Í þristinn minn fór eptir þjór
þónokkuð sljór & hreifur.
Indælis bjór á knæpukontór
kófdrukkinn, frjór & reifur.
Hinn kímilyrti & kámugi dr. Gylforce hélt kátur & keikur á vit vagna, hvar hann tók leið 3 áleiðis í sollinn. Já, rétt, í borg óttans fór dr.-inn mínir virðulegu vagnverjar. & það á sjálfan þjóðhátíðardag Kanans.
Það fer vel á því að bróðir Gylforce-ins, fagnar einmitt sama afmælisdag & Amríkanarnir. & því skal fagnað - vitaskuld með því að kneyfa ölið af áfergju - en ekki hvað???
Bræður gengu til drykkju & gerðu sig svá glaða að Óminnshegrin - helvítið atarna - flögraði sem óður væri um sali & kontóra knæpunnar & glap okkar geð guma.
& þegar dagur kom - hvenær sem hann nú kom - skorti okkur túramennina ekki timburmenn heldur túskilding & héldu bræður með taktfastan hausverk & tóma vasa í næsta vagn. Nema hvað.
Annar þeirra fékk stuttan rúnt með eðalvagni en hinn hélt með leið 3 að fegursta Stútulautarseli jarðarkringlunnar.
Já, staupaþing, samdrykkja & strætóferðir svíkja öngvan í höfuðborginni. Maður lifandi!!!
Bloggar | 5.7.2018 | 08:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 5. júlí 2018
Færsluflokkar
Bloggvinir
Mars 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.3.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar