Gylforce meðal Grafvæginga ...

dLzspZGxEGmYKkh-800x450-noPad

Hinn kaldi karl & stælgæi dr. Gylforce hélt til Grafvæginga í gær, hvar hann þurfti að sinna þar erindagjörðum. Nema hvað.

Dr.-inn sat í leið 24 frá Mjódd okkar Breiðhyltinga að Spönginni. Við þá tengistöð þeirra Grafvæginga hefir nú Bjarg íbúðafélag hafist handa við að byggja íbúðir. Félag þetta ku vera sjálfseignastofnun á vegum ASÍ og BSRB.

Félaginu er ætlað að tryggja tekjulægri hópum þak yfir höfuðið til lengri tíma & munu þarna án efa búa hópur vagnverja í framtíðinni. Það er vel.

80CC96C3255B60CAC4970869C7989427F5303833C2613FB0B6B682813F596AF1_713x0Dr.-inn ætlaði að bregða sér tilbaka með leið 6 sem átti að leggja úr vör á slaginu klukkan 15:00. Ekkert bólaði á vagninum fyrr en þremur mínútum síðar. Það er nokk skrýtið því hér er um aukavagn að ræða sem ætti að koma askvaðandi og á réttum tíma frá Hesthálsi. Hvað um það.

Vagnstjórinn rann í hlað á gömlum en góðum sænskum Omnilink jálk númer 115. Stjórinn ók sem óður væri á aðeins 27 mínútum að Lærða skólanum við Lækjartorg. Samkvæmt áætlun á ferð þessi að taka um 32 mínútur en slíkt var ekki í boði að þessu sinni.

Dr. Gylforce sté út niðrá torgi hálf sjóveikur & ringlaður eptir þessa kynngimögnuðu ferð. Hann jafnaði sig stutta stund en leitaði svá fleiri vagna - en ekki hvað???

Ók sem lífið ætti að leysa
lengst inn í Grafarvog.
Við stýrið lét gamminn geisa
svo Gylforceinn fékk flog.


Bloggfærslur 6. júlí 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband