Núna munu gleðjast gumar
Gylforce-inn þó mest.
Sama tíðni er í sumar
með sænskri vagnalest!
Hinn grandvari & gaumgæfilegi dr. Gylforce hefir glaðst mjög undanfarna daga, hvar loksins, loksins hefir Strætó bs. ákveðið að hafa öngva sérstaka sumaráætlun. Maður lifandi!
Hinn fráleitt útlimagranni ofurbloggari hefir ávallt gramist skerðingar á tíðni & leiðum sem verið hafa á sumrin í hinu lostfagra leiðakerfi byggðasamlagins. Illu heilli!
Nú kveður hinsvegar við annan tón & er öngvin sjáanlegur munur á ferðum vagna á höfuðborgarsvæðinu yfir sumar- ellegar vetrartímann. Það er vel.
Leiðir 1 & 6 halda áfram að tjútta um á tíu mínútna fresti á annatíma virka daga. Hipp-hipp-húrrey!!!
Aðrar leiðir halda aukinheldur sínu (veg)striki & nú bíður doksi kallinn bara í ofvæni eptir fleiri rafvögnum.
En ekki hvað???
Bloggar | 5.6.2018 | 23:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 5. júní 2018
Færsluflokkar
Bloggvinir
Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.3.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 10
- Frá upphafi: 118882
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar