Víndrukkinn á vagni ...

31460837_10155647275583348_4928770861046956032_nVíndrukkinn vagni ók
vegurinn of mjór.
Tvo kagga með sér tók
í tugthúsið fór.

Víndrukkinn á vachtinni

smiðjuvegurHinn fráleitt slurkaði & slompaði dr. Gylforce var stúrinn & sorgmæddur nú í blæðandi morgunsárinu, hvar hann renndi yfir netfréttir dagsins. Nema hvað.

Illu heilli virðist vagnstjóri einn hafa verið nokk við skál á vachtinni í gær. Það sem truflar þó doksa mest varðandi frétt þessa er að laganna verðir tala um að þetta hafi átt sér stað á gatnamótum Dalvegar og Smiðjuvegar??? Eru þau til???

Dr.-inn hepði haldið að Dalvegur endi á ljósunum við Nýbýlaveg. Ætli sé ekki verið að meina hringtorgið þar sem Skemmuvegur & Smiðjuvegur mætast? Þar sem leið 4 er á leið annaðhvort í Mjódd okkar Breiðhyltinga eða í Hamraborg þeirra Kópvæginga???


Bloggfærslur 7. júlí 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband