Tvisturinn úr takti
með tímaplön.
Reinina hans rakti
reyndist á skjön.
Hinn taktfasti en fráleitt tregi dr. Gylforce tók sig til & hélt á vit vagna, hvar hann hitti fyrir hina nýju leið 2, tvistinn.
Dr.-inn hlakkaði virkilega til að valhoppa inn í leið 2 við Mjóddina í fyrsta sinn, hvar hann það & gerði.
Vagninn reyndist 7 mínútum of seinn en hann átti að leggja úr vör kl. 17:02 en kom & fór kl. 17:09.
Tímaáætlun tvistsins er um margt einkennileg.
Vagninn fer á undan öðrum leiðum á annatíma úr Mjóddinni enda með tímaplanið 02-17-32-47 meðan aðrar leiðir eru þar 06-21-36-51.
Á kvöldin & um helgar er leið 2 á pari við aðra vagna í neðra Breiðholtinu en þá er hann vesalingurinn út úr korti í Hamraborginni á leið á Hlemm eða með tímann 46-16 meðan t.d. leið 1 er þar 05-35.
Máske er einhver skýring á þessu sem hið gamla hró doksa kemur ekki auga á enn sem komið er. Hvað um það.
Dr.-inn tók 40 mínútna rúnt með tvistinum sem var langt á eptir áætlun þangað til hann kom í Hamraborgina, þá "græddi" hann nokkrar mínútur því þar átti vagninn að vera kl. 17:25 & fara kl. 17:29.
Hinn fagri 148 Crossway vagn á A-vachtinni með dr.-inn innanborðs, kom aðvífandi í hjarta Kópavogs kl. 17:30 & náði svo réttum tíma á Grensásveginum. Þá var nú heldur stuttur spölur eptir að endastöð við Hlemminn.
Allt saman nokkuð sérstakt en kannski skiljanlegt á háannatíma???
Bloggar | 8.1.2018 | 22:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 8. janúar 2018
Færsluflokkar
Bloggvinir
Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.3.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar