veganna auk þess sem strætóskutlur hafa ekið frá Kringlu að Laugardal. Það er því nóg um að vera um helgina. Nema hvað.

Ekki eru þó allir sáttir við framkvæmd tónleikanna & ekki annað að sjá en talsverð sýra hafi verið hjá tónleikahöldurum varðandi skipulagið.

Eintóm sýra Sheeran

Hvað um það. Hvað veit dr.-inn um það???


Yfir&út!


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband