Fimm vagna fönn
flottum hjá.
Rosalegt rönn
reinunum á.
Hinn vel nefndi & nefstutti dr. Gylforce náði aðeins að sjá einn rafvagn á vígvöllum veganna í gær. Á leið 4 bauð byggðasamlagið upp á 194 dásemdina en að öðru leyti varð doksi kallinn að drattast í dísilvagnana. Nema hvað.
Dr. Gylforce ákvað hinsvegar að taka hús á vagnverjum í hinum reykvíska vesturbæ. Doksi kallinn gerði sér því far með leiðum 11 & 15 & sá aukinheldur leið 13 á vappi.
Verjar í vesturbænum
virðulegir nokk.
Blómlegir í blænum
blása eptir skokk.
Á horni Kaplaskjólsvegar & Ægisíðu koma nefninlega leiðirnar þrjá um svipað leyti. Dr.-inn hóaði í leið 15 frá Hlemmi & hélt með honum að Kaplaskjóli.
Þar þurfti dr.-inn að bíða aðeins stutta stund hvar leið 11 kom aðvífandi. Í millitíðinni sást aukinheldur til leiðar 13 á leið út á Eiðistorg.
Dr. Gylforce einhenti sér í ellefuna á þessu yndislega götuhorni þeirra vesturbæinga & fékk sér unaðslegan 30 mínútna rúnt upp í Mjódd okkar Breiðhyltinga.
Takk fyrir mig!
Bloggar | 11.11.2018 | 10:21 (breytt 22.11.2018 kl. 22:51) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 11. nóvember 2018
Færsluflokkar
Bloggvinir
Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar