Þessi virðist léttur á leið
ljúfur & greiðvikinn.
Öruggt er í hans bifreið
enginn verður svikinn.
Skemmtilegur strætóbílstjóri
Það er ávallt mun ánægjulegra að lesa jákvæðar fréttir heldur en hitt & ekki vanþörf á nú þegar veirur & válynd tíðindi tröllríða allri umfjöllun. Nema hvað.
Góðu heilli virðist vera afar góður vagnstjóri á leið 15 um þessar mundir. Illu heilli hefir dr. Gylforce ekki tekið þá löngu & ljúfu leið í dágóðan tíma. Doksi kallinn þarf að gera bragarbót á því & endasendast meðal Mosfellinga & miðbæjarfólks - maður lifandi!
Aukinheldur virðist sem örmiðillinn eirikurjonsson.is hafi sérstakan áhuga á vögnunum - vinum vorum - & er það vel.
Líf í rappi
Subbur á leið???
Efri mynd: eirikurjonsson.is
Samgöngur | 29.2.2020 | 14:08 (breytt kl. 14:09) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bálhvasst nú fyrir blágulu
af braut fór einn alveg.
Snælduvitlaust í snjóhulu
snérist út af veg.
Enn lenda hinir blágulu vagnar landsbyggðarinnar í kröppum dansi á Kjalarnesi.
Svæðið er vitaskuld alþekkt fyrir vind & hviður en góðu heilli voru aðeins þrír vagnverjar um borð að þessu sinni.
Aukinheldur er það nokkuð spaugilegt að verktakinn suður í Firði, sem annast þá blágulu, sendi á vettvang einkabíl enda einvörðungu þörf á því að gefa þremur vagnverjum far í bæinn.
Kjalarnes
Samgöngur | 27.2.2020 | 23:16 (breytt kl. 23:20) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vagnverji einn segir farir sínar ekki sléttar suður í Firði á dögunum, illu heilli.
Verjinn sat í sakleysi sínu í leið 44 á leið út í Fjörð hvar hann ætlaði síðan í ásinn. Nema hvað.
Einhverra hluta vegna fór vagninn sá ekki á endastöð eins & áætlanir gera ráð fyrir & lét vagnverjann út við Hafnarfjarðarkirkju!!!
En gefum vagnverjanum orðið (birt án hans leyfis :/ ):
"Ég lenti í því annan daginn í röð að vagn fer ekki á endastöð og hendir mér út fyrr til að komast fyrr af vakt. Ætlaði að taka leið 44 og skipta í leið 1.
Hann hendir mér út hjá Hafnarfjarðarkirkju og segir svona fjörutíu sinnum í röð "finish" og skilur ekki orð af því sem ég segi."
Ja hérna, eða er hér um einhvern góðlátlegan misskilning að ræða???
Máske er hér fynd & fliss
fljótt ég nú útskýri.
Með frekju æpti "Finish/Finnish"
- er Finni undir stýri???
Samgöngur | 24.2.2020 | 21:51 (breytt kl. 21:56) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hér er rammþýskt rafmagn
um reinarnar fer.
Virkilega fínn vagn
á vegunum af ber.
Grá gæði á götunum
Þessi grái & gullfallegi Mercedes Benz rafvagn hefir verið til reynslu hjá Strætó bs. ásamt verktökum undanfarnar vikur.
Góðu heilli náði dr. Gylforce einni ferð með vagni þessu fyrir nokkrum vikum & leist afar vel á.
Enda þótt rafvagnarnir fjórtán frá kommúnistunum í Kína séu ágætir virðist sá grái vera annað & meira. Sem vagnverji virtist hann mun mýkri & þýðari aukinheldur sem pláss í sætum var betra.
Vonandi kemur sá þýski vel til greina hjá Strætó þegar þeir taka ákvörðun um kaup á tíu nýjum vögnum á þessu ári.
Það væri ansi gaman að sjá þessa á vígvöllum veganna.
Yfir&út!
Samgöngur | 23.2.2020 | 10:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fleiri ferðir & stundvísi
færri í sínum öngum.
Í bænum birtist sáttfýsi
fyrir bættum samgöngum.
Tíðari ferðir & stundvísi
Eitthvað virðast vera að rofa til hjá Norðlendingum, hvar þeir hafa sett á laggirnar alls kyns rýnihópa með það fyrir augum að breyta & bæta leiðakerfið nyrðra. Nema hvað.
Akureyrarbær hefir meira að segja hlustað á & hapt samráð við börn & unglinga varðandi strætó & leiðakerfið í heild. Það er afar vel gert hjá stjórnendum bæjarins & vonandi hlusta þeir vel. Börn hafa nefnilega mikið til málanna að leggja í þessum málaflokki auk þess sem þau eru vagnverjar framtíðarinnar. En ekki hvað???
Dr. Gylforce hefir margopt rætt um það hér hversu furðulegt leiðakerfið er í höfuðstað Norðurlands. Fjórir vagnar aka þar þvers & kruss á sex leiðum sem flestar eru ekki með góða tíðni aukinheldur sem steininn tekur úr á kvöldin & um helgar með einni leið á klukkutímafresti.
Dr.-inn elur þá von í brjósti að Oddeyringar & nærsveitamenn nái nú loksins að gera leiðakerfið þétt & skilvirkt enda er það mikill plús nyrðra að hafa vagnana - vini vora - gjaldfrjálsa.
Amen.
Samgöngur | 22.2.2020 | 20:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eptirlitið aptur af stað
óprúttna á herja
svo þeir geti eigi aftrað
unaði vagnverja
Eptirlitsmenn aptur til starfa
Ánægjuleg tíðindi berast nú frá Strætó bs. þess efnis að eptirlitsmennirnar munu hefja aptur störf á næsta ári með auknar & betri heimildir. En ekki hvað???
Eptirlitið er enn til staðar í dag en dr.-inn verður nú að viðurkenna að það er ansi langt síðan hann sá einn slíkan að störfum. Illu heilli.
Byggðasamlagið áætlar að um 200 milljónir tapist vegna falsana þótt erfitt sé að segja til um umfangið. Fyrir nokkrum misserum komst upp um svik á níu mánaða korti frá Strætó & má ætla að ýmsir falsaðir miðar & kort séu í umferð, því miður.
Strætó hyggst fá leyfi til þess að sekta þá sem nota slíkt sem þekkist vitaskuld afar vel í nágrannalöndum okkar.
Vonandi nær byggðasamlagið að kveða skúrkana í kútinn enda afar sorglegt þegar reynt er að svindla á sameiginlegri þjónustu sem greidd er með skattfé.
Yfir&út!
Samgöngur | 20.2.2020 | 16:13 (breytt kl. 16:13) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Á randi mínu rakst á leið
sem reyndist stoppa á laun.
Eptir henni þar bófi beið
brunar hún á Litla-Hraun?
Dr. Gylforce rak í rogastans í Mjódd okkar Breiðhyltinga, hvar þar kom leið sem hann vissi ekki að stoppaði þar. Nema hvað.
Leið númer 22 merkt "Hraun" stansaði & hleypti nokkrum vagnverjum út aukinheldur sem einn gerði sig líklegan til þess að fara inn.
En hvaða leið var þetta? Hraun? Hvar eru Hraun? Já, nú skilur doksi, er þetta vagn á Litla-Hraun???
Ef svo er, hepði þá ekki vera betra að hafa hann blágulan líkt & vagnar sem keyra úr höfuðborginni áleiðis út á land???
Samgöngur | 18.2.2020 | 09:04 (breytt kl. 09:13) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Á ferðinni hann kann sitt fag
fagmannlegur sem áður.
Hleð ég nú í brogaðan brag
best að vera allsgáður.
Dr. Gylforce hélt edrú & allsgáður til vagna sinna þennan fyrsta vinnudag vikunnar.
Dr.-inn var hepðbundinn í vagna- & leiðavali sínu & eins & sjá má voru bífur dr.´s til friðs að þessu sinni enda vel setið af vagnverjum í þristinum. Nema hvað.
Dr.-inn hapði hug á að komast í hvítu metanvíkingana en sá þá ekki að þessu sinni.
Gengur bara betur næst.
Samgöngur | 17.2.2020 | 21:44 (breytt kl. 21:45) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nánast einn í vagni var
voru öngvin læti.
Böðlaðist með bífurnar
upp í blátt sæti.
Dr. Gylforce einhenti sér í fyrirtaks vagnaferðir á frjádaginn eptir fárviðrið mikla, hvar fáir reyndust á ferli & ferðir með allra rólegasta móti. Nema hvað.
Aldrei þess vant sýndi dr.-inn af sér dólgslega framkomu & dómgreindarleysi í vagninum, hvar hann vippaði annarri bífu sinni í sætið á rafvagninum & dormaði nánast á leið. En ekki hvað???
Gylforce-inn var ekki til fyrirmyndar þarna enda hapði hann kneyfað ölið en lofar að þetta hendi hann aldrei aptur.
Aldrei!
Amen.
Samgöngur | 16.2.2020 | 21:19 (breytt 17.2.2020 kl. 08:13) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vagnverjar & landsmenn allir fóru ekki varhluta af aftakaveðrinu sem geisaði á sjálfan Valentínusardaginn. Maður lifandi!
Strætó aflýsti öllum ferðum í gærmorgun en hóf svo akstur um hádegisbilið, góðu heilli fyrir oss vagnverja.
Margt gekk á í fárviðrinu & fékk t.d. þetta strætóskýli við Sundlaugina á Seltjarnarnesinu að kenna á því. Það fór á hliðina en vonandi er búið að koma því á réttan kjöl.
Eptir fok það fór á hlið
fokk & ekkert spaug!
Bölvanleg er nú bið
á biðstöð við sundlaug.
Yfir&út!
Samgöngur | 15.2.2020 | 19:59 (breytt kl. 20:01) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.3.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar