Síðdegis nú allir seinir
sit þó í þeim kyrr.
Ef þeir vær´á vegum einir
verjar kæmust fyrr.
Það var ekki hátt risið á vinum vorum, vögnunum, síðdegis á þessum miðvikudegi. Sumir kjósa að kalla dag þennan "vippudag" hvar vér vippum okkur yfir í seinni hluta vikunnar á degi Óðins. Hvað um það.
Leið 12 var þó á réttum tíma frá Mjódd okkar Breiðhyltinga að Breiðhöpðanum. Ljómandi.
Dr. Gylforce hugði á ljúfa ferð með leið 16 frá Ártúni um sundin blá. Vagninn sá reyndist níu mínútum of seinn en það vachti gjörhygli Gylforceins að fá Iveco Crossway á leið þessari. Nema hvað.
Dr.-num langaði til að sverma fyrir metanvagni á leið 11 sem er nýr í flota þeirra Fjarðarmanna.
Ekkert sást til metansins heldur fékk dr.-inn lúinn Irisbusvagn á ellefunni, sem aukinheldur var alltof sein, hvar hún brunaði með dr.-inn frá Hlemmi að Mjóddinni.
Það eru ekki alltaf jólin. Maður lifandi.
Bloggar | 21.11.2018 | 23:23 (breytt kl. 23:27) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 21. nóvember 2018
Færsluflokkar
Bloggvinir
Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar