Þeir koma gjarnan að gagni
glæstir um langan veg.
Í vikugömlum vagni
er veröldin dásamleg.
Hinn spaki & sperrti dr. Gylforce spratt bísperrtur af stað um helgina & hélt vitaskuld á vit vagna. En ekki hvað???
Gylforce-inn sér fram á gósentíð í vögnunum, hvar verktakinn við sundin blá hefir nú tekið í notkun tíu glæsta Iveco Crossway vagna. & ekki sé minnst á rafvagnana sem Strætó bs hyggst nota en nokkrir af þeim eru komnir til landsins & eru væntanlegir á vígvelli veganna eptir nokkrar vikur. Maður lifandi.
Dr.-inn einhenti sér í glæstan & glænýjan Iveco vagn frá Kynnisferðum. Doksa telst svo til að vagninn sé aðeins búinn að vera í um viku í akstri. Þetta var vagn númer 350 á leið 17 en nýju vagnarnir hafa fengið raðnúmerin 341-350.
Það er alltaf jafn gaman að sitja í spánnýjum & spennandi vagni; finna lyktina & sá allt glænýtt & vel með farið. Aukinheldur hapði doksi gaman af stanzrofunum í vagninum en þeir eru með öðrum hætti en í sambærilegum vögnum sem Strætó bs. notar. Hvað um það.
Dr.-inn hélt frá Mjódd að Hlemmi með um tug vagnverja & hélt glaður í bragði heim á leið með hinum hvítgula vagni á leið 4.
Amen.
Bloggar | 18.3.2018 | 10:20 (breytt kl. 21:16) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 18. mars 2018
Færsluflokkar
Bloggvinir
Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar