Tvistur & basl ...

llHinn spraðabassa- & spjátrungslegi dr. Gylforce spólaði strax af stað í vini vora - vagnana - eptir að hafa ausið ótæpilega úr viskubrunni sínum við ungviðið í mennta- & menningarsetrinu við Fannborgina. Nema hvað.

Dr.-inn sat stoltur í vögnunum vopnaður nýja strætókortinu sínu & endasentist með ási, tvisti, þristi - & jafnvel Kristi! Maður lifandi. Amen.

Það vakti gjörhygli Gylforce-ins hvað leið 2 virðist eiga enn erfitt með að halda áætlun. Það er bras & basl á þeirri leið, sérstaklega að Mjódd & vitaskuld frá henni þegar hún vafrar um Vatnsendann. Betur tókst til að halda réttum tíma frá Hamraborg þeirra Kópvæginga að hinu huggulega Hlemmtorgi.

Öskurok & úfinn sær
er nú þennan daginn.
Með nýja kortið nær & fjær
ég nýti mér um bæinn.


Bloggfærslur 16. apríl 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband