Kann að meta met´ann ...

20251140_10154941186773348_446817289_oSnemmindis í gær, er sólin ei rýður, varð dr. Gylforce var við vagninn bláa í borginni; dreissugur með dekk sin & drif, bláa toppinn tindrandi, stóra glugga geislandi; tignarlegur & gljáandi. Maður lifandi! 

Vagninn var á leið 3 sem var einkar hagstætt fyrir dr.-inn. Hér er á ferð bláleitur Iveco metanvagn sem byggðasamlagið hefir til reynslu & er afar spennandi að sjá.

Það væri gaman að hafa gömlu stofnleiðirnar leiðir 1-6, með öðrum lit en hinar & hví þá ekki þessum??? Hvað um það.

Illu heilli komst dr.-inn ekki um borð í þennan vagn að þessu sinni en mun vitaskuld einhenda sér í metanið um leið & hann sér hann á leið - en ekki hvað???


Bloggfærslur 21. júlí 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband