Ferðaðist um, fór vítt
í fjölmörgum leiðum.
Ferðin opt var fullnýtt
- fjörug á vegum greiðum.
Hinn indæli & ungdómslegi dr. Gylforce fór með ungviðið í unaðsferð í yndislegu veðri gærdagsins, hvar vér tókum fjölmarga vagna & leiðir & vildum fara á fjörur við Grafvæginga. Nema hvað.
Í leið 36 frá mennta- & menningarsetri þeirra Kársnesinga fyllti ungviðið vagninn & hélt með honum stuttlega að Hamraborginni.
Dr.-inn ákvað að taka leið leiðanna, leið 1, frá Hamraborg að Hlíðum, hvar vér ætluðum svá að kynnast tíu mínútna tíðni leiðar 6 upp í Spöng þeirra Grafvæginga. Hvað um það - doksi kvað:
Í Svía að Spöng
sælleg er leið.
Á þingi þröng
þó öngvin neyð.
Það gladdi hið gamla hró dr. Gylforce að fá sænskættaðan 114 Scania Omnilink til að ferja okkur frá Hlíðahverfi upp í Spöng. Jálkurinn sá stóð sína plikt; vagninn reyndist kjaftfullur & kom oss á leiðarenda á rúmum hálftíma. Vel gert.
Frá Spönginni að Kársnesinu einhenti dr.-inn sér með ungdóminn í þrjár leiðir; 6, 4 & 35. Doksi kallinn skipti um vagn við Kringluna & tók leið 4 hvar hún áði við Hamraborg.
Hin kópvægsku stef voru kunnugleg & hélt ungviðið ásamt mentor sínum í leið 35 & tók rúntur þessi í þremur leiður nákvæmlega 40 mínútur.
Leið 6 lagði af stað stundvíslega kl. 15:00 & leið 35 skilaði oss í mennta- & menningarsetrið á slaginu 15:40. Það er vel ásættanlegt - maður lifandi!
Bloggar | 27.10.2018 | 12:24 (breytt kl. 13:08) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 27. október 2018
Færsluflokkar
Bloggvinir
Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar