Í eðal-ási inn á Hlemm
eta böku góða.
Með verjunum vera memm
í vagninum hljóða.
Hinn stórgóði en steigurláti dr. Gylforce var fljótur að stíga á stokk, hvar hann hóaði í leið leiðanna, leið 1, í Hamraborginni háu & fögru. Nema, nema hvað!
Dr. Gylforce fékk sér til fulltingis vagn sem kominn er á sjötta ár, Iveco Crossway & skundaði með honum ásamt 10 vagnverjum um hádegisbilið alla leið að Hlemmi. En ekki hvað???
Við hið huggulega Hlemmtorg var ys & þys; vagnverjar í leit að vögnum, matverjar inn í Mathöll & túristar að láta taka sig í bakaríið inn í 10-11. Hvað um það.
Dr. Gylforce skeytti því öngvu heldur hoppaði hnarreistur & sannkristinn inn í tvistinn & hélt sína leið að Hamraborg þeirra Kópvæginga.
Amen.
Bloggar | 11.4.2018 | 17:11 (breytt kl. 17:51) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 11. apríl 2018
Færsluflokkar
Bloggvinir
Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar