Á laugardegi er ljúfur
langar að magna seið.
Held af stað með húfu
& haska mér á leið.
Hinn vel lukkaði & lostfengni dr. Gylforce hefir leiðst heldur, hvar leiðavalið hefir verið heldur einhæft hjá honum undanfarna daga.
Doksi kallinn hefur skottast milli leiða 3 & 4 & svá vagnana í Voginum fagra. Dr.-inn einhenti sér því í leið 14 við Verzlunarskólann í gær (tók reyndar leið 4 að Kringlu) & hugðist labba um lendur við Langholtið. En ekki hvað???
Dr. Gylforce fýsti í flunkunýju vagnana (Iveco) en varð að gera sér að góðu Hollendinginn bilandi (VDL-vagnana). Fyrstur þar var 312 vagninn sem átti að leggja af stað kl. 16:45 frá Verzló.
& það gerði hann - maður lifandi!
Vagnstjórinn rykkti af stað & ók sem óður væri að Menntaskólanum við Sund. Hann fór yfirleitt yfir á rauðu ljósi á Grensásveginum enda var hann 3 mínútum á undan áætlun.
Við MS virtist vagnstjórinn ætla að jafna tímann en brunaði svo enn of snemma af stað. Doksi kallinn fékk nóg af þessu & hoppaði út á Langholtsveginum.
Þar sá dr.-inn í fyrsta sinn flott skilti á staur af Mótmælanda Íslands, Helga Hóseassyni. Það er vel við hæfi enda stóð hann þarna rétt hjá í mörg ár með sín skrautlegu skilti. Hvað um það.
Dr.-inn spásseraði um Langholtið um stund en hóaði svá í 306 VDL-vagninn á leið 14 sem færði hann á Hlemm með mun rólegri hætti en sá fyrri.
Við Hlemmtorg lék dr.-inn kunnuglegt stef & hélt með þristinum í átt að Stútulautarseli sínu.
Amen.
Bloggar | 1.4.2018 | 08:15 (breytt kl. 08:16) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 1. apríl 2018
Færsluflokkar
Bloggvinir
Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar