Hinn hofmann- & huggulegi dr. Gylforce hefir heldur betur verið sem eilífur augnakarl í námunda við Hlemmtorgið undanfarin kvöld, hvar allt hefir þar gerbreyst með tilkomu Mathallarinnar. Maður lifandi.
Á kvöldin aka vinir vorir - vagnarnir - með 30 mínútna tíðni sem er akkúrat rétti tíminn fyrir Gylforce-inn að gæla við þann görótta. En ekki hvað???
Dr. Gylforce er heldur íhaldssamur á leiðir & tekur alltof opt leið 4 niður á Hlemm & svá leið 3 til baka.
Þetta þarf doksi kallinn að leiðrétta; skipta um kúrs, auka leiðavalið & fara alls konar krókaleiðir til & frá Mathöllinni.
Já, helst verður þetta að breytast núna. Strax. Í kvöld. Punktur.
Mjöðurinn í Mathöll
mjúkur ég er.
Í gulum um vígvöll
veganna fer.
Vínið tekur völdin
villt er mitt geim.
Kófdrukkinn á kvöldin
kem mér samt heim.
Í leið þrjú ligg ég
lúin hvíli bein.
Gleðin var guðleg
gjörði öngvum mein.
Bloggar | 5.9.2017 | 22:07 (breytt 18.10.2017 kl. 17:27) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 5. september 2017
Færsluflokkar
Bloggvinir
Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.3.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar