Meiri tíðni, meira fjör
hjá meirihluta nýjum.
Skal nú gera loks gangskör
Gylforce er ofar skýjum!
Hinn spánnýi & nokk spennandi meirihluti í Reykjavík hefir talsvert metnaðarfulla áætlun í málefnum almenningssamgangna, m.a. um að auka tíðni á ákveðnum leiðum niður í 7,5 mínútur á álagstíma. Það er vel!
Vonandi er líka ætlunin að bæta hið lostfagra leiðakerfi í samráði við hin sveitarfélögin. Það er mikilvægt að einblína ekki einvörðungu á annatíma heldur bæta tengingar á milli hverfa alla daga. Nema hvað.
Aukinheldur hyggst meirihlutinn halda áfram að vinna að Borgarlínunni, ásamt hinum sveitarfélögunum vitaskuld, & er stefnt að því að taka eitthvað af henni í notkun á kjörtímabilinu.
Það verður allra athyglivert. Maður lifandi!
Bloggar | 13.6.2018 | 17:02 (breytt kl. 17:10) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 13. júní 2018
Færsluflokkar
Bloggvinir
Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar