Hinn kostavendni & kræsni dr. Gylforce kom sér á vit vagna í gærkveldi, hvar hann var nú nánast kominn á beddann snemmindis á frjádagskvöldi en snérist hugur. Nema hvað.
Það var dúnalogn & dimmt þegar dr. Gylforce dróglaðist inn í leið 3 hér við Stúta & Sel. Það vakti gjörhygli Gylforce-ins að þristurinn áði við Mjódd okkar Breiðhyltinga í níu mínútur & beið eptir hinum leiðunum.
Samkvæmt tímatöflu á leið 3 að bíða í mesta lagi í fjórar mínútur & því ljóst að vagninn var fimm mínútum á undan áætlun.
Aukiheldur má velta fyrir sér að ef þristurinn biði ekki eptir hinum leiðunum; þá gæti hann verið kominn langleiðina að Landspítalanum á þessum níu mínútum. Það myndi hraða för okkar vagnverja umtalsvert.
Gleymum þó eigi að hið lostfagra leiðakerfi byggir á skiptingu á milli vagna á mörgum stöðum & auðvitað í Mjóddinni. Það er ákveðinn kostur. Hvað um það.
Dr. Gylforce fékk Irisbus Crossway á leið 3 alla leið að Hlemmi & settist svo í leið 2 tilbaka. Þar var sama uppi á teningnum; vagnar númer 136 & 146 stóðu vaktina þetta kyrrláta & dimma kvöld.
Amen.
Hughrifin í húminu
við Hlemm & torg
ráku mig úr rúminu
í Reykjavíkurborg.
Bloggar | 2.9.2017 | 09:23 (breytt kl. 15:18) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 2. september 2017
Færsluflokkar
Bloggvinir
Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar